Lögreglumennirnir tveir sem ákærðir hafa verið líkamsárás gegn 75 ára gömlum vegfarenda í mótmælum í Buffalo i New York ríki Bandaríkjanna á dögunum lýstu sig saklausa af ákærum í málinu.
Þetta kemur fram á vef CNN en lögreglumönnunum tveimur, Aaron Torgalski og Robert McCabe, var sleppt úr haldi án tryggingar eftir fyrirtöku málsins í dag, sem fór fram í gegnm fjarfundarbúnað. Þeir munu mæta í dómsal þann 20. júlí næstkomandi vegna málsins.
Torgalski og McCabe voru settir í leyfi eftir að myndband birtist af þeim hrinda manni á áttræðisaldri í götuna. Maðurinn er sagður alvarlega slasaður en hann tók þátt í mótmælum gegn lögregluofbeldi.
Upphaflega hélt lögreglan í Buffalo því fram að maðurinn hefði „hrasað“ og dottið í „skærum“ á milli lögreglumanna og mótmælenda en mikil mótmæli hafa geisað víða í Bandaríkjunum vegna drápsins á George Floyd, óvopnuðum blökkumanni í haldi lögreglunnar í Minneapolis, undanfarna daga.
Myndband af atvikinu birtist á fimmtudag og sást maðurinn þar ræða við lögreglumenn áður en tveir þeirra ryðjast áfram og ýta manninum sem féll við það aftur fyrir sig í götuna. Aðrir sérsveitarmenn sjást ganga fram hjá manninum þar sem hann liggur jafnvel þó að einhver heyrist segja að það blæði úr eyranu á honum.
Saksóknari í málinu segir að sér hafi blöskrað þegar hann sá myndbandið og að hafi maðurinn sem varð fyrir árásinni gert eitthvað af sér hafi lögreglumennirnir tveir átt að handtaka hann, í stað þess að „brjóta á honum höfuðið,“ líkt og hann komst að orði á blaðamannafundi um málið í dag.
Allir 57 liðsmenn sérsveitarinnar sem Torgalski og McCabe eru hluti af hafa hætt í sveitinni til þess að mótmæla brottvikningu félaga sinna. Forseti sambands lögreglumanna í Buffalo segir að lögreglumennirnir hafi aðeins fylgt skipunum um að rýma torg til að framfylgja útgöngubanni.