Þakið fauk af og bíll tókst á loft Kristín Ólafsdóttir skrifar 7. febrúar 2020 07:56 Eyðileggingin var mikil eftir óveðrið. Hafþór Gunnarsson
Þak fauk af vélaskemmu í Minni-Hlíð í Bolungarvík í gærmorgun í miklu hvassviðri. Þakið fauk á harðfiskhjalla þar sem fiskur hékk til þurrkunar. Tjónið á þakinu, hjallanum og fisknum er talið hlaupa á milljónum króna. Vindhviður mældust allt að 44 metrar á sekúndu í Bolungarvík í gær og náðu allt að 60 metrum á sekúndu í Bolafjalli. Björgunarsveitir og eigendur skemmunnar unnu í gær að því að týna saman þakplötur og fisk og koma til förgunar. Greint var frá málinu í kvöldfréttum Stöðvar 2 og sjá má myndir af eyðileggingunni á staðnum í spilaranum hér að neðan. Sigurgeir G. Jóhannsson, bóndi og verktaki í Minni-Hlíð, segir í samtali við Morgunblaðið í morgun að grjótkastið hafi verið gríðarlegt – svo mikið að rúður á bæði íbúðarhúsi og sumarhúsi hafi gatast eins og eftir haglabyssu. Hann lýsir því jafnframt að hann hafi verið á leið milli húsa þegar kom „heiftarkviða“. Hann hafi þá kastað sér í jörðina og horft á pallbíl Ratsjárstofnunar, sem stóð við bæinn, takast á loft og lenda á hjólunum nokkrum metrum neðar.
Bolungarvík Veður Mest lesið Sádar sagðir hafa sent fjórar viðvaranir Erlent Skutu niður eigin herþotu yfir Rauðahafi Erlent „Kurr í greininni í dag um að þetta skuli hvort tveggja vera á matseðlinum“ Innlent Yfirgaf jólatónleika í sjúkrabíl Innlent Færeyingar fagna tvennum göngum Erlent Þakklæti, auðmýkt, rok og söngur ríkisstjórnarinnar Innlent Íslenskur skurðlæknir hlúir að fólki í Magdeburg Erlent Vegir víða hálir á morgun og blint á fjallvegum Innlent Stjórnarleiðtogar sitja fyrir svörum á Sprengisandi Innlent Mest skreytta jólahúsið í Hveragerði Innlent Fleiri fréttir Skortur á sjúkragæslu á viðburðum hafi áhrif á neyðarþjónustu Eftirliti á viðburðum ábótavant og skynsemi í orkumálum Vegir víða hálir á morgun og blint á fjallvegum Stjórnarleiðtogar sitja fyrir svörum á Sprengisandi „Afskaplega róleg“ nótt hjá lögreglumönnum Þakklæti, auðmýkt, rok og söngur ríkisstjórnarinnar „Kurr í greininni í dag um að þetta skuli hvort tveggja vera á matseðlinum“ Breytingar á ráðuneytum taka ekki gildi fyrr en í mars Mest skreytta jólahúsið í Hveragerði Yfirgaf jólatónleika í sjúkrabíl Ný ríkisstjórn Íslands: „Við erum orðnar vinkonur“ Allt um nýja ríkisstjórn Íslands í kvöldfréttum Krónan muni veikjast og allir halda að sér höndum Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB eigi síðar en 2027 „Mjög þunn súpa, lítið í henni“ Ætla að fjölga lögreglumönnum verulega Vilja ekki plast eða vír á leiðisskreytingar í kirkjugörðum Þetta eru ráðherrar nýrrar ríkisstjórnar Allir punktar stefnuyfirlýsingar ríkisstjórnarinnar Kallar eftir stillingu: „Menn eru saklausir uns sekt er sönnuð!“ Full tilhlökkunar að taka við nýju ráðuneyti „Það verður unnið fyrir heimilin í landinu“ Ný ríkisstjórn og áfall í Magdeburg „Ég held að þetta sé góður dagur fyrir þjóðina“ Áslaug Arna bjargaði kafnandi konu á veitingastað Tveir ungir á 140 kílómetra hraða Vaktin: Ný ríkisstjórn kynnt fyrir landanum Í eðli Sólveigar að vera með hnefann á lofti Hvetja Íslendinga á svæðinu til að láta vita af sér „Maður mun sakna þess mjög“ Sjá meira