Lífið

Hera Björk fínpússar raddir Hatara

Stefán Árni Pálsson í Tel Aviv skrifar
Hera Björk hefur áður tekið þátt í keppninni og þekkir þetta mjög vel.
Hera Björk hefur áður tekið þátt í keppninni og þekkir þetta mjög vel.
Söngkona Hera Björk Þórhallsdóttir hefur síðustu daga verið í Tel Aviv og kom meðal annars fram á Euro Café klúbbnum í vikunni. Hera er mjög vinsæl í Eurobúbblunni og á ótal aðdáendur sem vilja óðir fá myndir af sér með drottningunni.

Hera tók þátt í keppninni árið árið 2010 með lagið Je Ne Sais Quoi og hafnaði hún þá í 19. sæti.

Hera er gestur dagsins í Júrógarðinum  en hún hefur unnið með Hatara-hópnum alveg frá því að þau unnu Söngvakeppnina en Hera er raddþjálfari sveitarinnar.

„Ég er aðeins búin að vera hjálpa krökkunum með raddbeitingu síðan þau unnu Söngvakeppnina,“ segir Hera.

„Ég er rosalega ánægð með þau og fannst þau standa sig rosalega vel. Ég veit hvað þetta er rosaleg pressa og það er eiginlega ekki hægt að leggja það á fólk að gera þetta óaðfinnanlega, en mér fannst þetta algjör negla,“ segir Hera en viðtalið við hana var tekið á miðvikudagskvöldið.

„Það hefur verið svo gaman að fylgjast með þeim. Þau eru svo einbeitt og duglega og vilja skila frá sér góðu verki. Þau hafa tekið rosalega vel við leiðsögn og það er bara búið að vera ánægja og heiður að vinna með þessu fólki.“

Hatari stígur á sviðið í Expo-höllinni í  Tel Aviv í kvöld og kemur fram á dómararennslinu. Svo er komið að stóru keppninni annað kvöld.

Fréttastofa Stöðvar 2 og Vísis verður með ítarlega umfjöllun frá Eurovision í Tel Aviv næstu daga. Fréttamaðurinn Stefán Árni Pálsson sér um vefþáttinn Júrógarðinn og aðra umfjöllun hér á Vísi og í fréttum Stöðvar 2 á hverjum degi í gegnum alla keppnina. Júrógarðurinn er í boði Domino´s.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.