Lífið

Segir „í kjólinn fyrir jólin“ vera kjaftæði

Samúel Karl Ólason skrifar
Erna Kristín Stefánsdóttir, guðfræðingur og samfélagsmiðlastjarna,
Erna Kristín Stefánsdóttir, guðfræðingur og samfélagsmiðlastjarna, Vísir
Erna Kristín Stefánsdóttir, guðfræðingur og samfélagsmiðlastjarna, segir hugtakið að „grenna sig í kjólinn fyrir jólin“ vera algjört kjaftæði og sölubrellu. Þetta sagði hún Við Völu Matt í Íslandi í dag í kvöld. Á þessum tíma ársins má sjá auglýsingar gagnvart konum um að þær hafi enn tíma til að grenna sig fyrir jólin svo þau komist í kjóla sína.

Erna hefur verið að berjast fyrir jákvæðari líkamsímynd og heldur hún meðal annars fyrirlestra um málið og heldur úti síðunni Ernuland á Instagram.



Hún segir málið sér kært þar sem hún hafi lengi barist við neikvæða líkamsímynd.

„Í rauninni þar til fyrir tveimur árum síðan,“ segir Erna. „Ég opnaði mig á samfélagsmiðlum og komst að því að þar er svo mikið um neikvæða líkamsímynd.“ Hún sagðist þar að auki telja að hún hefði hitt færri en fimm konur sem hefðu ávallt verið með jákvæða líkamsímynd.

Erna segir þetta mikilvæga umræðu og með því að koma henni upp á yfirborðið sé hægt að bæta lífsgæði kvenna.

„Maður hættir að neita sér hamingju út af neikvæðri líkamsímynd og hvað er eiginlega mikilvægara en einmitt það. Að geta bara fengið að lifa lífinu, frjáls í sínum líkama,“ segir Erna.

Erna segir „í kjólinn fyrir jólin“ setja pressu á konur um að fara í átak. Réttara væri að sleppa öllu stressi og kaupa kjól sem konur komast í, eða nota eldri flíkur. Það sé ekki nauðsynlegt að kaupa kjól fyrir hver jól.

„Líka að tengja hreyfingu ekki við breytingu á holdafari. Heldur tengja hana við andlega og líkamlega líðan. Mér finnst þetta svo mikilvægt. Að fólk nái að slíta í sundur hreyfingu, mat og allt sem tengist lífinu frá holdafari og útlit. Þá fyrst ferðu að átta þig á því af hverju þú hreyfir þig. Það er út af því að þér líður vel og útlitið er bara þú.“

Innslagið í Ísland í dag má sjá hér að neðan.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.