Óttast að Brynjar vanmeti stöðuna: „Það þarf ekki mikið til svo út af bregði“ Sylvía Hall skrifar 8. október 2020 22:50 Ragnar Freyr er umsjónarlæknir Covid-göngudeildar Landspítalans. Hann telur Brynjar vanmeta þær afleiðingar sem óheft útbreiðsla gæti haft í för með sér. Vísir „
Ég held hann hafi litla hugmynd um hvaða raunveruleiki blasir við okkur sem störfum á gólfinu á Landspítalanum,“ segir Ragnar Freyr Ingvarsson, umsjónarlæknir Covid-göngudeildar Landspítalans, um ummæli Brynjars Níelssonar í viðtali við mbl.is. Hann hefur verulegar áhyggjur af því að samstaða þjóðarinnar sé minni en áður en verkefnið sé síður en svo minna alvarlegt. Ragnar fer yfir stöðu mála í færslu á Facebook-síðu sinni í kvöld. Hann segir ljóst að ef faraldurinn fengi að dreifast um samfélagið án þess að gripið yrði til takmarkana myndi fjöldi fórnarlamba margfaldast. „Getur verið að Brynjar eigi í erfiðleikum með að skilja tölur og margfeldi þeirra?“ spyr Ragnar. „Í fyrstu bylgju smituðust um 3600 einstaklingar. 115 lögðust inn á sjúkrahús, 26 á gjörgæslu og 10 létust. Og það var á meðan allt samfélagið lagðist heilshugar á eitt, breytti hegðun sinni, til að takast á við þessa gríðarstóru áskorun. Við þær aðstæður uppskárum þó þennan fórnarkostnað.“ Hann bendir á að ef tíu sinnum fleiri myndu veikjast í þessari bylgju myndu dauðsföllin vera hundrað, og það væri að öllum líkindum skásta sviðsmyndin. Þær tölur tækju mið af því sem gerðist í fyrstu bylgju þegar samtakamátturinn var sem mestur. Og jafnvel þó að tíu sinnum fleiri myndu veikjast væru níutíu prósent landsmanna enn næmir fyrir veirunni. „Þarna gef ég mér allar bestu forsendur sem völ er á. Ef við myndum gera aðgerðirnar alveg eins harðar og við gerðum í vor, og allt myndi ganga upp, þá myndi samt sem áður þetta tjón mögulega hljótast af,“ segir Ragnar í samtali við Vísi. Hundrað innlagnir myndu „yfirgnæfa allt“ Brynjar fullyrti í samtali við mbl.is að heilbrigðiskerfið gæti ráðið við fleiri Covid-sjúklinga. „Það er ekki bara Landspítalinn sem getur séð um sjúklinga. Það sem ég er að segja er að heilbrigðiskerfið í heild sinni getur ráðið við fleiri,“ sagði Brynjar og vísaði meðal annars til einkaaðila í heilbrigðisþjónustu. Ragnar gefur lítið fyrir ummæli Brynjars og segir ljóst að mikill fjöldi innlagna yrði Landspítalanum ofviða. Rúmlega sex hundruð rúm væru á Landspítalanum „og þau eru þéttsetin,“ segir Ragnar. „Þar er fólk sem þarf á okkur að halda.“ Hann nefnir sem dæmi að eitt til tvö rúm séu laus á A7 þessa stundina. Í ofanálag þurfi heilbrigðisstarfsfólk einnig að sinna þeim sjúklingum sem leita sér hjálpar vegna annarra kvilla en Covid. Í vor hafi nánast allt verið lagt til hliðar, en það gangi ekki til lengdar. Ragnar segir ekki endalaust svigrúm vera til þess að taka á móti sjúklingum. Því verði að sporna gegn útbreiðslunni til þess að koma í veg fyrir að fleiri veikist alvarlega.Vísir/Vilhelm „Það eru allir aðrir sjúkdómaflokkar enn í gangi. Það sem gerðist í síðasta faraldri er að við lögðum öll önnur verkefni til hliðar nema bráð verkefni, og létum hitt bíða. Rannsóknir austan- og vestanhafs hafa sýnt það að aðrir sjúklingar biðu skaða af,“ segir Ragnar. „Þú getur séð það fyrir þér að ef það veikjast tíu manns í einu eða það kemur hópslys sem þarf á bráðri þjónustu að halda – það þarf ekki mikið til svo út af bregði. Við dönsum línudans á hverjum degi og það höfum við gert í áratugi.