Skólar og aðrar stofnanir þurfa að undirbúa skerta starfsemi Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar 31. júlí 2020 15:10 Víðir Reynisson yfirlögregluþjónn. Vísir/Vilhelm
Víðir Reynisson, yfirlögregluþjónn hjá almannavarnadeild ríkislögreglustjóra, segir skynsamlegt að skólastjórnendur og fyrirtæki undirbúi sig ef grípa þarf til hertari aðgerða í haust. Í síðari hluta ágúst hefst skólastarf hjá framhaldsskólum og háskólum en þeir þurftu að grípa til fjarkennslu í vor þegar fjöldatakmarkanir voru fámennar og enn í gildi. Aðgerðirnar sem tóku gildi á hádegi í dag, tveggja metra regla og hundrað manna samkomutakmark, gildir til 13. ágúst. „Ég held það sé bara skynsamlegt að undirbúa sig. Ég held að það hljóti bara að vera að allir aðilar sem fara af stað með starfsemi í haust að þeir láti það ekki koma sér á óvart að við séum enn í þessu. Eins og við höfum marg oft sagt getur verið að við veðrum búin að aflétta þessu,“ sagði Víðir á blaðamannafundi almannavarna og embættis landlæknis sem hófst klukkan 14 í dag. „Það getur vel verið að við þurfum svo að grípa til einhverra aðgerða aftur seinna í haust eða vetur. Þannig að það væri bara mjög skynsamlegt hjá stjórnendum þessara stofnana, og annarra eins og til dæmis stórir vinnustaðir, að undirbúa sig. Gera sína áætlun: „Hvað ætlum við að gera ef við þurfum að standa frammi fyrir aðgerðum líkt og við eru í gangi í dag þegar allt er komið á fullt?“ Háskóli Íslands grípur til hertari aðgerða Í tilkynningu frá Háskóla Íslands sem send var á nemendur og starfsfólk skólans á tólfta tímanum í dag segir að skólinn muni fylgja nýjum sóttvarnareglum í hvívetna. Tryggja þurfi að aldrei verði fleiri en 100 einstaklingar í sama rými innan skólans. Þá verði tveggja metra reglunni einnig fylgt. Eftirfarandi leiðbeiningar komu fram í tölvupósti sem Jón Atli Benediktsson, rektor Háskóla Íslands, sendi á starfsmenn og nemendur: Aðgengi að byggingum Háskóla Íslands Almennt eru byggingar Háskóla Íslands opnar nemendum og starfsfólki eins og fram kemur á vefsíðu skólans. Á Háskólatorgi, í lesrýmum og í tölvuveri verður fjöldi sæta við borð takmarkaður samkvæmt 2M reglunni. Hámarksfjöldi í einstökum rýmum verður einnig takmarkaður við 100 manns, sbr. auglýsingu stjórnvalda. Sama fyrirkomulag gildir í öðrum byggingum Háskólans. Vinnufyrirkomlag Háskóli Íslands grípur til hertari aðgerðaVísir/Vilhelm Frá og með hádegi í dag (31. júlí) gildir sú meginregla að starfsfólk mæti á vinnustað nema í sérstökum tilvikum: Starfsfólk með eigin skrifstofur mæti til vinnu samkvæmt venju. Starfsfólk sem deilir skrifstofum mæti til vinnu skv. samráði við yfirmann, en gert er ráð fyrir að sem flestir geti sinnt vinnu með hefðbundnum hætti. Í opnum rýmum skulu vera a.m.k. 2 metrar (2M) á milli starfsstöðva. Starfsfólki með undirliggjandi sjúkdóma, s.s. æða- og hjartasjúkdóma, sykursýki, lungnasjúkdóma, ónæmisbældum einstaklingum og þunguðum konum, er heimilt að vinna heima. Þeir sem eru með eigin skrifstofur og kjósa frekar að mæta til vinnu þurfa að gæta að heilsu sinni og virða 2M regluna. Við mælingar og aðrar ferðir utanbæjar skal fylgja reglum um vettvangsferðir við þær aðstæður sem nú eru uppi. Ég vil einnig vekja athygli á leiðbeiningum til þeirra sem koma erlendis frá til náms eða starfa við Háskóla Íslands á meðan takmarkanir eru í gildi vegna COVID-19. Nánari upplýsingar um fyrirkomulag kennslu á komandi haustmisseri verða sendar út á næstunni, en fylgst er náið með fyrirmælum yfirvalda og áhrifum þeirra. Að öðru leyti er vísað í tilkynningu frá 19. júní sl. Telja almennt að staðnám þurfi að vera Jón Atli Benediktsson, rektor Háskóla Íslands, segir í samtali við fréttastofu að neyðarstjórn Háskólans komi saman í næstu viku til að fara betur yfir málin og ýmsar sviðsmyndir komi til þess að takmarkanir verði enn í gildi, eða taki aftur gildi, í haust. „Við erum alveg viðbúin að koma með útfærslur sem munu henta þegar þar að kemur. Þetta verður aldrei auðvelt en vonandi leysist málið en maður getur bara verið hæfilega bjartsýnn með það,“ segir Jón Atli. Jón Atli Benediktsson, rektor Háskóla Íslands, segir að mikilvægt é að staðnám sé í skólanum til að tryggja almenn samskipti nemenda og kennara innan skólans.Vísir/Vilhelm „Við reynum bara að gera það besta úr stöðunni miðað við hvernig hún er og verðum bara tilbúin, en þetta er bara eins fyrir bæði nemendur og kennara, þetta er ekki einfalt mál.“ Huga verði sérstaklega að nemendafjölguninni en nýskráningum í Háskóla Íslands fyrir haustið hefur fjölgað gríðarlega miðað við fyrri ár. Þá segist hann vona að ekki þurfi að halda úti fjarkennslu í Háskólanum í haust líkt og gripið hefur verið til víða erlendis. „Við verðum bara að meta stöðuna, það yrði þá svipað og var í vor. Við viljum helst reyna að finna einhverjar lausnir sem yrðu þá frekar blandaðar. Stærri námskeiðin gætu mögulega þurft að fara í fjarkennslu en reyna eftir mætti að hafa minni námskeið í kennslustofunum þar sem við teljum það svo mikilvægt. Þetta fer allt bara eftir því hvernig staðan verður þegar nær dregur. Svo gæti það líka verið þannig að við þurfum að byrja á ákveðinn hátt og ef staðan batnar þyrftum við að skoða það og breyta til. En við erum almennt séð á því að það þurfi að vera staðnám þannig að það séu þessi almennu samskipti nemenda og kennara innan háskólans, ekki bara í rafheimum,“ segir Jón Atli.
Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Skóla - og menntamál Tengdar fréttir Telur að hægt hefði verið að koma í veg fyrir aðra hópsýkinguna Líklega hefði verið hægt að koma í veg fyrir aðra þeirra tveggja hópsýkinga kórónuveirunnar sem komið hafa upp hér á landi á síðustu dögum með svokallaðri sýnatöku tvö að mati sóttvarnalæknis. Það fyrirkomulag var tekið upp í gær. 31. júlí 2020 14:30 Bein útsending: Upplýsingafundur vegna kórónuveirunnar Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra og embætti landlæknis boða til upplýsingafundar vegna faraldurs kórónuveiru klukkan 14. 31. júlí 2020 13:45 Pósthúsinu á Selfossi lokað eftir að starfsmaður fór í sóttkví Birgir Jónsson, forstjóri Póstsins, engan séns vera tekinn. Allir hafi verið sendir heim og skimað verði eftir veirunni. 31. júlí 2020 13:36 Mest lesið Inga Sæland hellti sér yfir Sigríði Andersen Innlent Logi fordæmir ummæli Jóns Gnarr um Vísi Innlent Kona réðst á pizzusendil sem vildi fá símann sinn aftur Innlent Telja sig vita hvernig maðurinn lést Innlent Létu Cassie lesa upp kynferðisleg skilaboð til Diddy Erlent „Algjört þjófstart á sumrinu“ Innlent Hestamenn láta tæpa hálfa milljón stöðva sig Innlent Rússar segja Selenskí aumkunarverðan trúð Erlent Villta vestrið ríki á íþróttaviðburðum og kalla eftir reglum Innlent Ófremdarsástand og íbúum haldið í heljargreipum Innlent Fleiri fréttir Villta vestrið ríki á íþróttaviðburðum og kalla eftir reglum Ísland geti orðið fyrirmyndarríki í fangelsismálum Setja rúma tvo milljarða í stækkun leikskóla Umfangsmeiri bankasala og áfengi á íþróttaviðburðum Fljúgandi trampólín fauk á bíla í Grafarvogi Borgin verði ítrekað af viðburðum vegna gjaldtöku Telja sig vita hvernig maðurinn lést Nýja göngubrúin yfir Sæbraut fer upp í næstu viku Logi fordæmir ummæli Jóns Gnarr um Vísi Vilja aðra tillögu í stað Völugötu sem átti að koma í stað Bjargargötu „Algjört þjófstart á sumrinu“ Úlfari var boðin staða lögreglustjóra á Austurlandi Yfirmaður herafla NATO á Íslandi Hestamenn láta tæpa hálfa milljón stöðva sig Inga Sæland hellti sér yfir Sigríði Andersen Lögreglustjórafélagið fjallar um starfslok Úlfars Enn þjarmað að Flokki fólksins vegna styrkjamálsins Hægir verulega á fjölgun erlendra ríkisborgara Borgin rukkar hestamenn og þeir hætta við reiðina Kaupa frekar gervigreindartónlist í þætti en frumsamið efni Laupur stelur senunni í Árbæjarlaug Bein útsending: Ísland og Norðurslóðir í nýjum heimi – Ógnir og öryggi, áskoranir og tækifæri Kona réðst á pizzusendil sem vildi fá símann sinn aftur Enn einn skjálftinn austan við Grímsey Vara við bikblæðingum á Bröttubrekku Flugleiðir á barmi gjaldþrots gátu ekki haldið Cargolux Verðhækkanir varpa skugga á grillsumarið mikla Isavia fær áheyrn um hvort reka hafi mátt mann vegna aldurs Laupur vekur mikla athygli sundlaugagesta í Árbæjarlaug Fórnuðu gömlu húsi fyrir slökkviliðsæfingu Sjá meira
Telur að hægt hefði verið að koma í veg fyrir aðra hópsýkinguna Líklega hefði verið hægt að koma í veg fyrir aðra þeirra tveggja hópsýkinga kórónuveirunnar sem komið hafa upp hér á landi á síðustu dögum með svokallaðri sýnatöku tvö að mati sóttvarnalæknis. Það fyrirkomulag var tekið upp í gær. 31. júlí 2020 14:30
Bein útsending: Upplýsingafundur vegna kórónuveirunnar Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra og embætti landlæknis boða til upplýsingafundar vegna faraldurs kórónuveiru klukkan 14. 31. júlí 2020 13:45
Pósthúsinu á Selfossi lokað eftir að starfsmaður fór í sóttkví Birgir Jónsson, forstjóri Póstsins, engan séns vera tekinn. Allir hafi verið sendir heim og skimað verði eftir veirunni. 31. júlí 2020 13:36