Lennon skorað helmingi fleiri mörk en hann ætti að vera með Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 16. september 2020 21:30 Samkvæmt xG tölfræðinni ætti Steven Lennon að vera búinn að skora helmingi færri mörk en hann hefur skorað. vísir/daníel FH-ingurinn Steven Lennon er markahæsti leikmaður Pepsi Max-deildar karla með þrettán mörk. Samkvæmt xG tölfræðinni svokölluðu ætti Lennon bara að vera búinn að skora 6,6 mörk í sumar. XG tölfræðin, eða Expected Goals, reiknar hversu mörg mörk lið og leikmenn eiga að skora miðað við hversu góð færi þau fá. Lennon skorar því slatta af mörkum úr færum sem flestir framherjar í deildinni myndu ekki skora úr. Með öðrum orðum breytir hann hálffærum í góð færi með spyrnutækni og útsjónarsemi sinni. Næstmarkahæsti leikmaður deildarinnar, Blikinn Thomas Mikkelsen, er efstur á xG listanum. Samkvæmt xG tölfræðinni á hann að vera búinn að skora þrettán mörk en hefur gert tólf. Valsmaðurinn Patrick Pedersen er búinn að skora níu mörk sem er á pari við tölfræðina. Víkingurinn Óttar Magnús Karlsson er einnig með níu mörk en samkvæmt xG tölfræðinni ætti hann að vera búinn að skora rúmlega sex mörk. Markahæstu leikmenn Pepsi Max-deildar karla Steven Lennon (FH) - 13 Thomas Mikkelsen (Breiðablik) - 12 Patrick Pedersen (Valur) - 9 Óttar Magnús Karlsson (Víkingur) - 9 Valdimar Þór Ingimundarson (Fylkir) - 8 Stefán Teitur Þórðarson (ÍA) - 7 Viktor Jónsson (ÍA) - 6 Tryggvi Hrafn Haraldsson (ÍA) - 6 Kristinn Steindórsson (Breiðablik) - 6 Pablo Punyed (KR) - 6 Mörk samkvæmt xG tölfræðinni Thomas Mikkelsen (Breiðablik) - 12,9 Patrick Pedersen (Valur) - 8,9 Valdimar Þór Ingimundarson (Fylkir) - 8,6 Steven Lennon (FH) - 6,6 Guðmundur Steinn Hafsteinsson (KA) - 6,6 Tryggvi Hrafn Haraldsson (ÍA) - 6,4 Óttar Magnús Karlsson (Víkingur) - 6,3 Kristján Flóki Finnbogason (KR) - 5,1 Brynjólfur Andersen Willumsson (Breiðablik) - 4,8 Sigurður Egill Lárusson (Valur) - 4,7 Pepsi Max-deild karla FH Mest lesið „Getum ekki alltaf spilað á sama liðinu“ Handbolti Á sjúkrahús eftir yfirlið á landsleiknum Handbolti Kristín Evrópumeistari og bætti tvö heimsmet Sport Magnaður sigur Elísu og brautarmet á Ítalíu Sport Dagskráin: Úrslitaleikur Arsenal og City Sport „Hellings tækifæri fyrir unga menn úti á landi“ Körfubolti Þórsarar stofna söfnunarreikning vegna sektar KKÍ Körfubolti Sjáðu sjóðheitan Kristian halda áfram að skora Fótbolti Var að vinna maraþon en var þá meinaður aðgangur að markinu Sport Ekitiké fór grátandi af velli Enski boltinn Fleiri fréttir Víkingar unnu titil og tvo leiki sama dag Sjáðu öll mörkin, rauða spjaldið og vítin þegar Fylkir fagnaði titlinum Fylkir - KR 8-7 | Ólafur Kristófer hetja Fylkis sem vann Lengjubikarinn í fyrsta skipti „Glasið er hálffullt hérna í Vesturbænum“ Hyggst læra