Viðskipti erlent

TikTok svarar Trump: „Við erum ekki á förum“

Sylvía Hall skrifar
Trump er sagður hafa áhyggjur af því að kínversk yfirvöld fái aðgang að persónuupplýsingum notenda.
Trump er sagður hafa áhyggjur af því að kínversk yfirvöld fái aðgang að persónuupplýsingum notenda. getty/Rafael Henrique

Vanessa Pappas, framkvæmdastjóri TikTok í Bandaríkjunum, segir fyrirtækið vinna að því að gera samfélagsmiðilinn eins öruggan og mögulegt er. Samfélagsmiðillinn yrði áfram aðgengilegur í Bandaríkjunum, þrátt fyrir yfirlýsingar Bandaríkjaforseta.

Þetta eru fyrstu viðbrögð frá aðstandendum TikTok eftir að Donald Trump Bandaríkjaforseti tilkynnti að hann ætlaði að banna miðilinn í Bandaríkjunum. Boðaði hann tilskipun þess efnis, jafnvel strax í dag, og fullyrti að hann myndi nýta völd sín til þess að loka fyrir miðilinn.

Trump er sagður hafa áhyggjur af því að kínversk yfirvöld fái aðgang að persónuupplýsingum notenda, en TikTok hefur notið mikilla vinsælda í Bandaríkjunum og þá sérstaklega á meðal ungmenna. Stjórnendur Tiktok hafna því að það kínverska ríkið stýri því eða fái gögn um notendur.

Í yfirlýsingu Pappas sagði hún fyrirtækið vera þakklátt fyrir þann stuðning sem það hefur fundið fyrir frá því að forsetinn tilkynnti fyrirhugaða tilskipun. Vakti hún athygli á því að um 1.500 Bandaríkjamenn væru starfandi hjá TikTok og áætlað væri að um tíu þúsund starfsmenn myndu bætast við í Bandaríkjunum á næstu þremur árum.

„Við erum komin til að vera og ætlum að halda áfram að deila röddum ykkar. Stöndum með TikTok.“


Tengdar fréttir

Bandaríkin íhuga að banna TikTok

Stjórnvöld í Bandaríkjunum íhuga nú að banna smáforritið TikTok í landinu, auk annarra kínverskra smáforrita.

Indverjar banna TikTok og fleiri kínversk forrit

Eftir átök milli hersveita á landamærum Kína og Indlands hefur indverska ríkisstjórnin gripið til þess ráðs að banna yfir fimmtíu kínversk smáforrit í landinu þar sem að þau gætu stofnað öryggi og fullveldi Indlands í hættu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×