Kórdrengir komnir með annan fótinn í Lengjudeildina Ísak Hallmundarson skrifar 3. október 2020 15:03 Magnað ævintýri Kórdrengja heldur áfram. vísir/hulda
Kórdrengir slátruðu Fjarðabyggð 6-1 í 2. deild karla í Fjarðabyggðahöllinni í dag. Með sigrinum eru Kórdrengirnir prúðu komnir langleiðina með að tryggja sæti sitt í Lengjudeildinni á næsta tímabili, sem er næstefsta deild á Íslandi. Rubén Lozano Ibancos kom heimamönnum í Fjarðabyggð yfir eftir tíu mínútna leik en síðan voru það Kórdrengir sem áttu leikinn. Magnús Þórir Matthíasson jafnaði á 33. mínútu og fjórum mínútum síðar kom Albert Brynjar Ingason Kórdrengjum yfir. Staðan 1-2 fyrir Kórdrengi í hálfleik. Þeir buðu upp á markaveislu í seinni hálfleik, Davíð Þór Ásbjörnsson, Jordan Damachoua, Þórir Rafn Þórisson og Leonard Sigurðsson skoruðu allir eitt mark á mann og lokatölur 6-1 útisigur Kórdrengja. Ef Kórdrengir sigra einn af þeim tveimur leikjum sem þeir eiga eftir í deildinni eru þeir komnir upp í Lengjudeildina og þar með upp um þrjár deildir á þremur árum, sem væri ótrúlegt afrek.
Íslenski boltinn Mest lesið Foreldrarnir vissu ekki að hún væri bardagakona Sport „Við munum þurfa að þjást í langan tíma“ Enski boltinn „Liverpool má alls ekki leyfa Salah að yfirgefa Anfield“ Enski boltinn Blóðug hlaupaferð hjá Guðlaugu Eddu Sport Kallaði dómarann tík og rúmlega það Körfubolti Verstappen áfram hjá Red Bull Formúla 1 Atli og Eiður í KR Fótbolti Syrtir í álinn hjá Frey og félögum Fótbolti FH-ingar kynntu Birki og Braga Íslenski boltinn Chicago Bears leita nýrra leiða til að tapa leikjum Sport Fleiri fréttir Dagur Dan og félagar í undanúrslit eftir sigur á liðinu sem stoppaði Messi „Liverpool má alls ekki leyfa Salah að yfirgefa Anfield“ FH-ingar kynntu Birki og Braga „Við munum þurfa að þjást í langan tíma“ Atli og Eiður í KR Syrtir í álinn hjá Frey og félögum Real Madrid ekki í neinum vandræðum með Leganés Steve Cooper látinn taka pokann sinn hjá Leicester Sædís tvöfaldur meistari í fyrstu tilraun Hákon mættur aftur til leiks Ósannfærandi byrjun hjá Amorim Salah til bjargar og Liverpool á flugi inn í leikinn við City Jafnað í blálokin í uppgjöri Keflvíkinga í Hollandi Amanda lagði upp í dýrmætum sigri og Kolbeinn nær toppnum Framarar sótt fjóra bita í næstu deild „Hefurðu enga sómakennd?“ Fangelsisdómur hangir yfir höfði Haaland Diljá Ýr á skotskónum og OH Leuven á toppinn Héldu hreinu í fyrsta sinn manni færri megnið af leiknum Celta sótti jafntefli gegn tíu Börsungum Haraldur Árni áfram með Grindavík Sveindís funheit inn af bekknum og setti tvö Bodø/Glimt með langþráðan sigur Úlfarnir skelltu Fulham og enn bíður Villa eftir sigri Englandsmeistararnir niðurlægðir á heimavelli Gamla konan áfram taplaus Óli Valur til Blika og sagður sá dýrasti á Íslandi Cecilía búin að loka og læsa marki Inter Stefan ætlar að koma Keflavík í deild þeirra bestu Jóhann lagði upp langþráð mark Sjá meira