af mistökum Stjörnunnar og sér tækifæri gegn KR Sýning hjá Hrafnhildi Ásu í kvöld 37 ára Gylfi stefnir á EM 2028 Sögulegur samningur Víkinga Þjálfari HK-kvenna braut siðareglur „Hausinn minn ekki víraður eins og hinir“ Heimir Guðjóns er kominn með Fylkismenn alla leið í úrslitaleikinn Kemur alltaf í Þór Blikakonur með þriðja stórsigurinn í röð Sjáðu mörkin er KR valtaði yfir Stjörnuna og flaug áfram í úrslitaleikinn Fimmtán ára skoraði tvö þegar KR fór í úrslit Íslenskukunnáttan takmarkast við „kjúklingawingers“ Tilfinningarík kveðjustund eftir þriggja ára baráttu David James þjálfar markverði Vals Sektir fyrir klúður í skýrslu og brotthvarf í hálfleik Föstudagsfjör hjá KA: Svíi mættur í kjölfar Danijels Danijel Djuric gerir þriggja ára samning við KA Valsmenn hafi sýnt vanvirðingu: „Gamla góða kjaftæðið“ „Gátum ekki látið hann stjórna því“ Baldé snýr aftur til bikarmeistaranna Fylkir á barmi undanúrslita eftir sigur á ÍBV Sjáðu fimmu Atla Sigurjóns á móti Val í gær Fleury fór á kostum gegn FH Atli Sigurjóns skoraði fimm mörk og fór illa með Val Víkingurinn fljótur að láta til sín taka í Keflavík Meistararnir skoruðu sjö mörk gegn Víkingi Sjá meira
FH-ingurinn Steven Lennon er markahæsti leikmaður Pepsi Max-deildar karla með þrettán mörk. Samkvæmt xG tölfræðinni svokölluðu ætti Lennon bara að vera búinn að skora 6,6 mörk í sumar. XG tölfræðin, eða Expected Goals, reiknar hversu mörg mörk lið og leikmenn eiga að skora miðað við hversu góð færi þau fá. Lennon skorar því slatta af mörkum úr færum sem flestir framherjar í deildinni myndu ekki skora úr. Með öðrum orðum breytir hann hálffærum í góð færi með spyrnutækni og útsjónarsemi sinni. Næstmarkahæsti leikmaður deildarinnar, Blikinn Thomas Mikkelsen, er efstur á xG listanum. Samkvæmt xG tölfræðinni á hann að vera búinn að skora þrettán mörk en hefur gert tólf. Valsmaðurinn Patrick Pedersen er búinn að skora níu mörk sem er á pari við tölfræðina. Víkingurinn Óttar Magnús Karlsson er einnig með níu mörk en samkvæmt xG tölfræðinni ætti hann að vera búinn að skora rúmlega sex mörk. Markahæstu leikmenn Pepsi Max-deildar karla Steven Lennon (FH) - 13 Thomas Mikkelsen (Breiðablik) - 12 Patrick Pedersen (Valur) - 9 Óttar Magnús Karlsson (Víkingur) - 9 Valdimar Þór Ingimundarson (Fylkir) - 8 Stefán Teitur Þórðarson (ÍA) - 7 Viktor Jónsson (ÍA) - 6 Tryggvi Hrafn Haraldsson (ÍA) - 6 Kristinn Steindórsson (Breiðablik) - 6 Pablo Punyed (KR) - 6 Mörk samkvæmt xG tölfræðinni Thomas Mikkelsen (Breiðablik) - 12,9 Patrick Pedersen (Valur) - 8,9 Valdimar Þór Ingimundarson (Fylkir) - 8,6 Steven Lennon (FH) - 6,6 Guðmundur Steinn Hafsteinsson (KA) - 6,6 Tryggvi Hrafn Haraldsson (ÍA) - 6,4 Óttar Magnús Karlsson (Víkingur) - 6,3 Kristján Flóki Finnbogason (KR) - 5,1 Brynjólfur Andersen Willumsson (Breiðablik) - 4,8 Sigurður Egill Lárusson (Valur) - 4,7
