Lífið

Edda Sif veldur uppnámi með glannalegum ummælum

Jakob Bjarnar skrifar
Roald Viðar er harður á því að ummæli Eddu Sifjar séu ekki boðleg. Friðrik Ómar spyr hvort það sé nú ekki heldur dramatískt og Marta María spyr Roald hvort hann sé alveg búinn að tapa húmornum.
Roald Viðar er harður á því að ummæli Eddu Sifjar séu ekki boðleg. Friðrik Ómar spyr hvort það sé nú ekki heldur dramatískt og Marta María spyr Roald hvort hann sé alveg búinn að tapa húmornum.
Sjónvarpskonan Edda Sif Pálsdóttir hefur stuðað margan manninn með glannalegum ummælum sínum sem hún lét falla á Instagrammsíðu sinni. Þar segir hún: „Helgarfrí er fyrir homma og kellingar“.

Þessi hispurslausu ummæli hafa farið fyrir brjóstið á mörgum manninum enda ekki beinlínis í takti við tíðarandann.

Edda Sif stundar ekki mikla sjálfsritskoðun á Instagram.
Roald Viðar Eyvindsson framkvæmdastjóri, sem sjálfur er samkynhneigður og hefur látið til sín taka í réttindabaráttu þeirra árum saman til dæmis sem framkvæmdastjóri hins ágæta vefrits GayIceland, honum er ekki skemmt. Hann segir að sér hafi alltaf fundist fjölmiðlakonan Edda Sif til fyrirmyndar, en þessi ummæli hennar á Instagramm fái algera falleinkunn.

Roald vekur athygli á þessum ummælum Eddu á Facebooksíðu sinni og eru flestir sem þar taka til máls á því að Edda Sif hafi þarna farið langt fram úr öllu því sem ásættanlegt má heita í galsahætti á samfélagsmiðlum. Söngvarinn Friðrik Ómar spyr þó hvort Þetta sé nú ekki „aðeins of mikið drama“? En, Roald segir svo alls ekki vera.

Þó er ein úr fjölmiðlastétt sem rís Eddu Sif til varnar, en það er samkvæmisfréttakonan Marta María Jónsdóttir sem spyr Roald, sem hún starfaði með á sínum tíma á Fréttablaðinu, hvort menn séu alveg búnir að tapa húmornum?






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.