Bíó og sjónvarp

Monica Lewinsky mun framleiða þætti um ákæruferlið gegn Bill Clinton

Birgir Olgeirsson skrifar
Hillary Clinton stendur hér við hlið manns síns Bill þegar hann tjáði sig um Monicu Lewinsky.
Hillary Clinton stendur hér við hlið manns síns Bill þegar hann tjáði sig um Monicu Lewinsky. Vísir/Getty
Monica Lewinsky hefur verið ráðin framleiðandi þriðju þáttaraðar American Crime Story sem er væntanleg árið 2020. Í þessari þáttaröð verður fjallað um ákæru á hendur Bill Clinton, þáverandi forseta Bandaríkjanna, fyrir að hafa logið til um samband sitt við Lewinsky.

Clinton hafði áður greint frá því í sjónvarpsviðtali að hann hefði ekki átt í sambandi við Lewinsky en varð seinna meir að draga það til baka og viðjast afsökunar.

Lewinsky verður framleiðandi ásamt Sarah Burgess, Ryan Murphy, Nina Jacobson, Brad Simpsin, Brad Falchuk, Larry Karaszewski, Scott Alexander, Alexis Martin Woodall og Söruh Paulson.

Monica Lewinsky.Vísir/GEtty
Sú síðastnefnda mun leika Lindu Tripp í þessari þáttaröð en Paulson lék saksóknarann Marciu Clark í þáttaröðinni The People v. O.J. Simpson.

Linda Tripp var samstarfskona Lewinsky sem sendi Kenneth Starr, sjálfstæðum saksóknara upptöku af samtölum hennar við Lewinsky þar sem Lewinsky lýsti sambandi sínu við Clinton.

Upphaf málsins má rekja til Paulu Corbin Jones sem sakaði Clinton um að hafa áreitt sig kynferðislega árið 1991 þegar Clinton var ríkisstjóri Arkansas þar sem hún var starfsmaður. Lögfræðingar hennar vildu sýna fram á að þetta væri eitthvað sem Clinton ætti til og voru því konur yfirheyrðar sem talið var að hann hefði átt í kynferðissambandi við.

Clinton var að endingu ákærður fyrir meinsæri og hindrun réttvísunnar en réttarhöldunum lauk árið 1999 þegar öldungardeild Bandaríkjaþings hafnaði ákærunum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.