Moka bílaplön, göngustíga og tröppur Garðlist kynnir 20. janúar 2020 10:00 „
Við höfum séð það svartara en þegar veðrið er svona eins og undanfarna daga er verkefnið stórt og ansi margt sem þarf að komast yfir. Það sem er af ári höfum við verið að nánast allan sólarhringinn,“ segir Brynjar Kjærnested, framkvæmdastjóri Garðlistar en eitt af stóru verkefnunum þeirra yfir vetrartímann síðustu 30 ár hefur verið snjómokstur. „Óhætt er að segja að tíðarfarið hafi haldið starfsmönnum vel við efnið en fjölmargir treysta á þjónustu okkar. Við bjóðum upp á ýmiskonar þjónustu og meðal annars handmokum við tröppur, söltum og hálkuverjum. Verslanir, fyrirtæki og einstaklingar nýta sér þá þjónustu talsvert. Snjólaust aðgengi skiptir sköpum fyrir til dæmis eldra fólk og aðra sem eiga erfitt með að komast leiðar sinnar. Svo getur gerst að hitabræðslukerfi klikki á ögurstund eða að þau nái ekki að bræða allan snjóinn og þá stökkvum við inn og hreinsum þar sem hreinsa þarf til að tryggja gott aðgengi.“ „Við þjónustum fjölbreyttan hóp viðskiptavina, fyrirtæki og verslanir, húsfélög og einstaklinga. Viðkomandi getur verið í áskrift fyrir ákveðið þjónustustig og við sjáum um að vakta svæðið sem á að moka og þegar þörf er á þjónustunni þá er hún veitt í samræmi við áskriftarleið viðskiptavinarins. Vaktsíminn er opinn allan sólarhringinn og við fáum inn pantanir sama hvað klukkan er,“ segir Brynjar.Allar stærðir af tækjum tryggja stöðuga þjónustu„Tækjaflóran hjá okkur er mjög breið. Þar með getum við brugðist skjótt við ólíkum útköllum með fleiri tækjum. Þessa dagana erum við með tug traktora að ryðja göngustíga þar sem gröfur eða bílar komast ekki að. Bílar með tönn ryðja plön og gröfur þar sem þarf. Við heyrum það frá okkar viðskiptavinum að það sem einkenni okkur er áreiðanleikinn í þjónustunni, sem við tryggjum með vönu starfsfólki. Það skemmir síðan ekki fyrir að okkur finnst þetta mjög skemmtilegt starf,“ segir Brynjar að lokum og brosir. Nánari upplýsingar er að finna á Garðlist.isÞessi kynning er unnin í samstarfi við Garðlist.
Hús og heimili Mest lesið Þessi smurðu mest á reikning Jommunnar Lífið Brúðkaup ársins 2025 Lífið Einhverfir kaþólikkar um allan heim heita Þorlákur Lífið Cooper bað móðurina um hönd Hadid Lífið „Mér finnst gaman að láta sjokkera mig“ Lífið Helvíti á jörðu: Emmsjé Gauti minnti á líkamsræktarþjálfara í maníu Gagnrýni Heitt í hamsi hjá gestum á „helvíti á jörðu“ í Breiðholti Lífið Hefur misst vini og kunningja vegna skoðana sinna Lífið Laufey á landinu Lífið Veikindi eyðilögðu líka stóru stund Manúelu Lífið Fleiri fréttir Mikils virði að gefa fólki frelsi til að velja Fjölbreyttir jólasmáréttir frá Kjarnafæði Snéru upp á klassískt jólalag Jólaundirbúningurinn byrjar í KiDS Coolshop Augnablikin sem urðu að minni þjóðar Setningar sem eiga skilið innrömmun Konráð kveður á mildan hátt Helvítis jólapizzan slær í gegn á Eldofninum Íslensk nauta- og sælkeratólg slær í gegn Sú besta hingað til Sjórinn er enn á sínum stað Þroskuð húð fær aukinn ljóma Mzungu þýðir ekki annað en trúgjörn bráð Amor svífur yfir Norðurlandi Aftenging í sítengdum heimi Spennandi nýjungar í íslensku konfekti Metsölulisti og enn betra bókaverð í Nettó Hröð og skemmtileg rússíbanareið EKOhúsið sér um umhverfisvænu jólagjafirnar Ekkert betra en sú þerapía að rifja sitt eigið líf upp Næturserum fyrir hárið – bylting í hárumhirðu Glóandi hættulestur Árni Már og Unnar Ari opna vinnustofuna á laugardaginn Fólk hafði af því miklar áhyggjur að ég ætlaði að „pipra“ Fallegu jólagjafirnar fást í Maí Alvöru ítalskur veitingastaður í hjarta borgarinnar Pöbbkviss 5 söluhæsta spil landsins Gefðu töfrandi skemmtun í jólagjöf Epli með nýja stórglæsilega verslun Konfektleikur í tilefni 90 ára afmælis Nóa Síríus Sjá meira