Tölvurisinn Microsoft tilkynnti um það í nótt að ekkert verði af fyrirhuguðum kaupum þess á starfsemi kínverska samskiptamiðlilsins TikTok í Bandaríkjunum.
Miklar deilur hafa staðið á milli Kínverja og Bandaríkjamanna vegna miðilsins og hafði Donald Trump Bandaríkjaforseti hótað því að loka fyrir notkun forritsins í Bandaríkjunum, ef ekki yrði búið að selja það fyrir 15. september.
Trump heldur því fram að TikTok sé ógn við þjóðaröryggi Bandaríkjamanna og því verði það að vera í bandarískri eigu, eigi það að fá að halda áfram þar í landi.
Nú er talið líklegt að annar risi á þessum markaði, bandaríska félagið Oracle, hlaupi til og geri tilboð á síðustu stundu í samskiptamiðilinn vinsæla.