Umferð á höfuðborgarsvæðinu dregst saman Vésteinn Örn Pétursson skrifar 5. ágúst 2020 11:03 Umferð á höfuðborgarsvæðinu í júlí hefur dregist saman milli ára. Vísir/Vilhelm
Umferð á höfuðborgarsvæðinu í júlí dróst saman um 3,4 prósent milli áranna 2019 og 2020. Umferð á höfuðborgarsvæðinu frá áramótum hefur þá dregist saman um 8,9 prósent miðað við sama tímabil á síðasta ári. Þetta kemur fram á vef Vegagerðarinnar. Mesti samdrátturinn á höfuðborgarsvæðinu í júlí milli ára mældist á Hafnarfjarðarvegi. Þar dróst umferð saman um 8,9 prósent. Minnstur var samdrátturinn um mælisnið Vegagerðarinnar á Rekjanesbraut, eða 0,7 prósent. Reykjanesbrautin mælist umferðarmeiri en Hringvegurinn og Reykjanesbraut. Eins og áður sagði hefur umferð á höfuðborgarsvæðinu dregist saman um 8,9 prósent frá síðastliðnum áramótum miðað við sama tímabil á síðasta ári. Það er þrisvar sinnum meiri samdráttur en áður hefur mælst á höfuðborgarsvæðinu. Þessi samdráttarsveifla hefur ekki verið rannsakað, samkvæmt tilkynningu Vegagerðarinnar, en sú tilgáta er sett fram að mögulega skýrist hún af því að Íslendingar haldi í meira mæli út á Hringveg en á „venjulegu ári,“ eins og það er orðað. Þar er vísað til þess ástands sem skapast hefur í samfélaginu vegna kórónuveirufaraldursins. Sé umferðin á höfuðborgarsvæðinu í júlí milli ára skoðuð eftir vikudögum kemur í ljós að hún dróst saman alla dagana. Minnst dróst hún saman á mánudögum en mest á föstudögum. Minnst var ekið á sunnudögum en mest á fimmtudögum. „Nú þegar um 60% er liðið af árinu 2020 lítur út fyrir að umferðin geti dregist saman um 8% á höfuðborgarsvæðinu. Ekki er búist við að umferð aukist í neinum mánuði, sem eftir er ársins. Það verður hins vegar mjög fróðlegt að sjá hvernig umferðin verður í haust en september hefur gjarnan verið umferðarmestur á höfuðborgarsvæðinu,“ segir þá í tilkynningu Vegagerðarinnar.
Umferð Mest lesið Óveður gengur yfir landið Innlent Ráðist inn í skóla og veist að nemendum eða starfsfólki Innlent Undirbúa Litla spítalann við Háaleitisbraut Innlent Ekki lengur hægt að treysta island.is í blindni Innlent Fjöldi hafi sagt upp og fleiri íhugi stöðu sína Innlent Þingmaðurinn hefði mögulega ekki átt að taka Íbúfen Innlent Lögreglan biðlar til fólks að flýta ferðum eða bíða Innlent Setja á ráðningarbann og lækka greiðslur til bæjarfulltrúa Innlent Lentu í öldugangi við Reynisfjöru Innlent Viðurkennir mistök við skipan Jafnréttissjóðs Innlent Fleiri fréttir Óvissustig vegna snjóflóðahættu í Súðavíkurhlíð Verðkröfur stjórnvalda hafi fælt lyfjaframleiðendur frá Valhöll skrefi nær því að verða níutíu herbergja hótel Lentu í öldugangi við Reynisfjöru Skildu þýfið eftir á vettvangi í stolnum bíl Vandinn heimatilbúinn og vill sleppistæði Með gaddakúlu og sprautunálakylfu „Það væri mjög miður“ Litli spítalinn án samnings og ráðherra sér ekkert svigrúm Kallar 25 ára þak á verðtryggð lán sýndarmennsku Ráðist inn í skóla og veist að nemendum eða starfsfólki Óþolandi leyndarhyggja ríki um niðurstöður PISA-prófa Vill skýr viðbrögð við trassaskap í losunarmálum í lög Vilja hækka akstursgjald eldra fólks um allt að 163 prósent Aðeins talið sannað að Andri hafi beitt leigjandann ofbeldi Ekki lengur hægt að treysta island.is í blindni „Það andar ekki köldu á milli mín og neinna annarra“ Hreyfingin stærri en einstakar persónur Aftakaveður gengur yfir landið og búist við vegalokunum vegna ófærðar Setja á ráðningarbann og lækka greiðslur til bæjarfulltrúa Deilur við Höllu eigi sér langa sögu Inga vill áfram banna atvinnumannahnefaleika Vatnið finni sér leið í gegnum sprungur Bein útsending: Stormur við setningu ASÍ-þings „Útlit fyrir að þetta sé allt að ganga eftir“ Undirbúa Litla spítalann við Háaleitisbraut Tilkynnt um líkamsárás í miðbænum Óveður gengur yfir landið Kröfur sem einstaklingum er ómögulegt að uppfylla Vikan lengdist og auglýsingahlé urðu tíðari Sjá meira