Sjáðu öll mörkin úr Pepsi Max-deild karla í gær Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 14. september 2020 10:49 Stjörnumenn fagna. Þeir unnu dramatískan sigur á Íslandsmeisturum KR-inga í gær. vísir/hulda margrét
Sextán mörk voru skoruð í leikjunum fimm í Pepsi Max-deild karla í gær. Síðasti leikur 16. umferðar fer fram í kvöld þegar Grótta tekur á móti Fjölni í nýliðaslag. Leikurinn verður sýndur beint á Stöð 2 Sport. Steven Lennon skoraði tvö mörk þegar FH sigraði Breiðablik, 3-1, í Kaplakrika. Lennon er markahæstur í Pepsi Max-deildinni með þrettán mörk. Atli Guðnason var einnig á skotskónum fyrir FH sem hefur unnið fimm af sjö deildarleikjum sínum síðan Logi Ólafsson og Eiður Smári Guðjohnsen tóku við liðinu. Viktor Karl Einarsson skoraði mark Breiðabliks. Stjarnan vann endurkomusigur á KR, 1-2, á Meistaravöllum. Kristján Flóki Finnbogason kom KR-ingum yfir á 63. mínútu og allt stefndi í sigur KR. Guðjón Baldvinsson kom inn á sem varamaður á 79. mínútu og sjö mínútum síðar lagði hann upp mark fyrir Daníel Laxdal. Þegar mínúta var til leiksloka skoraði Guðjón svo sigurmark Stjörnumanna sem eru enn ósigraðir í deildinni. Topplið Vals vann sinn sjöunda leik í röð þegar liðið sigraði Víking, 2-0, á Origo-vellinum. Kantmennirnir Aron Bjarnason og Sigurður Egill Lárusson skoruðu mörk Valsmanna. HK vann fjórða deildarsigurinn í röð á heimavelli þegar liðið bar sigurorð af ÍA, 3-2. Ásgeir Marteinsson, Ólafur Örn Eyjólfsson og Jón Arnar Barðdal skoruðu mörk HK-inga sem komust upp í 7. sæti deildarinnar með sigrinum. Marcus Johannsson og Stefán Teitur Þórðarson skoruðu fyrir Skagamenn. Þá vann KA Fylki á Greifavellinum með tveimur mörkum gegn engu. Hallgrímur Mar Steingrímsson og Ásgeir Sigurgeirsson skoruðu mörk KA-manna sem unnu þarna sinn annan sigur í sumar. KA var manni færri nær allan seinni hálfleikinn eftir að Sveinn Margeir Hauksson fékk sitt annað gula spjald. Undir lokin varði Kristijan Jajalo vítaspyrnu Valdimars Þórs Ingimundarsonar. Mörkin úr leikjum gærdagsins má sjá hér fyrir neðan. Klippa: FH 3-1 Breiðablik Klippa: KR 1-2 Stjarnan Klippa: Valur 2-0 Víkingur Klippa: HK 3-2 ÍA Klippa: KA 2-0 Fylkir
Pepsi Max-deild karla Tengdar fréttir Arnar: Of margir okkar sem slökkva á sér á mikilvægum augnablikum Arnar Gunnlaugsson þjálfari Víkings R. segir sumarið einfaldlega vonbrigði hjá liðinu. „Þetta er búið að vera „disaster“ frá því í KR-leiknum [í 4. umferð], stöngin út allan tímann,“ sagði Arnar eftir 2-0 tap gegn Val í kvöld. 13. september 2020 22:22 Viktor Bjarki: Er búinn að missa röddina Aðstoðarþjálfari HK, Viktor Bjarki Arnarsson, var ánægður eftir sigurinn á ÍA í Kórnum í kvöld. 13. september 2020 22:07 Umfjöllun og viðtöl: Valur - Víkingur 2-0 | Ekkert fær stöðvað Valsmenn Valsmenn hafa fagnað saman sumarlangt, eins og þeir sungu saman í klefanum að hætti Eyjamanna í kvöld eftir 2-0 sigur á Víkingi í Pepsi Max-deildinni. 13. september 2020 22:35 Eiður Smári: Þykir nánast jafn vænt um hann og börnin mín „Þarft ekki að spyrja mig, ég er þjálfarinn hans. Mér þykir nánast jafn vænt um hann og börnin mín. Það á við um alla leikmenn liðsins.“ 13. september 2020 19:05 Umfjöllun og viðtöl: HK - ÍA 3-2 | Fjórði heimasigur HK í röð HK-ingar unnu góðan sigur á Skagamönnum, 3-2, í Kórnum í kvöld. HK hefur nú unnið fjóra leiki á heimavelli í Pepsi Max-deildinni í röð. 13. september 2020 22:00 Umfjöllun og viðtöl: FH - Breiðablik 3-1 | FH-ingar nálgast toppsætið Steven Lennon skoraði tvö mörk þegar FH vann 3-1 sigur á Breiðablik í dag. Umfjöllun og viðtöl væntanleg á Vísi. 13. september 2020 19:25 Óskar Örn jafnaði leikjamet Birkis Óskar Örn Hauksson jafnaði í dag leikjamet Birkis Kristinssonar í efstu deild. 