Mjótt á munum í Kanada Þórgnýr Einar Albertsson skrifar 21. október 2019 18:30 Skipting þingsæta samkvæmt meðaltali skoðanakannana. Vísir/Grafík
Forsætisráðherratíð Justins Trudeau gæti verið á enda. Útlit er fyrir að hans Frjálslyndi flokkur missi meirihluta sinn á þingi í kosningunum. Kanadíska ríkisútvarpið telur einungis um þrettán prósenta líkur á því að meirihlutinn haldi og því stefnir annað hvort í nýja ríkisstjórn eða minnihlutastjórn Frjálslyndra. Staðan er alls ekki svört fyrir forsætisráðherrann, ef marka má meðaltal skoðanakannana. Flest bendir til þess að Frjálslyndi flokkurinn fái flest atkvæði og mest fylgi. Tapi þó um fjörutíu þingsætum. Íhaldsflokkurinn hefur mælst næstvinsælastur. Þar sem einmenningskjördæmi eru í Kanada er svo útlit fyrir að Nýir Demókratar fái færri sæti en flokkur sjálfstæðissinna í Quebec þrátt fyrir að vera með mun meira fylgi á landsvísu. Trudeau tók við sem forsætisráðherra árið 2015 og skapaði sér ímynd sem fánaberi bæði framsækinna og frjálslyndra. Eftir því sem líða tók á kjörtímabilið fór hins vegar að fjara undan vinsældum hans. Var hann til dæmis sakaður um spillingu og að hafa hindrað rannsókn á kanadísku stórfyrirtæki. Þá birtust nýlega myndir af Trudeau frá háskólaárum hans þar sem hann hafði málað sig hörundsdökkan. Myndirnar mættu fordæmingu kjósenda og pólitískra andstæðinga og voru sagðar bæði ósmekklegar og rasískar.
Kanada Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Verði stjórnað af „róttækustu og öfgafyllstu vinstrimönnum bandarískrar sögu“ Erlent Sögðu Írisi hafa beðið sig um að lemja brotaþola Innlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Innlent Fleiri fréttir Verði stjórnað af „róttækustu og öfgafyllstu vinstrimönnum bandarískrar sögu“ Trump hafi nú engu að tapa Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Draumur Demókrata að rætast Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Segir af sér vegna lestarslysa Reynslumikill flugmaður við stjórnina Sjö flugvélum lent vegna sprengjuhótana Trúnaðarbrestur á Grænlandi og samþykkt Bandaríkjasamnings sett á ís Hafnað með afgerandi hætti Íslendingur dæmdur fyrir dreifingu barnaníðsefnis í Kanada Rússar gerðu árás á sjúkrahús í Kharkív Framtíð Trump í húfi á kjördegi í Bandaríkjunum Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum Nauðlenti vegna sprengjuhótunar „Tíminn er á þrotum“ Sprengjum varpað á skóla meðan fólk beið eftir brauði Kælar matvöruverslana hakkaðir á ný Ríkin sem barist er um: Blá flóðbylgja eða smáskvetta? „Svívirðileg svik“ Netárásir á almannavarnarkerfi Úkraínumanna og Rússa Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Starfsmenn Disney World handteknir í stóru barnaníðsmáli Yfirhalning hafi verið nauðsynleg „Rannsóknarnefndir verða stofnaðar“ Barist um samband Búlgaríu við Rússland Snerist upp í ofbeldi þegar nóttin skall á Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Sjá meira