Grunaður um fíkniefnaframleiðslu í Grafarholti Sylvía Hall skrifar 30. ágúst 2019 06:45 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hafði í nógu að snúast í gærkvöldi og í nótt. Vísir/vilhelm
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hafði afskipti af manni í heimahúsi í Grafarholti á sjöunda tímanum í gær vegna gruns og vörslu og framleiðslu fíkniefna. Á heimilinu fannst ein planta og ætluð fíkniefni að því er fram kemur í dagbók lögreglunnar. Í miðbæ Reykjavíkur var tilkynnt um mann með grjót að reyna að brjóta stóra rúðu í verslun á ellefta tímanum í gær. Maðurinn hafði svo hjólað í burtu en var handtekinn skömmu síðar við Lækjartorg. Maðurinn sinnti ekki boðum lögreglu varðandi stöðvun en hann ferðaðist á reiðhjóli, sem hann er grunaður um að hafa stolið. Maðurinn var vistaður í fangageymslu lögreglu og er málið til rannsóknar. Lögreglan hafði afskipti af fjórum þrettán ára drengjum í Hafnarfirði á áttunda tímanum þar sem þeir óku saman á einni vespu. Ökumaðurinn var sá eini sem var með hjálm en aðrir voru hjálmlausir. Lögregla hafði samband við foreldra drengjanna og tilkynntu málið til Barnaverndar. Þá voru afskipti höfð af ökumönnum víða um borgina. Í Árbæ var bifreið stöðvuð í kringum níuleytið þar sem ökumaðurinn er grunaður um akstur bifreiðar undir áhrifum fíkniefna. Fljótlega eftir miðnætti var svo annar ökumaður stöðvaður í miðbæ Reykjavíkur og reyndist sá vera réttindalaus og hafði ítrekað keyrt eftir að hafa verið sviptur ökuréttindum. Þá var þriðji ökumaðurinn stöðvaður skömmu fyrir klukkan eitt í nótt við Hafravatnsveg, réttindalaus og grunaður um akstur undir áhrifum fíkniefna.
Lögreglumál Reykjavík Mest lesið Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Innlent Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Erlent Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Innlent Maðurinn skotinn af fulltrúum ICE í New York Erlent Ætla að streyma aftöku í beinni Erlent „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Innlent Veðmál á sigur Navalnaju hrúgast inn Erlent Máttu tæma lónið Innlent Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Innlent Vonar að Ísraelar hafni Netanjahú Erlent Fleiri fréttir Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Maður réðst á annan og skemmdi bíl Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Dagskrá aflýst í dag og óljóst hvernig ræðukeppnin fer fram Loftslagstilraun hefst í Hvalfirði á næstu dögum Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Bein útsending: Landbúnaður í heimi breytinga Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Áreitti tíu ára stúlku ítrekað í fjóra daga Kveikja og slökkva á ljósastaurum vegna bilunar Sjá meira