Lífið

Einsdæmi í Eurovision-sögu Íslendinga

Stefán Árni Pálsson skrifar
Hatari fékk mikla athygli á appelsínugula dreglinum í gær og var því erfitt að ná viðtali við þá.
Hatari fékk mikla athygli á appelsínugula dreglinum í gær og var því erfitt að ná viðtali við þá.
Nú er einn sólarhringur þar til að Hatari stígur á svið í Tel Aviv á fyrra undanúrslitakvöldi Eurovision. Söngvarar sveitarinnar gáfu færi á viðtölum á appelsínugula dreglinum í borginni í gær. 

Þeir Matthías Tryggvi Haraldsson og Klemens Hannigan gáfu blaðamönnum líklega ekki þau svör sem þeir leituðust eftir á appelsínugula dreglinum í Tel Aviv í gær.

„Við reynum að blanda ekki okkar persónulegum tilfinningum inn í málið en áætlunin gengur smurt,“ sagði Matthías Tryggvi Haraldsson.

„Við fáum allt sent frá Svikamyllu ehf. daglega og við fylgjum því með miklu stolti,“ sagði Klemens.

Matthías bætti því við að þeir hefðu fengið viðbúnar spurninga.

„Þetta er mest um okkar eigin líðan og persónulega líf og við reynum að svara sem fæstu á þeim nótum. Þetta hefur verið viðburðasnauður viðtalstími fyrir flesta fjölmiðlamenn.“

Því næst kom fram spurningin hvort Hatrið muni sigra væri listgjörningur sem væri öskur í leit að munni.

„Ég ætla segja já,“ sagði Matthías og Klemens bætti við: „Vel mælt.“

Það hefur verið gríðarlega mikið að gera hjá fjölmiðlafulltrúa íslenska hópsins síðustu daga og er álagið orðið mikið, nú þegar styttist í stóru stundina.

„Það er alveg gríðarlegur áhugi á Hatara og ég held að þetta sé einsdæmi í Eurovision-sögu Íslendinga. Allir stærstu fjölmiðlar í heiminum eru að tala við okkur, miðlar eins og CNN, HBO, sænska ríkissjónvarpið, Daily Telegraph, Aftonbladet og þetta er núna bara allt á næstu dögum,“ segir Rúnar Freyr Gíslason, fjölmiðlafulltrúi.

„Ég þarf að segja nei við flesta, því miður verður það að vera þannig því þau hafa takmarkaðan tíma. Svo verða þau að sinna atriðinu sínu sem skiptir öllu máli, þessum þremur mínútum.“

Hatari er þrettánda atriði á svið á þriðjudagskvöldið og er spáð góðu gengi í riðlinum sem er fyrir fram talinn sá veikari af riðlunum tveimur.


Tengdar fréttir

Nýjasti Eurovision-gullmoli Svía deilir ekki skoðunum Hatara

John Lundvik er nafn sem aðdáendur Eurovision ættu að leggja á minnið hafi þeir ekki gert það nú þegar. Sænski söngvarinn og lagahöfundurinn þykir afar líklegur til að standa uppi sem sigurvegari í Tel Aviv í ár.

Fá helminginn af atkvæðunum í dag

Hljómsveitin Hatari, fulltrúi Íslands í Eurovision í Tel Aviv í ár, stígur á svið í kvöld og flytur íslenska framlagið, Hatrið mun sigra, á svokölluðu dómararennsli.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.