Lífið samstarf

Ókeypis heilsufyrirlestrar í boði NOW og Nettó

Icepharma

Síðastliðin 3 ár hafa heilsusysturnar Ragnhildur Þórðardóttir betur þekkt sem Ragga Nagli og Ásdís Ragna Einarsdóttir betur þekkt sem Ásdís grasa haldið fyrirlestra til þess að fræða fólk um heilsuvörur, vítamín og bætiefni í tengslum við Heilsudaga Nettó.

Fyrirlestrarnir hafa fengið virkilega góðar undirtektir þar sem þær hafa farið vítt og breitt um landið og hvatt landann til heilsusamlegra lífernis.

Í ljósi ástandsins hefur verið brugðið á það ráð að bjóða uppá tvenna fyrirlestra sem verða opnir öllum á facebook síðu NOW á Íslandi.

  • Miðvikudaginn 30. september, kl. 20.30 mun Ragga Nagli fara yfir hvernig eigi að nærast í núvitund.
  • Fimmtudaginn 1. október, kl. 20.30 mun Ásdís Grasa fara yfir undirstöður í heilsudrykkjum og kenna okkur að gera þrjá auðvelda heilsudrykki.

Ásdís og Ragga munu sitja fyrir svörum, áhorfendur eru því hvattir til þess að taka virkan þátt og senda inn spurningar í kommentum á meðan á fyrirlestrunum stendur. Við hvetjum alla þá sem hafa áhuga á að horfa á fyrirlestrana. Fyrirlestrarnir munu birtast live á facebook.

Heilsudagar Nettó standa nú yfir og klárast þann 4.október. Á heilsudögum má finna mikið úrval af heilsuvörum, vítamínum og bætiefnum á 25% afslætti.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.