Ofbeldi og hótanir í október Kristín Ólafsdóttir skrifar 21. nóvember 2019 22:27 Lögreglumenn að störfum. vísir/vilhelm
Í október voru skráð níu tilvik þar sem lögreglumaður var beittur ofbeldi.Það sem af er ári hafa verið skráð um 34 prósent fleiri slík tilvik en skráð voru að meðaltali síðustu þrjú ár á undan. Þá voru skráð sex tilvik í október þar sem lögreglumanni var hótað ofbeldi. Slíkum tilvikum hefur einnig fjölgað. Það sem af er ári hafa verið skráð um 20 prósent fleiri tilvik en árin þrjú á undan.Þetta er á meðal þess sem fram kemur í afbrotatölfræði lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu fyrir nýliðinn októbermánuð. Alls voru skráð 852 hegningarlagabrot á höfuðborgarsvæðinu í október og fækkaði þessum brotum nokkuð á milli mánaða. Þá fjölgaði skráðum innbrotum á milli mánaða en þar af var mesta fjölgunin á skráðum innbrotum í fyrirtæki og stofnanir. Þá hefur skráðum innbrotum í ökutæki fækkað um rúm 25 prósent á milli mánaða. Skráðum fíkniefnabrotum fjölgaði á milli mánaða. Tilkynningum þar sem ökumaður var grunaður um akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna fjölgað töluvert á milli mánaða, sem og tilkynningum þar sem ökumaður var grunaður um ölvun við akstur. Skráðum ofbeldisbrotum fækkaði töluvert á milli mánaða og á fækkunin við um bæði minniháttar og meiriháttar líkamsárásir. Það sem af er ári hafa borist um sex prósent færri tilkynningar um ofbeldisbrot en bárust að meðaltali á sama tímabili síðastliðin þrjú ár á undan.
Lögreglan Lögreglumál Mest lesið Bæjarstjóri Ölfuss segir múslima „valda skaða“ Innlent Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Erlent „Það er sitthvað til í því sem hann er að segja“ Innlent Brikk lokað í óákveðinn tíma Innlent „Ég er ekkert að ýja að því, ég er bara að segja það fullum fetum“ Innlent Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Erlent Vilja 125 milljónir til að halda flugeldasölunni gangandi Innlent Geðrofslyf leysa hefðbundin svefnlyf af hólmi Innlent Hnuplaði úr verslunum fyrir á fjórðu milljón króna Innlent Beit mann í geirvörtuna og réðst á systur hans Innlent Fleiri fréttir Musk setti Úkraínumönnum takmörk á tengingar við Starlink Óhugnanlega margir að leysa vandamálin með töflum „Ég er ekkert að ýja að því, ég er bara að segja það fullum fetum“ Ræddu ofbeldi í skólum í borgarstjórn: Segir kennara vera í legghlífum í vinnunni Sigurvin kallaður út vegna Hildar Ekki tilraun til manndráps að taka sambýliskonuna kverkataki Dæmdir morðingjar gætu fengið að annast fatlað fólk „Það er sitthvað til í því sem hann er að segja“ Sakar Ölmu um að hafna Litla spítalanum fyrir fram Skandall að menn afpláni ekki í fangelsi vegna plássleysis Stefna á að hefja leit í nóvember Vilja 125 milljónir til að halda flugeldasölunni gangandi Bein útsending: Fyrsta skóflustunga að Stóra-Hrauni Dómurinn feli í sér tilmæli til þingsins Hnuplaði úr verslunum fyrir á fjórðu milljón króna Komi ekki til greina að hætta við talnakvarðann Kallað eftir rannsóknum vegna geðrofslyfs og áskorun til ráðherra Bæjarstjóri Ölfuss segir múslima „valda skaða“ Endurmeta fyrirkomulag RS-bólusetninga næstu árin Beit mann í geirvörtuna og réðst á systur hans Tekur sæti Maríu sem er í fríi í Víetnam Geðrofslyf leysa hefðbundin svefnlyf af hólmi Brikk lokað í óákveðinn tíma Skakkur á rafskútu 20,4 milljarðar til Úkraínu og aukinn stuðningur við Palestínu Vill prófa sjálfkeyrandi bíla í Eyjum Sveitarfélagi ekki skylt að smala ágangsfé úr skógræktarlandi Eldur kom upp í verslun í Hafnarfirði Fyrrum Sósíalistar stýra Ungum vinstri grænum „Leiðinlegt þegar svona kemur upp og Ísland.is verður fyrir höggi“ Sjá meira