Gestaliðið nældi í jafntefli gegn Paragvæ Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar 16. júní 2019 21:00 Katar er með í Suður-Ameríkukeppninni. vísir/getty Paragvæ og Katar skildu jöfn í fyrsta leik sínum í Suður-Ameríkukeppninni í fótbolta í kvöld. Fyrsta mark leiksins lét ekki bíða lengi eftir sér en Oscar Cardozo skoraði úr vítaspyrnu á fjórðu mínútu. Vítaspyrnan var dæmd eftir að Miguel Correia handlék boltann innan vítateigs. Bæði lið fengu færi til að bæta við mörkum en þau komu ekki og staðan 1-0 fyrir Paragvæ í hálfleik. Snemma í seinni hálfleik skoraði Cardozo sitt annað mark þegar hann potaði fyrirgjöf Miguel Almiron í netið. Markið var hins vegar dæmt af vegna rangstöðu eftir myndbandsdómgæslu. Leikmenn Paragvæ voru hins vegar ekki lengi að skora aftur, í þetta skipti var enginn vafi um það að Derlis Gonzalez hefði skorað löglegt mark þegar hann skoraði með laglegu langskoti á 56. mínútu. Katar, sem er gestaþjóð á mótinu, jafnaði leikinn á 68. mínútu þegar Ali Almoez skoraði og níu mínútum seinna jafnaði Boualem Khoukhi metin fyrir Katar. Hvorugu liðinu tókst að finna sigurmarkið, leiknum lauk með 2-2 jafntefli. Copa América Fótbolti
Uppgjörið: Tindastóll - Stjarnan 110-97 | Stólarnir svöruðu og leiða nú úrslitaeinvígið Körfubolti
Uppgjörið: Breiðablik - Vestri 1-2 | Vestri tryggði sér síðasta farseðilinn í 8-liða úrslit Íslenski boltinn
Þeir bestu (40.-31. sæti): Gullfundur í Góða hirðinum, galdurinn í Garðabænum og költhetjan Íslenski boltinn
Þeir bestu (30.-26. sæti): Markvörður stóru augnablikanna, varnargoð úr Eyjum og Vesturbænum, Smalinn og listamaðurinn Íslenski boltinn
Þeir bestu (30.-26. sæti): Markvörður stóru augnablikanna, varnargoð úr Eyjum og Vesturbænum, Smalinn og listamaðurinn
Uppgjörið: Tindastóll - Stjarnan 110-97 | Stólarnir svöruðu og leiða nú úrslitaeinvígið Körfubolti
Uppgjörið: Breiðablik - Vestri 1-2 | Vestri tryggði sér síðasta farseðilinn í 8-liða úrslit Íslenski boltinn
Þeir bestu (40.-31. sæti): Gullfundur í Góða hirðinum, galdurinn í Garðabænum og költhetjan Íslenski boltinn
Þeir bestu (30.-26. sæti): Markvörður stóru augnablikanna, varnargoð úr Eyjum og Vesturbænum, Smalinn og listamaðurinn Íslenski boltinn