Innlent

Steingrímur J ítrekað með puttana í andliti sínu

Jakob Bjarnar skrifar
Gripið hefur verið til mikilla varúðaráðstafana á Alþingi sem sérstakt viðbragsteymi stýrir. Þar sem heimsóknir hafa verið takmarkaðar. Steíngrímur J. Sigfússon forseti þingsins á hins vegar, samkvæmt nýju myndskeiði sem er nú á flakki um netið, erfitt með að halda höndum frá andliti sínu.
Gripið hefur verið til mikilla varúðaráðstafana á Alþingi sem sérstakt viðbragsteymi stýrir. Þar sem heimsóknir hafa verið takmarkaðar. Steíngrímur J. Sigfússon forseti þingsins á hins vegar, samkvæmt nýju myndskeiði sem er nú á flakki um netið, erfitt með að halda höndum frá andliti sínu. visir/vilhelm

Stutt myndskeið, svokallað gif, virðist vera að taka flugið á netinu en þar má sjá Steingrím J. Sigfússon forseta Alþingis í sæti sínu með puttana ítrekað í andlitinu á sér.

Gripið hefur verið til sérstakra ráðstafana til að verja þingið svo það geti sinnt leiðtogahlutverki sínu sem best á tímum faraldurs eftir sem áður. Og verið hinar miklu fyrirmyndir sem borgarar geta litið til.

Munum að spritta

Eitt af því sem landlæknir og sóttvarnarlæknir hafa bent ítrekað á er að fólk eigi að forðast það eftir bestu getu að vera með hendur í andliti sér. Þó um það kunni að vera deildar meiningar, þá hefur Þórólfur Guðnason sóttvarnarlæknir lagt ríka áherslu á að smitleiðir kórónuveirunnar felist í snertingu, hún fari ekki um í andrúmsloftinu.

Jón Þór Ólafsson þingmaður Pírata deilir „gif-inu“ að því er virðist í prakkaraskap. Hann fylgir því úr hlaði með orðunum: „Það geta allir gleymt sér,“ bætir við broskalli og segir jafnframt; „munum að spritta“.

Jón Þór Ólafsson hefur í prakkaraskap deilt gif-inu af Steingrími.vísir/vilhelm

Lélegt að búa svona til

Í athugasemd er þetta gagnrýnt harðlega af Jóhannesi P. Héðinssyni, sem telur þarna illa vegið að Steingrími. „Vá hvað er til lélegt fólk sem nennir að búa til svona.“

Jón Þór svarar því svo til að það megi alveg taka því þannig. En, kannski fari þetta um netið og minni þá fólk á að þó það sé í mynd eigi það til að gleyma sér. „Spritt og sápa oft á dag og fólk gleymir sér.“

Jón Þór rifjar þá upp nokkrar fréttir sem hafa ferðast um neitið og mega heita til marks um að þrátt fyrir að hamrað sé á því hvaða varúðarráðstafanir eigi að við hafa gleymi fólk sér.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×