Sendiherra sem missti stöðuna vegna tengsla við Epstein handtekinn Peter Mandelson, fyrrverandi þingmaður og sendiherra Breta gagnvart Bandaríkjunum, var handtekinn í dag vegna gruns um brot í opinberu starfi. Hann missti sendiherrastöðuna í september eftir að nánara ljósi var varpað á vinskap hans við bandaríska kynferðisafbrotamanninn Jeffrey Epstein. Erlent 23.2.2026 17:21
Andrew á Louvre Breskir aðgerðarsinnar hengdu upp innrammaða ljósmynd af Andrew Mountbatten-Windsor, fyrrverandi Bretaprinsi, á vegg í Louvre-safninu í gær. Á myndinni er flóttalegur Andrew í aftursæti bíls nýkominn úr gæsluvarðhaldi. Menning 23.2.2026 14:36
Báðust afsökunar á niðrandi hljóðkækjum Kynnir BAFTA-hátíðarinnar bað gesti afsökunar á óviðeigandi orðfæri eftir að John Davidson, þekktasti baráttamaður Breta fyrir Tourette-heilkenninu, hrópaði niðrandi orð á hátíðinni. Leikarinn Robert Aramayo, sem leikur Davidson í nýrri mynd, kom honum jafnframt til varnar. Bíó og sjónvarp 23.2.2026 11:29
Andrew handtekinn á heimili sínu Breska lögreglan mætti í morgun heim til Andrew fyrrverandi Bretaprins við Sandringham höll og handtók hann. Vísir fylgist með málinu í vakt sem finna má neðst í fréttinni. Andrew á afmæli í dag og er 66 ára gamall. Erlent 19. febrúar 2026 10:08
Yfir þúsund grunaðir barnaníðingar handteknir í hverjum mánuði Barnaníðsmálum á Bretlandseyjum hefur fjölgað verulega og lögregluyfirvöld handtaka nú um þúsund grunaða barnaníðinga í hverjum mánuði. Þá hefur börnum sem er bjargað frá misnotkun fjölgað um helming á síðustu fimm árum. Erlent 18. febrúar 2026 07:54
Funda um stofnun innlendrar greiðslumiðlunar Stjórnendur banka og fjármálafyrirtækja á Bretlandseyjum munu funda á fimmtudaginn um stofnun nýrrar innlendrar stofnunar, sem myndi sjá um greiðslumiðlun í landinu ef vandamál koma upp með miðlun Visa og Mastercard. Viðskipti erlent 17. febrúar 2026 07:06
Raunveruleg saga Rothschild: Stríð, goðsagnir og ævintýraleg auðæfi Langlífar sögusagnir halda því fram að Rothschild-bankafjölskyldan stýri helmingi allra auðæfa jarðar, fjármagni gjarnan báðar hliðar í styrjöldum og maki þannig krókinn. Lífið 16. febrúar 2026 13:02
Senda flaggskip breska flotans á norðurslóðir Keir Starmer, forsætisráðherra Bretlands, ætlar að senda flugmóðurskipið HMS Prince of Wales og fylgiflota þess á norðurslóðir á þessu ári. Þetta tilkynnti ráðherrann á öryggisráðstefnunni í München í morgun og sagði hann ákvörðunina til marks um staðfestu Breta í að tryggja öryggi á Atlantshafinu. Erlent 14. febrúar 2026 10:40
WhatsApp-skilaboð Auðuns til konunnar ekki metin gild Íslenski fjárfestirinn Auðunn Már Guðmundsson hefur unnið dómsmál í Bretlandi þar sem fyrrverandi eiginkona hans, breska listakonan Hsiao-Mei Lin, reyndi að halda eftir fasteign þeirra hjóna. Dómari við efra dómstig (e. High Court of Justice) í Lundúnum komst að þeirri niðurstöðu að WhatsApp-skilaboð frá Auðuni Má væru ekki löglega bindandi og gætu því ekki talist framsal á hans hluta í eigninni. Innlent 14. febrúar 2026 08:02
Lokar hringnum eftir tíu ár erlendis Matthea Lára Pedersen er úr mikilli listafjölskyldu og hefur starfað víða um Evrópu sem atvinnudansari síðan hún var nítján ára. Garðurinn með Íslenska dansflokknum er hennar fyrsta sýning á Íslandi. Samhliða dansferlinum hefur hún verið í sambandi með fótboltamanninum Kolbeini Finnssyni en milli þeirra ríkir mikill skilningur vegna flakks beggja. Matthea heldur framtíðinni opinni svo lengi sem hægt er að púsla dansinum saman við lífið. Lífið 13. febrúar 2026 07:00
Mega ekki kenna haframjólk við mjólk Hæstiréttur Bretlands hefur komist að þeirri niðurstöðu að ekki megi nota orðið „mjólk“ til þess að auglýsa jurtavörur. Aðeins megi nota orðið yfir dýraafurðir. Viðskipti erlent 12. febrúar 2026 13:41
