Erlent

Vitni í Rússarannsókninni handtekið fyrir vörslu barnakláms

Kjartan Kjartansson skrifar
Nader bar vitni fyrir ákærudómstóli Rússarannsóknarinnar.
Nader bar vitni fyrir ákærudómstóli Rússarannsóknarinnar. AP/C-SPAN

Óformlegur ráðgjafi krónprins Sameinuðu arabísku furstadæmanna sem bar vitni í Rússarannsókninni svonefndu hefur verið handtekinn í Bandaríkjunum vegna vörslu á barnaklámi. Kynferðislegar myndir af börnum fundust í fórum hans þegar hann var fyrst stöðvaður vegna rannsóknarinnar á afskiptum Rússa af forsetakosningunum árið 2016.

George Nader, sextugur Bandaríkjamaður af líbönskum uppruna, veitti saksóknurum Roberts Mueller, sérstaka rannsakanda dómsmálaráðuneytisins, upplýsingar um milligöngu hans um fundi á milli nokkurra erlendra ríkja og fulltrúa embættistökunefndar Donalds Trump Bandaríkjaforseta vikurnar eftir kosningarsigur hans í nóvember árið 2016.

Þegar alríkislögreglumenn stöðvuðu Nader árið 2017 og færðu hann til yfirheyrslna fundust kynferðisleg myndbönd af ungum drengjum á snjallsíma Nader, að sögn New York Times. Hann var þá á leiðinni til Mar-a-Lago, klúbbs Trump á Flórída, til að fagna því að ár var liðið frá embættistöku Trump. AP-fréttastofan segir að dýraklám hafi einnig fundist í fórum Nader. Þá hafi myndskeið sem fundust í síma hans sýnt grófa misnotkun á allt niður í þriggja ára gömlum börnum.

Nader fékk friðhelgi gegn saksókn að hluta til gegn samvinnu hans við Mueller. Hann var hins vegar handtekinn á flugvelli í New York í gær. Leynd var þá aflétt af ákæru vegna barnakláms á hendur honum. Nader gæti átt allt frá 15 til 40 ára fangelsisdóm yfir höfði sér verði hann fundinn sekur en hann var einnig ákærður vegna barnakláms í Bandaríkjunum árið 1991. Dómstóll í Tékklandi sakfelldi Nader einnig fyrir að misnota börn og dæmdi í eins árs fangelsi árið 2003.

Erik Prince stofnaði umdeilda fyrirtækið Blackwater sem leigði Bandaríkjaher meðal annars málaliða í Írak.Vísir/AFP

Sagði arabaríki vilja aðstoða Trump við að ná kjöri

Í skýrslu Mueller um rannsóknina á afskiptum Rússa af forsetakosningunum var Nader sagður hafa tengsl við valdamenn í Miðausturlöndum og Rússlandi. Hann hafi notað sambönd sín til að koma á fundum á milli þeirra og einstaklinga sem tengdust framboði Trump bæði fyrir og eftir að Trump varð forseti.

Nader kom meðal annars á fundi á milli Erik Prince, óformlegum ráðgjafa Trump, Kirill Dmitriev, forstjóra rússnesks fjárfestingasjóðs og náins bandamanns Vladímírs Pútín Rússlandsforseta, og Mohammed bin Zayed, krónprins Sameinuðu arabísku furstadæmanna, á Seychelles-eyjum eftir kosningarnar.

Mörgum spurningum um þann fund er enn sagt ósvarað. Nader er einnig hafa sagður hafa sagt Donald Trump yngri, syni Bandaríkjaforseta, að bæði Sameinuðu arabísku furstadæmin og Sádi-Arabíu vildu ólm hjálpa föður hans að ná kjöri sem forseti á fundi sem þeir áttu í ágúst árið 2016. Ólöglegt er fyrir bandarísk stjórnmálaframboð að taka við aðstoð erlendra aðila.

Þá er Nader sagður hafa reynt að hafa áhrif á stefnumótun ríkisstjórnar Trump á fyrstu dögum hennar. Þannig hafi hann átt þátt í að fá Hvíta húsið til að taka afstöðu gegn Katar í nágrannaerjum við Sádi-Arabíu, Sameinuðu arabísku furstadæmin og fleiri ríki. Sá hann um að greiða Elliot Broidy, öðrum óformlegum ráðgjafa Trump og einn stjórnenda Repúblikanaflokksins, á þriðju milljón dollara, til að sannfæra Trump um að taka upp harða stefnu gegn Katar. 

Fundaði Nader nokkrum sinnum með Jared Kushner, tengdasyni Trump og einum nánasta ráðgjafa, og Steve Bannon, þáverandi aðalráðgjafa Trump.


Tengdar fréttir

Arabaríki buðu framboði Trump aðstoð

Sem forseti hefur Trump Bandaríkjaforseti fylgt stefnu sem hugnast Sádí-Arabíu og Sameinuðu arabísku furstadæmunum betur en sú sem Obama og Clinton stóðu fyrir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×