Steven Lennon (FH) - 13 Thomas Mikkelsen (Breiðablik) - 12 Patrick Pedersen (Valur) - 9 Óttar Magnús Karlsson (Víkingur) - 9 Valdimar Þór Ingimundarson (Fylkir) - 8 Stefán Teitur Þórðarson (ÍA) - 7 Viktor Jónsson (ÍA) - 6 Tryggvi Hrafn Haraldsson (ÍA) - 6 Kristinn Steindórsson (Breiðablik) - 6 Pablo Punyed (KR) - 6
Thomas Mikkelsen (Breiðablik) - 12,9 Patrick Pedersen (Valur) - 8,9 Valdimar Þór Ingimundarson (Fylkir) - 8,6 Steven Lennon (FH) - 6,6 Guðmundur Steinn Hafsteinsson (KA) - 6,6 Tryggvi Hrafn Haraldsson (ÍA) - 6,4 Óttar Magnús Karlsson (Víkingur) - 6,3 Kristján Flóki Finnbogason (KR) - 5,1 Brynjólfur Andersen Willumsson (Breiðablik) - 4,8 Sigurður Egill Lárusson (Valur) - 4,7
Pepsi Max-deild karla FH Mest lesið „Getum ekki alltaf spilað á sama liðinu“ Handbolti Á sjúkrahús eftir yfirlið á landsleiknum Handbolti Kristín Evrópumeistari og bætti tvö heimsmet Sport Magnaður sigur Elísu og brautarmet á Ítalíu Sport Dagskráin: Úrslitaleikur Arsenal og City Sport „Hellings tækifæri fyrir unga menn úti á landi“ Körfubolti Þórsarar stofna söfnunarreikning vegna sektar KKÍ Körfubolti Sjáðu sjóðheitan Kristian halda áfram að skora Fótbolti Var að vinna maraþon en var þá meinaður aðgangur að markinu Sport Ekitiké fór grátandi af velli Enski boltinn Fleiri fréttir Víkingar unnu titil og tvo leiki sama dag Sjáðu öll mörkin, rauða spjaldið og vítin þegar Fylkir fagnaði titlinum Fylkir - KR 8-7 | Ólafur Kristófer hetja Fylkis sem vann Lengjubikarinn í fyrsta skipti „Glasið er hálffullt hérna í Vesturbænum“ Hyggst læra af mistökum Stjörnunnar og sér tækifæri gegn KR Sýning hjá Hrafnhildi Ásu í kvöld 37 ára Gylfi stefnir á EM 2028 Sögulegur samningur Víkinga Þjálfari HK-kvenna braut siðareglur „Hausinn minn ekki víraður eins og hinir“ Heimir Guðjóns er kominn með Fylkismenn alla leið í úrslitaleikinn Kemur alltaf í Þór Blikakonur með þriðja stórsigurinn í röð Sjáðu mörkin er KR valtaði yfir Stjörnuna og flaug áfram í úrslitaleikinn Fimmtán ára skoraði tvö þegar KR fór í úrslit Íslenskukunnáttan takmarkast við „kjúklingawingers“ Tilfinningarík kveðjustund eftir þriggja ára baráttu David James þjálfar markverði Vals Sektir fyrir klúður í skýrslu og brotthvarf í hálfleik Föstudagsfjör hjá KA: Svíi mættur í kjölfar Danijels Danijel Djuric gerir þriggja ára samning við KA Valsmenn hafi sýnt vanvirðingu: „Gamla góða kjaftæðið“ „Gátum ekki látið hann stjórna því“ Baldé snýr aftur til bikarmeistaranna Fylkir á barmi undanúrslita eftir sigur á ÍBV Sjáðu fimmu Atla Sigurjóns á móti Val í gær Fleury fór á kostum gegn FH Atli Sigurjóns skoraði fimm mörk og fór illa með Val Víkingurinn fljótur að láta til sín taka í Keflavík Meistararnir skoruðu sjö mörk gegn Víkingi Sjá meira