Einn flottasti kómíker allra tíma genginn Jakob Bjarnar skrifar 23. janúar 2020 14:22 Monty Python-gengið: Mikael Palin, John Cleese, Eric Idle, Terry Jones og Terry Gilliam. Sá sjötti, Graham Chapman lést 1989. Getty
Leikarinn, leikstjórinn og höfundurinn, hinn welski Terry Jones (1942-2020), andaðist í vikunni, 77 ára gamall. Hann er einkum þekktur fyrir að vera hluti hins breska grínteymis Monty Python sem stóð að gerð sjónvarpsþátta og kvikmynda uppúr miðri síðustu öld. Jones hlaut sérstök heiðursverlaun BAFTA fyrir ævistarfið árið 2016; einstakt framlag til kvikmynda og sjónvarpsþáttagerðar. Fyrir utan kómíkina lagði hann á seinni árum áherslu á sagnfræði fyrir sjónvarp. Vart ætti að þurfa að fjölyrða um gríðarleg áhrif Monty Python á glens og gaman; húmor í sinni víðustu mynd þar með hugsunarhátt allan og ná þau áhrif um heim allan. Meðal annars hingað til Íslands. Varð kjaftstopp andspænis átrúnaðargoði sínu Kollegi Jones, Karl Ágúst Úlfsson, minnist hans á sinni Facebooksíðu með eftirfarandi orðum. „Terry Jones var sá eini í Monty Python genginu sem ég hitti og tók í höndina á. Mér þótti hann þá og þykir enn einhver flottasti kómíker allra tíma, leikari, höfundur, sagnfræðingur og leikstjóri bestu gamanmyndar sem mannsandinn hefur af sér getið, Life of Brian. Terry Jones. Monty Python hafði gríðarleg áhrif um heim allan, til dæmis á Spaugstofuna. En Karl Ágúst hitti eitt sinn Jones.Getty Við skiptumst ekki á mörgum orðum - líklega var ég nánast kjaftstopp að standa andspænis þessum snillingi og aðdáunargoði unglingsáranna - og enn í dag eru mér að detta í hug spurningar sem ég hefði viljað spyrja hann. Til dæmis þessi: Nú þegar þú gengur inn í eilífðina, hvor heldurðu að taki á móti þér, Jesús eða Brian? Hvíldu í friði, kæri Terry, og hafðu þökk fyrir hláturinn og allt annað sem þú gafst okkur sem horfðum.“ Ef þetta er ekki skilgreining á elliglöpum … Félagi Jones og samstarfsmaður til áratuga, Sir Mikael Palin, ræddi við BBC um Terry Jones. Hann segir að það sem einkum hafi einkennt Jones hafi verið ákefð og skapandi ástríða. Terry Jones þjáðist síðustu ár ævi sinnar af elliglöpum. Palin segist hafa heimsótt hann reglulega allt undir það síðasta og meðal annars lesið upp fyrir hann úr Dr Fegg´s Encyclopaedia of All World Knows, bók sem þeir skrifuðu saman. En, Jones var þá að miklu leyti horfinn inn í sinn hugarheim. Palin las brot úr bókinni og heyrði þá í fyrsta skipti í langan tíma alvöru hlátur, það kumraði í Terry. Atriði úr sjónvarpsþáttum Monty Python, sem ullu straumhvörfum í allri gerð gríns. Palin segir þetta hafa verði einstaklega uppörvandi og kannski best af öllu var að Terry hló bara að þeim bútum sem hann sjálfur hafði skrifað. „Ef þetta er ekki skilgreining á elliglöpum, þá veit ég ekki hvað það er.“ Þegar Terry komst ekki inn á Kaffibarinn Balta til mikillar hrellingar Grímur Atlason segir skemmtilega sögu af Terry Jones á sinni Faceboosíðu en í leikinn blandast ekki minni menn en sjálfur allsherjargoði og Baltasar Kormákur. „Eftirfarandi saga er sögð eins og ég heyrði hana og minni mitt hefur leikið mig. Terry Jones kom eitt sinn til Íslands og fór út að borða með vini sínum Hilmari Erni allsherjargoða og tónskáldi. Eftir matinn var farið út á lífið og stefnt á Kaffibarinn (í það minnsta 20 ár síðan) sem þá var heitur eins og í dag. Að vanda var þarna löng röð og erfitt að komast inn nema maður væri eitthvað. Eftir að hvert barnið hafði gengið framhjá þeim félögum rakleiðis inn spurðu þeir félagar hvort ekki væri hægt að komast inn. „Það er fullt kallar mínir - þið þurfið bara að bíða.