Jón Valur Jensson allur Jakob Bjarnar skrifar 7. janúar 2020 15:14 Jón Valur Jensson var mikill baráttumaður fyrir hugsjónum sínum.
Jón Valur Jensson guðfræðingur og bloggari varð bráðkvaddur um helgina. Jón Valur hefur látið til sín taka með afgerandi hætti í þjóðmálaumræðunni undanfarin árin og er hann þjóðþekktur sem slíkur. Hans vettvangur var einkum Moggabloggið þar sem hann var afar duglegur að viðra sjónarmið sín og vitnaði Morgunblaðið reglulega til skrifa hans. Þá var Jón Valur reglulega kallaður til álitsgjafar í beina útsendingu á Útvarp Sögu. Skotspónn herskárra guðleysingja Á bloggsíðu sinni, sem hann hélt úti um árabil af miklum krafti og lá hvergi á skoðunum sínum gerir hann grein fyrir sér svona: „Jón Valur Jensson candid. theol. ('the candid theologian'), áhugamaður um dýrmætt sjálfstæði lands og þjóðar, þjóðfélagsréttlæti, kristna stjórnmálastefnu og arf Jóns Sigurðssonar forseta. Var í hópi virkustu manna í andspyrnunni gegn Icesave og berst einarður gegn innlimun landsins í ESB. -- Ljóðskáld, prófarkalesari, forstöðumaður Ættfræði-þjónustunnar og Lífsréttar, upplýsingaþjónustu um lífsverndarmál.“ Þarna er tæpt á helstu baráttumálum og viðfangsefnum Jóns Vals í gegnum tíðina en hann var virkur félagi í samtökunum Heimsýn, sem hafa barist hatrammlega gegn hugsanlegri aðild Íslands að Evrópusambandinu. Rætt var við Jón Val í Harmageddon TV árið 2014 á ráðstefnu ESB andstæðinga. Rætt er við Jón Val þegar um fjórar mínútur eru liðnar af innslaginu. Í alþjóðamálum var Jón Valur fylgjandi Brexit og þá taldi hann Donald Trump Bandaríkjaforseta ekki njóta sannmælis. Sjálfur sagðist hann oft vera „skotspónn vinstri manna, Icesave-borgunarsinna, ESB-innlimunarsinna og herskárra guðleysingja.“ Afgerandi afstaða í viðkvæmum málum En, það voru ekki síst sjónarmið hans í málefnum innanlands sem gerðu hann umdeildan en í þeim efnum leit Jón Valur til Biblíunnar og vildi þá á stundum túlka hana bókstaflega. Hann var til að mynda eindreginn andstæðingur þungunarrofsfrumvarpsins, sem hann myndi reyndar kalla fóstureyðingu og þá taldi hann Þjóðkirkjuna á villigötum í afstöðu til hjónabands samkynhneigðra: „Aldrei var það vilji Jesú Krists og Skaparans, að samkynja fólk mætti ganga í hjónaband. En þetta gerðist þó í þessari Þjóðkirkju, undir afar miklum þrýstingi róttækra afla innan hennar og utan, og í því ferli var þess svo vandlega gætt að svíkja almenna leikmenn um að bera málið fyrst (eins og lofað hafði verið) undir safnaðar- og leikmannafélög. Samt er þetta hátterni í berri mótsögn við orð Heilagrar Ritningar. Þau róttæku töldu sig vinna í þágu framfara og réttlætis, þetta gæti jafnvel orðið öðrum kirkjum til fyrirmyndar, en það ætlar að verða afar löng bið á því, að nokkur af hinum stærri kirkjusamfélögum heims troði sömu villugötuna.“ Vitnaði gjarnan í hina helgu bók Jón Valur var virkur í athugasemdum sínum allt fram undir það síðasta. Þannig grípur hann fast um penna sem svo oft fyrr og beinir spjótum sínum að Sveini Andra Sveinssyni lögmanni, sem hafði þá gagnrýnt Birgi Þórarinsson þingmann Miðflokksins sem telur miklvægt að flóttamenn sem leiti til Íslands séu kristnir. Jón Valur er því sammála. En, Sveini Andra ekki. „Veraldarhyggjumanninn Svein Andra Sveinsson skortir grundvallarskilning á kristinni trú. Hann ímyndar sér að hún verði til í tómarúmi, af engu! En „trúin kemur AF BOÐUNINNI, en