Gíslataka í rútu í Úkraínu Kjartan Kjartansson skrifar 21. júlí 2020 16:30 Rútan þar sem maðurinn heldur hópi farþega í gíslingu í miðborg Lutsk. Vísir/EPA
Vopnaður maður heldur nú hópi farþega lítillar rútu í gíslingu í borginni Lutsk í vestanverðri Úkraínu. Hann er sagður krefjast þess að hátt settir stjórnmálamenn lýsi því yfir að þeir séu „hryðjuverkamenn“. Lögreglumenn reyna nú að tala um fyrir manninnum sem yfirvöld segja að heiti Maksym Kryvosh, 44 ára gamall Rússi, sem hefur verið dæmdur fyrir glæpi og er talinn eiga við geðræn vandamál að stríða. Hann hefur setið tíu ár í fangelsi fyrir fjársvik, rán og ólögleg vopn. Ekkert hefur frést af líðan farþega rútunnar sem hann heldur í gíslingu en umsátrið hefur nú staðið yfir í nokkrar klukkustundir. AP-fréttastofan segir að um tíu manns séu í gíslingu en áður var talað um allt að tuttugu gísla. Gíslatökumaðurinn er sagður hafa hafnað óskum lögreglunnar um að færa gíslunum mat og vatn. Maðurinn skaut á lögregludróna út um rúðu á rútunni og kastaði handsprengju sem sprakk ekki, að sögn AP. Þá er hann sagður halda því fram að hann hafi komið fyrir sprengju á opinberum stað í borginni sem hann gæti sprengt með fjarstýringu. Hluti miðborgar Lutsk hefur verið girt af vegna umsátursins og íbúum verið sagt að halda sig heima eða á vinnustöðum sínum. Fréttin hefur verið uppfærð.
Úkraína Mest lesið Viðreisn heldur starfsfólkinu en Jón fær 1,3 milljónir til þingstarfa Innlent Hafi íhugað að gefast upp síðustu vikur Innlent Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Innlent Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Saka Ingu um skæting og helberan dónaskap Innlent Lækkar eigin laun Innlent Jarðskjálftinn 5,2 að stærð Innlent Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Erlent Þúsundir hvetja til úttektar og ríkissaksóknari íhugar áfrýjun Innlent Íbúarnir höfðu betur Innlent Fleiri fréttir Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Fjórir hermenn létust í eldsvoða Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Mótmælendur réðust inn í ráðhúsið í Marseille Alvarlega slösuð eftir skotárás í íþróttahúsi Frestar gildistöku refsiaðgerða gegn Rússlandi Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Deilt um sönnunargögn og mögulegan vitorðsmann Norðmaður í tuttugu ára fangelsi í Bretlandi vegna leigumorðs Sjá meira