Back 2 Back Premier League Champions!
We reigned and we retained!
#mancitypic.twitter.com/stX3wPtV4P
— Manchester City (@ManCity) May 12, 2019
City endaði með 98 stig, tveimur stigum minna en liðið fékk í fyrra. City fékk einu stigi meira en Liverpool sem vann Wolves á sama tíma, 2-0.
Fyrir leikinn í dag var ljóst að City yrði meistari með sigri. Jafntefli eða tap gæfu Liverpool hins vegar tækifæri á titlinum.
Glenn Murray kveikti vonarneista Liverpool þegar hann kom Brighton yfir með skalla eftir hornspyrnu Pascal Gross á 27. mínútu.
Gleðin var þó skammvin því 83 sekúndum síðar jafnaði Sergio Agüero metin með sínu 21. deildarmarki í vetur.
Á 38. mínútu kom Aymeric Laporte City yfir með skalla eftir hornspyrnu Riyads Mahrez. Staðan var 1-2 í hálfleik.
City hafði mikla yfirburði í seinni hálfleik og bætti tveimur mörkum við.
Mahrez skoraði laglegt mark á 63. mínútu og níu mínútum síðar gerði Ilkay Gündogan fjórða markið með skoti beint úr aukaspyrnu. Lokatölur 1-4, City í vil. Liðið vann síðustu 14 deildarleiki sína á tímabilinu.
Brighton, sem vann aðeins tvo af síðustu 18 leikjum sínum, endaði í 17. sæti deildarinnar.