13. september 2020 15:53 Umfjöllun og viðtöl: KA - Fylkir 2-0 | Langþráður sigur KA-manna KA vann sinn annan leik á tímabilinu þegar Fylkismenn heimsóttu Greifavöllinn á Akureyri í dag. 13. september 2020 19:11 Umfjöllun og viðtöl: KR 1-2 Stjarnan | Ótrúlegar lokamínútur þegar Stjarnan vann í Vesturbænum Stjarnan vann KR í ótrúlegum leik. 13. september 2020 16:55 Mest lesið Krefst þess að lög kærustu hans verði ekki spiluð á leikjum Chiefs Sport „Aldrei séð svona ógnandi hegðun dómara til leikmanns“ Sport „Bæði að öskra á hana og í einhverri störukeppni við hana“ Handbolti Skýrsla Ágústs: Brothætt snilld sem þarf að byggja upp Handbolti Brasilíumenn byrja vel undir stjórn Menezes - myndband Fótbolti „Það féll ekki mikið með okkur“ Sport „Okkur sjálfum að kenna“ Enski boltinn Meiðsladraugrinn lætur Alexander-Arnold ekki í friði hjá Real Madrid Fótbolti Heimir Hallgrímsson og Eyjólfur Sverrisson spá báðir vítakeppni Íslenski boltinn United missti frá sér sigurinn í lokin Enski boltinn Fleiri fréttir Þróttur keypti Adam Árna frá Grindavík Ástæðan fyrir því að Þorlákur hætti: „Ég var ekki hrifinn af þessu“ Þorlákur sagði upp störfum hjá ÍBV Þrjár ungar KR-konur leggja skóna á hilluna Murielle elti Óskar í Garðabæinn Segir dökk ský yfir íslensku knattspyrnuhreyfingunni Rúnar sækir gamlan félaga sinn inn í þjálfarateymið Fór frá því að mæta á landsliðsæfingu í það að vera fárveikur í öndunarvél Jasmín kom til að vinna titla og er farin frá Val Framlengir við Breiðablik og nálgast fimm hundruð leikina KSÍ skiptir um mótakerfi og smíðar nýjan vef Damir Muminovic til Grindavíkur Vestramenn sækja son sinn suður Einn fljótasti leikmaður Bestu deildarinnar orðinn Þróttari Aron Jó leystur undan samningi hjá Val Kynntu fyrst Loga Ólafs en svo Jóa Kalla sem á að koma FH á toppinn Atli kveður KR og flytur norður Theodór Elmar hættur hjá KR Hrannar Bogi inn eftir brotthvarf Caulkers Segir ónefndan aðila hafa unnið gegn sér hjá Breiðabliki Alex Freyr frá Fram í Njarðvík Víkingar fá ungan og spennandi kantmann Nýliðarnir fá níutíu leikja mann Jónatan og formaður hissa á tali um KR-löngun Víkingar vilja finna nýtt nafn á Safamýrarsvæðið og biðja um hjálp „Ég væri miklu frekar til í að skipta deildinni í efri og neðri“ Fara loksins inn í íbúðina sem þau keyptu fyrir tveimur árum Árni Snær áfram milli stanganna hjá Stjörnunni Frá Klaksvík á Krókinn Samningi Caulkers við Stjörnuna rift Sjá meira
Arnar: Of margir okkar sem slökkva á sér á mikilvægum augnablikum Arnar Gunnlaugsson þjálfari Víkings R. segir sumarið einfaldlega vonbrigði hjá liðinu. „Þetta er búið að vera „disaster“ frá því í KR-leiknum [í 4. umferð], stöngin út allan tímann,“ sagði Arnar eftir 2-0 tap gegn Val í kvöld. 13. september 2020 22:22
Viktor Bjarki: Er búinn að missa röddina Aðstoðarþjálfari HK, Viktor Bjarki Arnarsson, var ánægður eftir sigurinn á ÍA í Kórnum í kvöld. 13. september 2020 22:07
Umfjöllun og viðtöl: Valur - Víkingur 2-0 | Ekkert fær stöðvað Valsmenn Valsmenn hafa fagnað saman sumarlangt, eins og þeir sungu saman í klefanum að hætti Eyjamanna í kvöld eftir 2-0 sigur á Víkingi í Pepsi Max-deildinni. 13. september 2020 22:35
Eiður Smári: Þykir nánast jafn vænt um hann og börnin mín „Þarft ekki að spyrja mig, ég er þjálfarinn hans. Mér þykir nánast jafn vænt um hann og börnin mín. Það á við um alla leikmenn liðsins.“ 13. september 2020 19:05
Umfjöllun og viðtöl: HK - ÍA 3-2 | Fjórði heimasigur HK í röð HK-ingar unnu góðan sigur á Skagamönnum, 3-2, í Kórnum í kvöld. HK hefur nú unnið fjóra leiki á heimavelli í Pepsi Max-deildinni í röð. 13. september 2020 22:00
Umfjöllun og viðtöl: FH - Breiðablik 3-1 | FH-ingar nálgast toppsætið Steven Lennon skoraði tvö mörk þegar FH vann 3-1 sigur á Breiðablik í dag. Umfjöllun og viðtöl væntanleg á Vísi. 13. september 2020 19:25
Óskar Örn jafnaði leikjamet Birkis Óskar Örn Hauksson jafnaði í dag leikjamet Birkis Kristinssonar í efstu deild. 13. september 2020 15:53
Umfjöllun og viðtöl: KA - Fylkir 2-0 | Langþráður sigur KA-manna KA vann sinn annan leik á tímabilinu þegar Fylkismenn heimsóttu Greifavöllinn á Akureyri í dag. 13. september 2020 19:11
Umfjöllun og viðtöl: KR 1-2 Stjarnan | Ótrúlegar lokamínútur þegar Stjarnan vann í Vesturbænum Stjarnan vann KR í ótrúlegum leik. 13. september 2020 16:55