Óhollusta í húsum og rakavandamál Björn Marteinsson skrifar 7. júlí 2020 13:30 Umræða um rakavandamál og áhrif þess á heilsu íbúa, oftast talað um raka og myglu, hefur aukist verulega það sem af er þessari öld. Rakavandamál og óhollusta af þeirra völdum tengist bæði húsnæðinu og íbúum þess, þetta er því þverfaglegt verkefni þar sem aðkoma tæknimanna, iðnaðarmanna, líffræðinga og fulltrúa heilsugeirans er nauðsynleg til að greina vandamálið og finna lausn á því. Í þessum tilgangi var myndaður vinnuhópur sem fékk nafnið Betri byggingar. Í hópnum eru fulltrúar Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands (sem leiðir hópinn), Háskóla Íslands, Háskólans í Reykjavík, aðila frá fjölda verkfræðistofa og nokkurra fagmanna. Á fundum hópsins eru rædd dæmi um hvað fer úrskeiðis, það hafa verið haldnir fundir með læknum til að heyra þeirra aðkomu að málinu. Nýsköpunarmiðstöð hefur á undanförnum þremur árum gefið út fjölda tækni- og kynningarblaða, er nefnast Rb blöð, en þau fjalla m.a. um rakamál. Í þessu sambandi má einnig nefna nýlega blaðagrein eftir Agnar Snædahl verkfræðing þar sem hann ræðir áhrif þakfrágangs á mannvirkjum, blaðagrein eftir Dr. Guðmund Guðmundsson þar sem hann undrast að lítið sé gert í að rannsaka og reyna að fyrirbyggja raka- og myglu vandamálið, blaðagrein eftir Sylgja Dögg Sigurjónsdóttur líffræðing þar sem hún bendir á mikilvægi gæða innilofts og að lokum blaðagrein eftir Sylgja Dögg og Eirík Ástvald Magnússon verkfræðing þar sem þau nefna mikilvægi rakahönnunar. Þessu til viðbótar má nefna nokkur málþing sem Rb við Nýsköpunarmiðstöð Íslands hefur haldið undanfarin tvö ár sem hafa verið afar vel sóttir og í raun verið fullt út úr dyrum á hverju málþingi. Þrátt fyrir áhuga aðila á að rannsaka vandamálið nánar þá er lítill áhugi hjá opinberum aðilum að styrkja slíkar rannsóknir og umsókn í Tækniþróunarsjóð fékk ekki hljómgrunn þar. Raki og áhrif hans á inniaðstæður, iðulega rætt sem óhollusta í húsum, hefur lengi verið umfjöllunarefni hérlendis. Þessari fullyrðingu til stuðnings má skoða tíðni birtra greina í blöðum og tímaritum sem fjalla um óhollustu í húsum, raka eða myglu. Upplýsingar um birtingu greina er fengin með orðaleit í tímarit.is þar sem er að finna öll blöð og tímarit sem gefin hafa verið út hérlendis. Þar er ekki að finna greinar á samfélagsmiðlum á netinu og yfirlitið gefur því ekki heildarmynd af umræðunni a.m.k síðustu 10 árin eða svo. Ástandið var sérstaklega slæmt á stríðsárunum og fram yfir 1970, og iðulega var þröngbýli og lélegum húsakosti kennt um. Umræða um rakavandamál og áhrif þess á heilsu íbúa, oftast talað um raka og myglu, hefur aukist verulega það sem af er þessari öld. Í Reykjavík gerðu borgin og ríkið með sér samkomulag með aðkomu launþegasamtaka í júní 1964 um samstarfsverkefni til að takast á við þennan vanda. Framkvæmdanefnd byggingaráætlunar var sett á laggirnar og falið að sjá um byggingu 1250 íbúða á nýju byggingarlandi. Breiðholt fór að byggjast. Þrátt fyrir betri húsakost og að Íslendingar búa nú rúmt í samanburði við flest önnur lönd þá er athyglisverð sú aukning í blaðagreinum það sem af er þessari öld sem sjá má á meðfylgjandi línuriti. Það er augljóslega enn vandamál til staðar og ástæða til að greina í hverju það liggur. Erlendis hafa hollustuvandamál tengd óheppilegu rakaástandi í húsnæði einnig fengið mikla athygli. Það er þó fyrst 2009 sem World Health