Skoðun

Gilda lög ekki um Má Guð­munds­son?

Heiðar Már Guðjónsson skrifar
Ég lenti í löglausri aðför Seðlabankans með félag mitt Ursus árið 2010 þegar ég var ásamt hópi fjárfesta hæstbjóðandi í opnu söluferli Sjóvár. Þar voru stjórnsýslulög brotin og ég kærður til lögreglu þrátt fyrir að hafa engin lög brotið. Ég fékk engan andmælarétt og málið tók tvö ár af lífi mínu sökum valdníðslu Seðlabankans. Sérstakur saksóknari, ríkissaksóknari og umboðsmaður Alþingis staðfestu allir sakleysi mitt og það lá ljóst fyrir eftir athuganir þeirra að það var Seðlabankinn sem braut á mér.

Það er því áhugavert að lesa umkvartanir Más Guðmundssonar um greinargerð bankaráðs Seðlabanka Íslands sem forsætisráðherra óskaði eftir. Þar kvartar hann yfir því að hafa ekki andmælarétt. Hann á engan slíkan rétt, enda er hann stjórnvald en eftirlitsaðilinn, bankaráðið sem kosið er af Alþingi, er ekki stjórnvald samkvæmt lögum. Bankaráðið er að svara forsætisráðherra en ekki seðlabankastjóra og ekkert vekur upp andmælarétt í þeim samskiptum. Már kvartar með öðrum orðum yfir því að ytri rannsókn á misheppnuðum embættisfærslum hans sé ekki unnin í samráði við hann!

Steininn tekur síðan úr í óskammfeilni Más þegar hann reynir að hóta bankaráðinu. Hvernig getur embættismaður fengið að hóta eftirlitsaðilum Alþingis með þeim hætti sem hann gerir?

Már Guðmundsson hefur gerst margbrotlegur í starfi samkvæmt athugun saksóknara og umboðsmanns Alþingis. Hann hefur gengið svo langt að halda gögnum leyndum og hunsa niðurstöður eftirlitsaðila. Í vikunni kom svo í ljós að einbeittur brotavilji hans er enn til staðar þegar hann ætlar að stöðva réttmæt samskipti bankaráðs við forsætisráðuneytið. Það er löngu tímabært að Már Guðmundsson verði látinn bera ábyrgð á ólöglegum embættisfærslum sínum. Það getur ekki verið að hann sé einn borgara ofar lögum landsins.

Höfundur er stjórnarformaður Sýnar hf. sem Vísir tilheyrir.




Skoðun

Skoðun

21 blár

Jón Pétur Zimsen skrifar

Sjá meira


×