Samgönguráðherra segir langþráðum áfanga náð, miklar væntingar séu gerðar til þess að nýr Herjólfur nýtist betur til siglinga um Landeyjahöfn en forverinn.

Herjólfur annar kom til landsins 1976 og sigldi milli Þorlákshafnar og Eyja.
Herjólfur þriðji var tekinn í notkun 1992. Hann hefur siglt um Þorlákshöfn og Landeyjahöfn frá opnun hennar.
Níu árum eftir opnun Landeyjahafnar og 27 árum eftir komu síðasta Herjólfs nefndi forsætisráðherra nýjan Herjólf formlega í dag.
Vegamálastjóri, samgönguráðherra og bæjarstjóri Vestmannaeyja klipptu á borða og samgönguráðherra afhenti Vestmannaeyingum ferjuna.

„Það er verið að setja upp frekari dýpkunarleiðir frá landi. Það er verið að skoða hugmyndir heimamanna og aðrar leiðir. Þetta er langhlaup og þróunarstarf að búa til höfn í sandfjöru. En núna er hitt púslið komið, það er að segja ferjan, og þá getum við kannski farið að sjá betur hvernig þetta spilast saman, ferjan og höfnin,“ segir Sigurður Ingi.
Samgönguráðherra segir að verið sé að stíga risastórt skref í orkuskiptum í samgöngum með rafdrifinni ferju.
„Við erum auðvitað með aðrar ferjur í landinu. Við erum þegar farin að huga að því að geta rafvætt þær við endurnýjun. Þess vegna er svo gott að rjúfa múrinn og fara hér í gegn með þessu glæsiskipi sem við erum að fá hér í dag.“