Lífið

Sunneva Einars slær sér upp með syni ráðherra

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Sunneva er stödd í London þessa stundina. Hún lenti í þeirri leiðinlegu lífsreynslu að jakka hennar var stolið í ensku borginni um helgina.
Sunneva er stödd í London þessa stundina. Hún lenti í þeirri leiðinlegu lífsreynslu að jakka hennar var stolið í ensku borginni um helgina. Vísir/Vilhelm
Benedikt Bjarnason og Sunneva Einarsson samfélagsmiðlastjarna eru eitt nýjasta par landsins. Þau hafa verið að rugla saman reitum undanfarnar vikur og nú búin að opinbera sambandið fyrir vinum og kunningjum.

Benedikt, sem er 21 árs og oftast kallaður Bensi, er Garðbæingur, starfsmaður Vodafone og kemur af mikilli stjórnmálaætt. Hann er sonur Bjarna Benediktssonar fjármálaráðherra og Þóru Margrétar Baldvinsdóttur hönnunarráðgjafa.

Benedikt Bjarnason á árshátíð Sýnar, en hann er starfsmaður Vodafone.Vísir
Sunneva, sem er tveimur árum eldri en Bensi, hefur vakið mikla athygli á Instagram þar sem hún er með 44 þúsund fylgjendur. Þar situr hún reglulega fyrir í nærfötum og leggur mikla vinnu í myndirnar.

„Það fer mjög mikið eftir því hvort ég er að eiga góðan dag eða ekki. Ef hárið er í lagi eða make-upið en þetta getur tekið upp í tvo til þrjá tíma,“ sagði Sunneva sem var gestur í þættinum Einkalífinu á Vísi í nóvember í fyrra.

Þar sagði hún að vinkonur hennar og litla systir væru duglegar að hjálpa sér að taka myndirnar. Hægt er að horfa á viðtalið við Sunnevu hér fyrir neðan.


Tengdar fréttir

Sunneva um kjaftasögurnar: „Ég fékk eiginlega bara nóg“

"Þetta byrjaði að byggjast hratt upp í fyrra. Maður þarf bara að vera dugleg og leggja mikla vinnu í Instagramið,“ segir samfélagsmiðlastjarnan Sunneva Einarsdóttir sem hitti söng- og leikkonuna Jennifer Lopez í Las Vegas um helgina.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.