“ Þessi söngur Terry Jones var að einhverju leyti á undan sinni samtíð. Þeir gengu þá í burtu og rákust á Baltasar Kormák sem þá var eigandi Kaffibarsins. Hann var eins og margir aðdáandi Terry og vildi allt fyrir hann gera en varð heldur lúpulegur þegar hann heyrði að Terry Jones og Hilmar Örn væru ekki nægjanlega þekktir fyrir Kaffibarinn. Góð saga. Hvíl í friði þú mikli meistari.“ Terry Jones í róló á Íslandi Ýmsir minnast Terry Jones á samfélagsmiðlum og þeirra á meðal er alþingismaðurinn og rithöfundurinn Guðmundur Andri Thorsson en hann gerðist svo frægur að hitta manninn. „Terry Jones var eina frægðarmennið sem ég hef hitt á ævinni, svo ég muni. Það var í matarboði hjá nágrönnum okkar og vinum Rögnu og Hilmari Erni, en þeir Terry og HÖH voru aldavinir. Ánægjulegur maður. Þetta var á fögru sumarkvöldi og einhvern tímann seint um kvöldið fórum við öll út á róló við hliðina á húsinu, stelpurnar okkar sem þá voru litlar og fullorðna fólkið, og nutum kvöldsólarinnar og kyrrðarinnar og lékum okkur að því að láta okkur rúlla niður litla grasbrekku sem þarna var – mest þó hann og stelpurnar, aftur og aftur, og það var eins og hann hefði ekki gert neitt jafn skemmtilegt árum saman ...“
Andlát Bíó og sjónvarp Mest lesið Veit um fjögur sjálfsvíg tengd gervigreind Innlent Þjófur fúlsaði við málverkunum en tók nóg af bjór Innlent Farmur flugvélaeldsneytis hafi ekki uppfyllt gæðastaðla Innlent Fannar bæjarstjóri kveður Grindavík Innlent Enn deilt um sameiningu: „Í raun sé verið að leggja niður Háskólann á Akureyri“ Innlent Vill drónavarnir á Íslandi Innlent Ölvaðir og í annarlegu ástandi Innlent Lögreglan vilji kæfa glæpahópa í fæðingu Innlent Trans kærasta Robinsons hafi verið „skelfingu lostin“ Erlent Ekki blettur á ferlinum að missa vinnuna Innlent Fleiri fréttir Ölvaðir og í annarlegu ástandi Farmur flugvélaeldsneytis hafi ekki uppfyllt gæðastaðla Þjófur fúlsaði við málverkunum en tók nóg af bjór Veit um fjögur sjálfsvíg tengd gervigreind Enn deilt um sameiningu: „Í raun sé verið að leggja niður Háskólann á Akureyri“ Vill drónavarnir á Íslandi Fannar bæjarstjóri kveður Grindavík Sundlauginni í Reykholti í Bláskógabyggð lokað í eitt ár Lögreglan vilji kæfa glæpahópa í fæðingu Farið yfir Vítisenglamálið og drónavarnir á Íslandi Neysluvatnið óhreint eftir að aurskriða féll Tæplega fimmtíu komast ekki um borð eftir að neyðarrenna var opnuð fyrir mistök Ekki blettur á ferlinum að missa vinnuna Myndband: Lögregla stóð vörð vegna Vítisenglaveislu Útgjöld vegna útlendingamála lækka um þriðjung Halla mun funda með Xi Jinping 40 ára afmæli Þorlákskirkju fagnað í Þorlákshöfn Vítisenglar lausir úr haldi og týndir ferðamenn Mikilvægt að sýna Grænlendingum stuðning Allir þrír lausir úr haldi Forseti Íslands ræðir fyrsta árið í embætti Í fangaklefa grunaðir um ólöglega dvöl Þrír handteknir á samkvæmi Vítisengla Umfangsmikil lögregluaðgerð í Hamraborg Breiðhyltingar bíði í hálftíma eftir lögreglu: „Verður þetta þá ekki bara búið?“ Mikillar vanþekkingar gæti á þjónustu við trans börn Sungið og sungið í Tungnaréttum Jóhannes Valgeir er látinn ÁTVR græði á misnotkun kerfisins sem bitni á úrvali Jóhannes Óli er nýr forseti Ungs jafnaðarfólks Sjá meira