Sprengja fannst undir háspennulínum á Sandskeiði Kristín Ólafsdóttir skrifar 23. september 2020 13:36 Sprengjan fannst undir háspennulínum. Landhelgisgæslan
Sprengikúla úr seinna stríði fannst undir háspennulínum á Sandskeiði í gær. Sprengjusérfræðingar Landhelgisgæslunnar færðu sprengikúluna og eyddu henni, að því er fram kemur í tilkynningu frá Landhelgisgæslunni. Séraðgerða- og sprengjueyðingarsveit Landhelgisgæslunnar var kölluð út á sjötta tímanum í gær að beiðni lögreglu vegna sprengikúlunnar, sem fannst við línuveg á Sandskeiði. Sprengikúlan lá undir þremur háspennulínum sem liggja til höfuðborgarsvæðisins. Samstarf viðbragðsaðila gekk vel, að því er segir í tilkynningu.Landhelgisgæslan Vegna staðsetningar sprengikúlunnar þótti öruggast að færa hana úr stað til að koma í veg fyrir tjón á háspennulínunum. Þegar virk sprengikúla er færð úr stað er mikilvægt að það sé gert af þrautþjálfuðum sprengjusérfræðingum sem hafa sérhæfðan búnað til verksins, að því er segir í tilkynningu. Færa þurfti sprengjuna úr stað til að gæta fyllsta öryggis.Landhelgisgæslan Óskað var eftir sjúkrabíl frá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu af öryggisástæðum eins og alltaf er gert ef færa þarf sprengju. Sprengikúlan var færð á öruggan stað og sprengd. Fram kemur í tilkynningu Landhelgisgæslunnar að eyðing kúlunnar hafi gengið vel, sem og samstarf allra viðbragðsaðila. Lagt á ráðin.Landhelgisgæslan
Landhelgisgæslan Kópavogur Mest lesið Dæmdur fyrir brot gegn fimmtán börnum í viðbót Innlent Keilusambandið sakað um djúpstæða spillingu Innlent Vó að æru Margeirs með því að færa hann til í starfi Innlent Láta heiladauða konu ganga áfram með fóstur vegna þungunarrofsbanns Erlent Sýknaðir af ákæru fyrir að brjótast inn í eigið hús Innlent „Nú er verkstjórn tekin við sem gengur í málið“ Innlent Úlfar heldur fullum launum í heilt ár Innlent Óvíst hvar börnin lenda í haust Innlent Óásættanlegar kröfur frá Rússum á stuttum fundi Erlent Tugmilljóna gjaldþrot meðhöndlarans Innlent Fleiri fréttir Sánuferðir hafi svipuð áhrif á hjartað og líkamsrækt Segir ríkið bera ábyrgð í máli mannsins á Hverfisgötu Björgunarmiðstöð byggð á Flúðum Eftirspurn á hlutabréfamarkaði mikil og blómstrandi gróður Sýknaðir af ákæru fyrir að brjótast inn í eigið hús Hvetja stjórnvöld í Ísrael til að breyta stefnu sinni tafarlaust Hefur áhyggjur af öryggi skólabarna í Laugardal Úlfar heldur fullum launum í heilt ár Keilusambandið sakað um djúpstæða spillingu Umferðarljós við gatnamót Kringlumýrarbrautar og Miklubrautar óvirk Óheillaskref að áfengi sé selt á vellinum Mikið viðbragð Gæslunnar vegna veikinda langt úti á hafi Tugmilljóna gjaldþrot meðhöndlarans Bein útsending: Sterkari saman - Þjóðarsjúkrahús í 25 ár Afstaða fær 600 þúsund í verðlaun frá Reykjavíkurborg Dæmdur fyrir brot gegn fimmtán börnum í viðbót Sakar RÚV um óvandaðan fréttaflutning um fjármál borgarinnar Rafmagnslaust á Granda Nítján í haldi vegna fíkniefnainnflutnings um Keflavíkurflugvöll Mál Margeirs til Landsréttar Fjármálaráðherra ánægður með söluna á Íslandsbanka Hvetja kattaeigendur til að setja kettina í útivistarbann „Nú er verkstjórn tekin við sem gengur í málið“ Þrír grunaðir í tengslum við brunann á Stuðlum Ökumenn séu oft með óþarfa munnsöfnuð og fingurinn á lofti Vó að æru Margeirs með því að færa hann til í starfi Óvíst hvar börnin lenda í haust Kölluð út vegna slagsmála og svo aftur vegna berserksgangs sama manns Villta vestrið ríki á íþróttaviðburðum og kalla eftir reglum Ísland geti orðið fyrirmyndarríki í fangelsismálum Sjá meira