Ætla sér ekki að endurtaka kosningarnar
Jónas Þór Jónasson lögmaður Sjómannafélags Íslands hefur svarað erindi sjómannanna Arnars Leós Árnasonar og Sigurðar Þórðar Jónssonar sem kröfðust í ljósi úrskurðarins að kosningarnar yrðu endurteknar. Stjórn SÍ hefur engin slík áform uppi.„Þó svo að í dómi Félagsdóms hafi margnefnd 3ja ára regla verið talin andstæð 1. málslið 1. málsgreinar 2. greinar laga um stéttarfélög og vinnudeilur, þá standa eftir tveir annmarkar á mótframboðinu, sem leiða eftir sem áður til ólögmæti þess. Er engin heimild í lögum félagsins til þess að endurupptaka og/eða breyta framangreindum bindandi úrskurði kjörstjórnar og þar sem framangreindar forsendur hans eru óbreyttar stendur niðurstaða úrskurðarins um úrslit stjórnarkosninga í félaginu,“ segir meðal annars í bréfi sem Jónas Þór undirritar fyrir hönd kjörstjórnar Sjómannafélags Íslands.
Mikil ólga meðal sjómanna
Verulegar ólgu gætir meðal sjómanna sem Vísir hefur rætt við auk þeirra Arnars Leós og Sigurðar Þórðar og þeir farnir að velta því fyrir sér hverju valdi því að menn þverskallist við að opna dyr sínar? Hverju sé verið að leyna? Ekki er orðum aukið að þeir sem Vísir hefur rætt við séu reiðir. Þá hafa sjómenn þungar áhyggjur af því að félagið sé búið að mála sig út í horn, ekkert annað félag sjái fyrir sér að geta átt með því samleið til dæmis vegna kjaraviðræðna, svo mjög hafi það traðkað á lýðræðislegum sjónarmiðum.Vísir sendi Bergi Þorkelssyni fyrirspurn fyrr í þessum mánuði í kjölfar þess að SÍ sendu Heiðveigu Maríu bréf og buðu henni að koma aftur í félagið nokkuð sem hún hafnaði alfarið á þeim forsendum að hún líti svo á að brottrekstur hennar hafi verið ólögmætur. Þar er meðal annars spurt hvort til greina komi af hálfu félagsins að endurtaka kosningarnar sem Félagsdómur hefur dæmt ólöglegar? En, Bergur hefur ekki komið því við að svara. Nú liggur hins vegar fyrir að foringjar félagsins hafa ekki hugsað sér að líta til úrskurðar Félagsdóms í neinu því sem nýr að hugsanlegu endurnýjuðu stjórnarkjöri.
Önnur kæra á hendur SÍ í farvatninu
Vísir ræddi við Kolbrúnu Garðarsdóttur, lögmann Heiðveigar Maríu, og hún segist hafa sent félaginu bréf sem stílað er á Jónas Þór lögmann. Þar segir meðal annars að afar mikilvægt sé að hann geri forsvarsmönnum félagsins grein fyrir því að „dómur Félagsdóms um ólögmæti 3 ára takmörkunar til kjörgengis felur í sér að kjörgengi var almennt ekki til staðar fyrir ótilgreindan hóp félagsmanna og það eitt þýðir að kosningarnar verði að auglýsa að nýju og öllum gefinn kostur á að bjóða sig fram. Lög félagsins girða ekki fyrir að hægt er að kalla saman aukaaðalfund og ná sátt um dagsetningar og annað varðandi málið.“Kolbrún segir að nú stefni allt í að Sjómannafélag Íslands verði kært aftur til Félagsdóms, það sé nú til skoðunar.