Organisation (WHO) gefur út yfirlýsingu um að orsakatengsl séu milli raka og óhollustu í byggingum. Í þessari umræðu ber að hafa í huga að það er margt fleira heldur en mygla í húsnæði sem getur valdið óhollustu. Þar er einnig um að ræða ýmiskonar efnagjöf og aðrar örverur, en öllum þessum þáttum er sameiginlegt að umfang og áhrif á hollustu eru rakatengd. Úttekt á ástandi húsa á vegum Rannsóknastofnunar byggingariðnaðarins árið 1991 Hjá Rannsóknastofnun byggingariðnaðarins var á árunum 1991-1992 gerð úttekt á ástandi húsa, en verkefnið var styrkt af RANNÍS og Húsnæðisstofnun (nú Húsnæðis- og mannvirkjastofnun). Hluti þeirrar könnunar voru spurningar til húseigenda um hvort þeir höfðu orðið varir við raka- eða lekaskemmdir, og þá hvar skemmdir kæmu fram. Svörin voru svo flokkuð niður eftir byggingaraldri húsa og byggingarhlutum. Umrædd könnun náði til 214 húsa í Reykjavík, sem byggð voru 1930 og síðar, og af þeim svöruðu 112 spurningum um raka- og leka. Þrátt fyrir að stærð úrtaksins hafi ekki verið stærri þá var talið að svörin gæfu góða mynd af tíðni leka- og rakaskemmda. Rakavandamál voru þekkt í 18- 43% húsa (misjafnt eftir byggingaraldri og staðsetningu leka), en í heildina kannast 58% húseigenda við vandamálið, og í öllum tilvikum algengari í eldri húsum heldur en nýrri, enda hrörna hús með aldri og áhrifa viðhaldsaðgerða vega þá meira. Vandamálin voru þó sjaldan talin mikil, skipting þeirra 27% svarenda sem könnuðust við raka-eða lekavandamál í þökum er þannig; um 5% telja vandamálið mikið, 7% að það sé nokkuð en 16% að það sé lítið. Úttekt á ástandi húsa á vegum Rannsóknastofnunar byggingariðnaðarins árið 2005 Á árunum 2005-2006 gerði greinarhöfundur könnun hjá úrvali húseigenda í Reykjavík og á Akureyri varðandi ýmsa þætti íbúðarhúsa og reynslu af þeim. Í þessari könnun voru sendir spurningalistar til tæplega 2000 húseigenda íbúðarhúsa, um helmingur þeirra á Akureyri og helmingur í Reykjavík. Húsin sem um ræðir eru byggð eftir 1950 og eingöngu fábýlishús (einbýli, par-og raðhús, tví- eða þríbýlishús). Svör bárust frá tæpleg 300 húseigendum, um helmingur úr hvorum bænum. Í könnuninni var m.a. spurt um leka og rakavandamál, og fengust alls 259 svör. Í könnuninni kom fram eins og í fyrri könnun að raka- og lekavandamál eru eða hafa verið tíð í húsum frá öllum byggingartímabilum, eða um 55% svara frá Reykjavík og 48% svara frá Akureyri. Algengust eru rakavandamál sem tengjast þökum, eða um 30% húsa í báðum bæjunum, tíðnin er lægri í yngri húsunum heldur en þeim eldri, þó eru vandamál sjaldnar í þökum húsa byggðum á tímabilinu 1950-1960 (oft þök með góðan halla) heldur en í þökum síðari byggingartímabila (iðulega hallalítil þök). Nefna má að í þessari könnun voru sögð raka- og lekavandamál tengd lögnum eða frágangi baðherbergja í 3,6-4,7% tilvika. Þessar tvær kannanir 1992 og 2005 náðu einungis til ástands húsa, niðurstöðum bar allvel saman varðandi einstaka byggingarhluta og sýndu jafnframt breytingu ástands eftir hækkandi aldri húsa. Það er ekki að sjá að tíðni rakavandamála í heildina hafi aukist merkjanlega á þessu 13 ára árabili um aldamótin. Úttekt á ástandi húsa á vegum Rb við Nýsköpunarmiðstöð Íslands árið 2020 Hjá Rannsóknastofu byggingariðnaðarins hjá Nýsköpunarmiðstöð Íslands var ákveðið í ársbyrjun 2020 að ráðast í nýja könnun á tíðni rakavandamála til að skoða hvort einhverjar breytingar á ástandi væru