Örláti tannálfurinn Zayn aldrei ástfanginn af Gigi Popparinn Zayn Malik sagðist í nýlegu viðtali aldrei hafa verið ástafanginn af barnsmóður sinni, ofurfyrirsætunni Gigi Hadid, en þau voru saman í sex ár. Zayn rifjaði upp í sama viðtali skammirnar sem hún veitti honum fyrir að hafa dekrað dóttur þeirra með hárri fjárhæð frá tannálfinum. Lífið 12. febrúar 2026 11:50
Trommari The Pogues er látinn Andrew Ranken, trommari ensk-írsku þjóðlagasveitarinnar The Pogues, er látinn. Hann varð 72 ára gamall. Lífið 11. febrúar 2026 14:36
Rifust um Trump áður en faðir skaut dóttur sína til bana Lucy Harrison, 23 ára bresk kona frá Warrington í Cheshire, var skotin til bana þann 10. janúar í fyrra þegar hún var í heimsókn hjá föður sínum í Prosper, nærri Dallas í Texas í Bandaríkjunum. Faðir Harrison er sagður hafa skotið dóttur sína í bringuna með þeim afleiðingum að hún lést, eftir að feðginin hafi átt í rifrildi um Donald Trump Bandaríkjaforseta. Erlent 11. febrúar 2026 10:13
Hvetur Starmer til að segja af sér Leiðtogi Verkamannaflokksins í Skotlandi kallar eftir breytingum á þingi og vill að forsætisráðherra Bretlands, Keir Starmer, segi af sér. Þingmenn stíga fram og lýsa yfir stuðningi við forsætisráðherrann. Erlent 9. febrúar 2026 17:51
Vilhjálmur og Katrín hafi „djúpar áhyggjur“ vegna Epstein-afhjúpunar Vilhjálmur prins af Wales og kona hans Katrín prinsessa eru sögð hafa miklar áhyggjur vegna nýjustu afhjúpana í tengslum bandaríska kynferðisbrotamanninn Jeffrey Epstein. Erlent 9. febrúar 2026 10:36
Prinsinn fyrrverandi deildi trúnaðarupplýsingum með Epstein Andrew Mountbatten-Windsor, fyrrverandi Bretaprins og yngri bróðir Karls Bretakonungs, virðist hafa vísvitandi deilt trúnaðarupplýsingum með Jeffrey Epstein úr opinberu starfi sínu sem viðskiptasendiherra árin 2010 og 2011. Það kemur fram í nýjustu Epstein-skjölunum. Fjallað er um málið á vef BBC. Erlent 8. febrúar 2026 21:26
Nánasti ráðgjafi Starmers segir af sér Morgan McSweeney hefur sagt af sér sem starfsmannastjóri Keir Starmer, forsætisráðherra Bretlands. Hann kveðst hafa spilað stórt hlutverk í aðdraganda skipan Peter Mandelson sem sendiherra Breta í Bandaríkjunum. Erlent 8. febrúar 2026 16:00
Prinsinum hafi verið hent út á miðnætti Andrési Bretaprins var hent út af heimili sínu á miðnætti í vikunni og gert að flytja í annað húsnæði á vegum konungshallarinnar. Þetta fullyrða bresk götublöð en flutningarnir eru sagðir hafa átt sér stað aðfaranótt mánudagsins. Lífið 8. febrúar 2026 15:47
Alan Carr á Íslandi Breski grínistinn og sjónvarpsmaðurinn Alan Carr er staddur á Íslandi og hefur ferðast víða um landið undanfarna daga. Lífið 6. febrúar 2026 11:39
Starmer gagnrýndur af samflokksmönnum sínum Þrýstingur eykst nú á Keir Starmer forsætisráðherra Breta en lægra settir þingmenn í Verkamannaflokki hans eru sagðir afar ósáttir við hvernig foringi þeirra tók á máli Peters Mandelsons fyrrverandi ráðherra og sendiherra Breta í Bandaríkjunum sem nú hefur verið rekinn úr flokknum. Erlent 5. febrúar 2026 07:30
Lögregla hefur rannsókn á samskiptum Mandelson og Epstein Lögregluyfirvöld á Bretlandseyjum hafa hafið rannsókn á framgöngu stjórnmálamannsins Peter Mandelson, sem er grunaður um að hafa lekið opinberum gögnum og viðkvæmum upplýsingum til athafna- og kynferðisbrotamannsins Jeffrey Epstein. Mandelson, þá viðskiptamálaráðherra, er meðal annars grunaður um að hafa lekið upplýsingum um samtöl ráðamanna í kjölfar efnahagshrunsins árið 2008. Erlent 4. febrúar 2026 08:42
Fangelsaður fyrir innbrot á dvalarstað Taylor-Joy Vopnaður ræningi sem reyndu að komast inn í svefnherbergi bandarísku leikkonunnar Anya Taylor-Joy og eiginmanns hennar Malcom McRae hefur verið úrskurðaður í fangelsi. Erlent 3. febrúar 2026 22:58
Brotist inn til sjónvarpsstjörnu og fótboltakappa Sjónvarpskonan Maya Jama og fótboltamaðurinn Rúben Dias lentu í miður skemmtilegu atviki þegar brotist var inn í heimili þeirra í Cheshire í norðvesturhluta Englands. Lífið 30. janúar 2026 17:06