Innlent

Lögreglan eflir landamæraeftirlit með nýjum bíl

Jóhann K. Jóhannsson skrifar
Nýr landamæraeftirlitsbíll Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu var afhentur í dag.
Nýr landamæraeftirlitsbíll Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu var afhentur í dag. Vísir/Jóhann K.

Dómsmálaráðherra afhenti í dag Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu  nýjan bíl sem ætlaður er til landamæraeftirlits í höfnum og á flugvöllum. 

Bíllinn og búnaðurinn eru til kominn vegna athugasemda Evrópusambandsins um að embættið uppfyllti ekki skilyrði í Schengen-samstarfinu. Í bílnum er meðal annars vegabréfaskanni sem er tengdur við Schengen-upplýsingakerfið og Interpol auk rannsóknartækja og hægt er að gefa út vegabréf á staðnum.

Jóhann Karl Þórisson, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu.Vísir/Jóhann K.

„Við getum líka farið og tekið vinnustaðaeftirlit. Skoðað verkamenn og skilríki þeirra í sérstökum búnaði í bílnum og fundið út hvort þeir séu sem þeir segjast vera,“ segir Jóhann Karl Þórisson, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu.

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, dómsmálaráðherra afhenti lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu bílinn í dag. Hún kynnti sér búnað hans við það tækifæri.Vísir/Jóhann K.

Það eru nú væntanlega færri verkefni fyrir þennan bíl þessa dagana?

„Í venjulegu ári væri að koma hérna á annað hundrað skemmtiferðaskip og það hefði verið nóg að gera en við bíðum bara spennt þangað til að Covid-19 léttir og þetta byrjar allt saman aftur,“ segir Jóhann Karl.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×