Lífið

Nakinn maður hljóp á eftir þjófóttu svíni

Stefán Árni Pálsson skrifar
Adele Landauer fangaði atvikið á símann sinn.
Adele Landauer fangaði atvikið á símann sinn. Mynd/Adele

Heldur einkennilegt atvik átti sér stað í almenningsgarði í Teufelssee í Þýskalandi á dögunum þegar villisvín stal tösku af nöktum manni sem var að njóta lífsins í garðinum.

Í töskunni var fartölva mannsins og því upphófst mikill eltingaleikur um garðinn. Adele Landauer, leikari, reif þá upp símann og náði nokkrum myndum af manninum hlaupandi um garðinn, nakinn, á eftir svíninu.

Hún fékk leyfi frá honum til að birta þessar stórgóðu myndir og fjallar BBC um málið á vefsíðu sinni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.