“ Aðrir sjúklingar eiga líka rétt á nauðsynlegri þjónustu Ragnar nefnir að eftir fyrstu bylgju faraldursins hér á landi hafi komið í ljós að margir aðrir sjúklingar biðu með sínar meðferðir vegna stöðunnar í samfélaginu. Það sé ekki sanngjarnt að veikir einstaklingar þurfi að bíða svo lengi eftir því að fá nauðsynlega hjálp, heldur þurfi heilbrigðiskerfið að geta sinnt öllum þeim sem þurfa á aðstoð að halda. „Ég hef til dæmis aldrei hafið jafn margar krabbameinslyfjameðferðir á jafn skömmum tíma. Allt þetta fólk hélt í sér, og það er ekki gott. Þeir sjúklingar eiga líka rétt á því að fá rétta þjónustu á réttum tíma.“ Heilbrigðisstarfsmenn hafa margir hverjir skráð sig í bakvarðarsveitir eftir að kórónuveirufaraldurinn hófst hér á landi og margir biðlað til landsmanna að fylgja fyrirmælum þríeykisins. Ragnar segir einhug vera innan stéttarinnar, enda séu ráðleggingarnar ekki settar fram af ástæðulausu. „Við njótum þess á Íslandi að eiga ótrúlega mikið af góðu fagfólki; sjúkraliðum, hjúkrunarfræðingum, læknum, röntgentæknum, vísindamönnum og allt þetta fólk, sem við bráðar aðstæður getur bætt við sig verkefnum. En maður getur ekki ímyndað sér að þetta sé ótæmanleg auðlind sem er hægt að ganga á endalaust. Þetta er takmörkuð auðlind sem við verðum að nýta vel og skynsamlega, því þetta er fyrst og fremst fólk,“ segir Ragnar. Mikið hefur mætt á heilbrigðisstarfsfólki undanfarna mánuði.Vísir/Vilhelm „Þetta gæti verið einhver nálægt manni“ Ríflega fimm hundruð manns hafa greinst með kórónuveiruna síðastliðna viku og liggja nú 23 á Landspítala. Þrír eru á gjörgæslu í öndunarvél en síðustu daga hafa um sex sjúklingar lagst daglega inn á spítala. Búist er við því að þeim fjölgi á næstunni. Ragnar segir greinilegt að þriðja bylgja faraldursins verði erfið viðureignar. Eitthvað væri breytt í hegðun samfélagsins sem gerði það að verkum að veiran væri í svo mikilli dreifingu en hann hvetur fólk til þess að finna þá samstöðu sem var í vor. „Við verðum að vera saman í liði til þess að leysa þetta gríðarstóra vandamál sem er svo miklu stærra en maður sjálfur. Við verðum að sjá þessi sameiginlegu markmið og fara að þeim.“ Hann segir aðgerðirnar miða að því að Landspítalinn geti sinnt þeim sem þurfa aðstoð og nýta það svigrúm sem væri til staðar. Líkt og áður sagði myndi það hafa alvarlegar afleiðingar í för með sér ef útbreiðslan yrði óheft. „Við höfum skorið svo naumt niður að það er ekki sveigjanleiki til þess að takast á við svo stórt áfall. Við eigum ekki fyrir því að vera með þúsund rúm laus, það væri bara stórkostleg sóun ef við værum alltaf að búast við því að fjöldi stórslysa myndu eiga sér stað á hverju á.“ Þá minnir hann á að á bak við tölfræðina sé fólk og það væri þess virði að vernda það. „Maður áttar sig ekki á því að þetta gæti verið einhver nálægt manni. Ég sannfærður um að Brynjar sé góður maður og að hann vilji það besta, en hann áttar sig ekki á því að þetta gæti verið hann. Hann gæti verið að reikna sig inn í dæmið.“
Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Heilbrigðismál Tengdar fréttir Telur allar líkur á að fyrsta smitið á Íslandi hafi verið í janúar Sérfræðingur í ónæmisfræðum segir rökstuddan grun um að fyrsta tilfelli kórónuveirunnar megi rekja aftur til janúar 2020. 8. október 2020 16:33 Þórólfur trúir því ekki að læknar vilji láta veiruna ganga yfir sig Þórólfur Guðnason, sóttvarnalæknir, segir að allar þjóðir heims séu langt frá því að hafa hjarðónæmi fyrir kórónuveirunni sem veldur sjúkdómnum Covid-19. 8. október 2020 12:47 „Mig langar til að lifa lengur“ Sigurður G. Tómasson segist í áhættuhópi en Brynjar Níelsson segir þetta ekki eingöngu snúast um hans heilsufar. 7. október 2020 17:23 Mest lesið „Versta martröð Trumps“ kjörin borgarstjóri New York Erlent Sonurinn sefur enn með kylfu undir rúminu Innlent Segir þaggað niður í starfsfólki og hyggst ekki snúa aftur Innlent Gat keypt afmælisblómin eftir að ókunnugur mætti með skóflu Innlent Féll til jarðar rétt eftir flugtak Erlent Stóladans þingmanna lækkar launatékka Karls Gauta en hækkar Bergþórs Innlent Íslenskum fulltrúum á loftslagsráðstefnu hríðfækkar milli ára Innlent Fundu 1,7 tonn af kókaíni í kafbát á miðju Atlantshafi Erlent Lokunardagar leikskóla í Reykjavík tíu sinnum algengari en í öðrum stórum sveitarfélögum Innlent Stofnar Facebook hóp fyrir hatur gegn sjálfum sér Erlent Fleiri fréttir Óttast að stóru verkfræðistofunnar gætu orðið einræðisherrar í eftirliti Reikna með tveggja daga aðalmeðferð í máli Alberts Stóladans þingmanna lækkar launatékka Karls Gauta en hækkar Bergþórs Ökutæki viðbragðsaðila verða áberandi vegna æfingar Gat keypt afmælisblómin eftir að ókunnugur mætti með skóflu Íslenskum fulltrúum á loftslagsráðstefnu hríðfækkar milli ára Lokunardagar leikskóla í Reykjavík tíu sinnum algengari en í öðrum stórum sveitarfélögum Sonurinn sefur enn með kylfu undir rúminu Segir þaggað niður í starfsfólki og hyggst ekki snúa aftur Tali ekki fyrir unga Miðflokksmenn Flestir vantreysta ráðherrum Flokks fólksins Eltihrellir lögreglukvenna situr inni fyrir morð Þjófarnir margfölduðu upphæðir við millifærslur Taldi sig sjá bát hvolfa og þyrla og björgunarsveit kölluð út Ákærður fyrir að skjóta að dróna Fiskistofu Grunaðir um hundruð milljóna króna þjófnað en ganga lausir Hundruð kennara nýta gervigreind til að undirbúa kennslu „Upp er runninn Kristrúnar Frostaveturinn mikli“ Starfsmaður Múlaborgar ákærður Gleðiefni að útkomuspá ársins sé á núlli Stefnt að leiðtogaprófkjöri eftir áramót og kunnugleg nöfn mögulega í pottinum Miðflokkurinn með eigið útspil í öryggis- og varnarmálum „Menn eiga ekki að vera að hnýsast í gögn sem þeim koma ekki við“ Reikna með tæplega nítján milljarða afgangi á næsta ári Tekinn í tíunda skipti dópaður og réttindalaus Uppsagnir hjá Icelandair og borgin kynnir fjárhagsáætlun næsta árs „Lífsgæðin mín hafa verið tekin aftur í burtu frá mér“ Bein útsending: Kynnir sína fyrstu fjárhagsáætlun Ölvaður en ekki barnaníðingur Líklegast að Reykjavíkurleiðin taki breytingum eftir umsagnir Sjá meira
Telur allar líkur á að fyrsta smitið á Íslandi hafi verið í janúar Sérfræðingur í ónæmisfræðum segir rökstuddan grun um að fyrsta tilfelli kórónuveirunnar megi rekja aftur til janúar 2020. 8. október 2020 16:33
Þórólfur trúir því ekki að læknar vilji láta veiruna ganga yfir sig Þórólfur Guðnason, sóttvarnalæknir, segir að allar þjóðir heims séu langt frá því að hafa hjarðónæmi fyrir kórónuveirunni sem veldur sjúkdómnum Covid-19. 8. október 2020 12:47
„Mig langar til að lifa lengur“ Sigurður G. Tómasson segist í áhættuhópi en Brynjar Níelsson segir þetta ekki eingöngu snúast um hans heilsufar. 7. október 2020 17:23
Lokunardagar leikskóla í Reykjavík tíu sinnum algengari en í öðrum stórum sveitarfélögum Innlent
Lokunardagar leikskóla í Reykjavík tíu sinnum algengari en í öðrum stórum sveitarfélögum Innlent