Innlent

Stefnt að því að létt verði frekar á samkomubanni þann 25. maí

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Þórólfur Guðnason, sóttvarnalæknir.
Þórólfur Guðnason, sóttvarnalæknir. Lögreglan/Júlíus

Þórólfur Guðnason, sóttvarnalæknir, segir að vegna þess hve vel  hefur gengið að hemja kórónuveirufaraldurinn hér á landi verði næstu tilslakanir á samkomubanni fyrr en áætlað var í fyrstu, eða þann 25. maí næstkomandi. Þá sé meðal annars stefnt að því að líkamsræktarstöðvar geti opnað.

Þetta kom fram í máli Þórólfs á upplýsingafundi almannavarna og landlæknis í dag. Áður hafði verið nefnt að næstu tilslakanir á samkomubanni yrðu í byrjun júní.

Síðastliðinn mánudag tóku fyrstu tilslakanir á hertu samkomubanni gildi þegar fimmtíu manns var leyft að koma saman í sama rými, leikskólar og grunnskólar gátu farið að starfa með eðlilegum hætti og háskólar og framhaldsskólar opnuðu á ný.

Einnig var þá ýmis konar þjónusta, sem krefst mikillar nálægðar, leyfð á ný, til dæmis starfsemi sjúkraþjálfara, tannlækna, nuddara og hárgreiðslustofa. Þá hófust valkvæðar aðgerðir jafnframt aftur.

Á upplýsingafundi síðastliðinn mánudag greindi Þórólfur frá því að stefnt væri á að leyfa opnun sundlauga landsins þann 18. maí næstkomandi.

Eigendur líkamsræktarstöðva hafa gagnrýnt að stöðvarnar fái ekki að opna sama dag en sóttvarnalæknir hefur sagt að það sé sitt mat að mun fleiri sameiginlegir snertifletir séu í líkamsræktarstöðvum heldur en sundlaugum.

Smithættan sé því minni í sundi en í líkamsræktarstöðvunum. Þá sé klórinn í sundi einnig slæmur fyrir veiruna.

Á upplýsingafundinum í dag sagði Þórólfur að í næsta skrefi sem tekið verði 25. maí yrði leyfð opnun á ýmis konar starfsemi, til dæmis líkamsræktarstöðvum, en með ákveðnum skilyrðum.

Þá yrði fjöldi þeirra sem koma mega saman hverju sinni á sama svæði hækkaður en talan hefur ekki verið ákveðin. Þórólfur sagði þó að talað hefði verið um að minnsta kosti 100 einstaklinga en útfærslan verði kynnt nánar síðar.

Sóttvarnalæknir sagðist vona að allir hefðu skilning á því að við færum okkur hægt í því að aflétta samkomubanninu. Þá minnti hann enn og aftur á mikilvægi einstaklingsbundnu sóttvarnanna, að þvo hendur, spritta, passa hvar maður hefur hendurnar og passa upp á tveggja metra regluna.

Fréttin hefur verið uppfærð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×