Segjast hafa afhent flugrita vélarinnar Vésteinn Örn Pétursson skrifar 18. júlí 2020 18:27 Hér má sjá hluta úr flaki vélarinnar eftir að hún var skotin niður. Ebrahim Noroozi/AP
Íranar hafa sent flugrita úkraínskrar farþegaþotu sem var skotin niður við Tehran, höfuðborg Írans, í janúar á þessu ári. Öll 176 sem voru um borð létust þegar vélin var skotin niður með tveimur flugskeytum, þann 8. janúar síðastliðinn. Starfandi utanríkisráðherra Írans segir flugritann hafa verið sendan til Parísar í gær og að lesið verði úr honum á mánudag. Í fyrstu þvertóku írönsk stjórnvöld fyrir að bera ábyrgð á málinu. Þau tóku þó ábyrgð á málinu, og sögðu að vélin hefði verið skotin niður fyrir mannleg mistök, eftir að vestrænar leyniþjónustur sögðu gögn málsins benda til þess að Íranar ættu hlut að máli. Samkvæmt stjórnvöldum töldu aðilar innan íranska hersins að vélin væri loftskeyti, og skutu hana þess vegna niður. Hassan Rouhani, forseti Írans, hefur lýst málinu sem „ófyrirgefanlegum mistökum.“ Íranski herinn var vel á verði á þessum tíma, en nokkrum klukkustundum áður en vélin var skotin niður höfðu Íranar skotið eldflaugum á tvær herstöðvar Bandaríkjahers í Írak. Þær árásir voru gerðar í hefndarskyni fyrir dráp Bandaríkjamanna á Qasem Soleimani, háttsettum herforingja innan íranska hersins. Hann var felldur í drónaárás í Baghdad í Afganistan 3. janúar.
Íran Úkraína Mest lesið Viðreisn heldur starfsfólkinu en Jón fær 1,3 milljónir til þingstarfa Innlent Hafi íhugað að gefast upp síðustu vikur Innlent Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Innlent Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Saka Ingu um skæting og helberan dónaskap Innlent Lækkar eigin laun Innlent Jarðskjálftinn 5,2 að stærð Innlent Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Erlent Þúsundir hvetja til úttektar og ríkissaksóknari íhugar áfrýjun Innlent Íbúarnir höfðu betur Innlent Fleiri fréttir Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Fjórir hermenn létust í eldsvoða Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Mótmælendur réðust inn í ráðhúsið í Marseille Alvarlega slösuð eftir skotárás í íþróttahúsi Frestar gildistöku refsiaðgerða gegn Rússlandi Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Deilt um sönnunargögn og mögulegan vitorðsmann Norðmaður í tuttugu ára fangelsi í Bretlandi vegna leigumorðs Landtökumenn börðu og rændu ljósmyndara Washington Post Sjá meira