boðunin byggist á ORÐI KRISTS“ (Rómverjabréfið 10,17). „En hvernig eiga þeir [menn eins og Sveinn Andri] að ákalla þann, sem þeir trúa ekki á? Og hvernig eiga þeir að trúa á þann sem þeir hafa ekki heyrt um? Og hvernig eiga þeir að HEYRA, án þess að einhver prediki? Og hver getur predikað, nema hann sé sendur?" (Róm.10.14-15),“ segir Jón Valur og vitnar eins og svo oft í hina helgu bók. Og grípur til hástafa þegar hann vill leggja áherslu á orð sín. „Kristin trú er MIÐLUÐ ÞEKKING, sem byggist á vitnisburði Krists um sjálfan sig og flyzt frá postulum hans og lærisveinum, guðspjallamönnum og öðrum boðendum hins kristna boðskapar til almennings, m.a. á Íslandi. Allir geta meðtekið þessa boðun, þurfa ekki guðfræði til eða aðrar lærdómsgráður. Það er STAÐREYND og mikilvægt fyrir íslenzkt samfélag, að þeir kvótaflóttamenn, sem koma til Íslands, séu kristnir, fremur en annarrar trúar. Það er ennfremur STAÐREYND að kristnir flóttamenn eiga auðveldara en múslimar með að aðlagast samfélagi okkar.“ Þetta er með því allra síðasta sem Jón Valur Jensson skrifaði en hann var tvíkvæntur og tvífráskilinn og lætur eftir sig fjögur börn á lífi og stjúpson.
Andlát Mest lesið Lögregla dreifði gjörbreyttri mynd af díselþjófum Innlent „Sjaldan hefur stjórnmálamaður verið hamflettur jafn rækilega“ Innlent Ferðamaður lést við Breiðamerkursand Innlent „Það er rosalega ljótt að segja þetta en mér líður bara þannig“ Innlent Falið ofbeldi gegn eldri borgurum: „Þetta er barnið mitt, ég ól það upp, gerði ég mistök?“ Innlent Lögregla biðst afsökunar vegna myndarinnar Innlent Líkir aðferðum forstjóra Landsvirkjunnar við heimilisofbeldi Innlent Í áfalli eftir að hafa fengið bréf frá árásarmanninum inn um lúguna Erlent Lét högg og spörk dynja á foreldrunum í tíu klukkustundir Innlent Spáin versnar á ný og gul viðvörun í Eyjum Veður Fleiri fréttir Framkvæmdir við Hvammsvirkjun stöðvaðar Borgin hafnar yfirlýsingum KSÍ Fólk varist dúfur í Vestmannaeyjum Ógnaði vegfarendum með stórum hníf Ferðamaður lést við Breiðamerkursand „Í Evrópumálum tel ég að þetta sé ekki rétti tíminn að fara í þá vegferð“ Falið ofbeldi gegn eldri borgurum: „Þetta er barnið mitt, ég ól það upp, gerði ég mistök?“ Ísbjarnareftirlit á Vestfjörðum Íslenskum nemendum fækkar en erlendum fjölgar Lögregla biðst afsökunar vegna myndarinnar Þyrlan kölluð út vegna bráðra veikinda á Breiðamerkursandi Ofbeldi gegn eldri borgurum oft hulið Aukið viðbragð í öllum deildum lögreglu Lögregla dreifði gjörbreyttri mynd af díselþjófum Sendinefnd ESB tjáir sig ekki um tollana Líkir aðferðum forstjóra Landsvirkjunnar við heimilisofbeldi Breiðan „tjakkast upp“ og varað við framhlaupi við hraunjaðrana Meiddist á handlegg og fótum þegar glerhurð brotnaði „Það er rosalega ljótt að segja þetta en mér líður bara þannig“ Segir viðbrögð Bjarnheiðar vekja „óþægilegar minningar“ „Hef ekki hitt neinn arkitekt sem finnst þetta góð hugmynd“ Komu göngumönnum í sjálfheldu til aðstoðar Rússnesk herflugvél mætt í Landeyjarnar „Ég held að þetta sé ekki bóla“ Kona flutt á spítala eftir fjóhjólaslys Vara við að gangast undir fegrunarmeðferðir hjá óviðurkenndum aðilum „Sjaldan hefur stjórnmálamaður verið hamflettur jafn rækilega“ Lét högg og spörk dynja á foreldrunum í tíu klukkustundir Barst tilkynning um olíustuld í Hafnarfirði „Léleg blaðamennska“ sem byggi á upphrópunum og hatri á atvinnulífi Sjá meira