merkjanlegar. Greinarhöfundur í samvinnu við Björn Hjartarson verkfræðing á NMÍ og Kristmann Magnússon tæknifræðing á NMÍ undirbjuggu nýja könnun, sem skyldi auk ástandsmats húsa einnig ná til gæða innivistar, og ætlunin að sjá hvort tenging finnist milli ástands byggingar og upplifunar íbúa af gæðum innivistar. Þetta er mun flóknari og margþættari könnun heldur þær tvær fyrrnefndu og því talið nauðsynlegt að stækka úrtakið verulega. Maskína sá um að safna saman svörum frá rúmlega 2000 húsráðendum íbúðarhúsnæðis á höfuðborgarsvæðinu og á Akureyri. Spurningar í þessari könnun ná m.a. yfir eftirfarandi atriði; Úrvinnsla úr þessari nýjustu könnun er enn skammt á veg komin, en þó benda fyrstu niðurstöður til að tíðni rakavandamála séu heldur lægri en í fyrri könnunum, eða hjá um 42 % aðspurðra. Athyglisvert er að tíðni rakavandamála vegna lagna og baðherbergja er nú umtalsvert hærri heldur en í fyrri könnunum, eða í um 13 % íbúða. Ástæður þessarar aukningar þarf að athuga betur, en hugsanlega er hún breyttur frágangur í votrýmum. Það vekur síðan athygli að rúmlega 10% svarenda tengja ýmiskonar vanlíðan við veru sína í húsnæðinu; algengast er höfuðverkur sem 8% íbúa kvarta yfir. Það verður fróðlegt að sjá í áframhaldandi úrvinnslu könnunarinnar hvort tekst að finna tengsl annarsvegar milli ástands og gerðar húsnæðis og hinsvegar hegðunar íbúa (einkum loftræsivenjur) og umsagnar þeirra um gæði innilofts. Rakavandamál eru vissulega tíð hérlendis samkvæmt niðurstöðum þessara kannana, en þó í svipuðu umfangi og gerist víða erlendis þar sem ástæða þykir til að skoða þetta sem þjóðfélagslegt vandamál – það er svo spurning hvenær opinberir aðilar hérlendis sjá ástæðu til slíks einnig. Höfundur er verkfræðingur og arkitekt á Rb við Nýsköpunarmiðstöð Íslands. Heimildir Agnar Snædahl (2019) „Frá kreppuþaksuppbyggingu og myglu“, Kjarninn 14. desember 2019 Benedikt Jónsson og Björn Marteinsson (1999) Viðhaldsþörf húsa á Íslandi, Sérrit Rb nr. 77, Rannsóknastofnun byggingariðnaðarins Benedikt Jónsson og Björn Marteinsson (1997) Ástand mannvirkja og viðhaldsþörf, Rb skýrsla nr. 97-14, Rannsóknastofnun byggingariðnaðarins Björn Marteinsson (2012) Íslensk þök-gæði og þróun, NMÍ 12-12 v1, lokaskýrsla til Rannís og Íbúðalánasjóðs,Nýsköpunarmiðstöð Íslands og Háskóli Íslands Umhverfis- og byggingarverkfræðideild, Keldnaholt Björn Marteinsson (2013) Lífsgæði og sjálfbærari byggingar, ISBN 978-9979-9799-9-9, Reykjavík: Betri borgarbragur, Nýsköpunarmiðstöð Íslands og Háskóli Íslands: Umhverfis- og byggingarverkfræðideild, maí 2013, 115 síður Guðmundur Guðmundsson (2020) „Hvað veldur raka og myglu í íslenskum húsum?“, kjarninn 12. febrúar 2020 Sylgja Dögg Sigurjónsdóttir (2020) „Loftgæði innandyra“, SÍBS blaðið 2.mars 2020. Sylgja Dögg Sigurjónsdóttir, Eiríkur Ástvald Magnússon (2020) „Rakaöryggi byggingaframkvæmda og áskoranir í byggingariðnaði“, kjarninn 16. maí 2020 WHO (2009) WHO guidelines for indoor air quality: dampness and mould, World Health Organisation Europe WHO (2009) Damp and mould – health risks, prevention and remedial actions – Information brochure, World Health Organisation Europe Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Heilbrigðismál Mest lesið Af hverju ætti Gylfi Þór Sigurðsson að fá aftur tækifæri í landsliðinu? Sölvi Breiðfjörð Skoðun Íslenskur Pútínismi Diana Burkot,Nadya Tolokonnikova Skoðun Ég þori að veðja Jóhann Karl Ásgeirsson Gígja Skoðun Þegar skynjun ráðherra verður að lögum Heiðrún Lind Marteinsdóttir Skoðun Móðurást, skömm og verkjalyf Hjördís Eva Þórðardóttir Skoðun Þú hengir ekki bakara fyrir smið Davíð Bergmann Skoðun Samfélagsmiðlar og ósýnilegu börnin Ásdís Bergþórsdóttir Skoðun Frá lögreglunni yfir á geðdeildina Sigurður Árni Reynisson Skoðun Að klúðra með stæl í tilefni alþjóðlega Mistakadagsins Ingrid Kuhlman Skoðun Kvartað yfir erlendum aðilum? Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Skoðun Skoðun Af hverju eru Íslendingar svona feitir? Einar Baldvin Árnason skrifar Skoðun Íslenskur Pútínismi Diana Burkot,Nadya Tolokonnikova skrifar Skoðun Félagsráðgjafar lykilaðilar í stuðningi við geðheilbrigði Steinunn Bergmann skrifar Skoðun Skemmtilegri borg Skúli Helgason skrifar Skoðun Drögum úr svifryksmengun frá umferð heilsunnar vegna Þröstur Þorsteinsson skrifar Skoðun Að fara í stríð við sjálfan sig Rakel Hinriksdóttir skrifar Skoðun Þú hengir ekki bakara fyrir smið Davíð Bergmann skrifar Skoðun Hvaða menntakerfi kæri þingmaður? Hermann Austmar skrifar Skoðun Friðarfundur utanríkisráðherra Íslands og Palestínu og leiðtogablæti Júlíus Valsson skrifar Skoðun Nýtt Reykjavíkurmódel í leikskólamálum Andri Reyr Haraldsson,Óskar Hafnfjörð Gunnarsson skrifar Skoðun Móðurást, skömm og verkjalyf Hjördís Eva Þórðardóttir skrifar Skoðun Framsókn sem þjónar fólki, ekki kerfum Einar Freyr Elínarson skrifar Skoðun Af hverju ætti Gylfi Þór Sigurðsson að fá aftur tækifæri í landsliðinu? Sölvi Breiðfjörð skrifar Skoðun Samfélagsmiðlar og ósýnilegu börnin Ásdís Bergþórsdóttir skrifar Skoðun Ég þori að veðja Jóhann Karl Ásgeirsson Gígja skrifar Skoðun Munum eftir baráttu kvenna alltaf og alls staðar Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Verkfærið sem vantar í fjármálastjórnun sveitarfélaga Marín Rós Eyjólfsdóttir skrifar Skoðun Að klúðra með stæl í tilefni alþjóðlega Mistakadagsins Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Kvartað yfir erlendum aðilum? Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Þegar skynjun ráðherra verður að lögum Heiðrún Lind Marteinsdóttir skrifar Skoðun Frá torfkofum til tækifæra Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Rétthafar framtíðarinnar Erna Mist skrifar Skoðun Er íslenskt samfélag barnvænt? Salvör Nordal skrifar Skoðun Ákall til forsætisráðherra - konur í skugga heilbrigðiskerfisins Auður Gestsdóttir skrifar Skoðun Fálmandi í myrkrinu? Gunnar Hólmsteinn Ársælsson skrifar Skoðun Milljarðar af almannafé í rekstur Fjölskyldu- og húsdýragarðsins Friðjón R. Friðjónsson skrifar Skoðun Göngudeild gigtar - með þér í liði! Pétur Jónsson skrifar Skoðun Börn og steinefnadrykkir: Yfirlýsing frá næringarfræðingum Hópur næringarfræðinga skrifar Skoðun Fámenn sveitarfélög eru öflug og vel rekin sveitarfélög Haraldur Þór Jónsson skrifar Skoðun Margar íslenskur Sigurjón Njarðarson skrifar Sjá meira
Skoðun Friðarfundur utanríkisráðherra Íslands og Palestínu og leiðtogablæti Júlíus Valsson skrifar
Skoðun Nýtt Reykjavíkurmódel í leikskólamálum Andri Reyr Haraldsson,Óskar Hafnfjörð Gunnarsson skrifar
Skoðun Af hverju ætti Gylfi Þór Sigurðsson að fá aftur tækifæri í landsliðinu? Sölvi Breiðfjörð skrifar
Skoðun Ákall til forsætisráðherra - konur í skugga heilbrigðiskerfisins Auður Gestsdóttir skrifar
Skoðun Milljarðar af almannafé í rekstur Fjölskyldu- og húsdýragarðsins Friðjón R. Friðjónsson skrifar