Svona hefst nýjasti heilsupistill Ragnhildar Þórðardóttur, sem er betur þekkt sem Ragga Nagli, á Facebook. Þar talar hún um að brauð sé ekki ógn við heimsfriði og að djöfullinn liggi í magninu.
„Of mikið er ekki gott fyrir okkur. Það á við um allt. Að gleypa sjö beyglur á sólarhring er ekki gott fyrir þig. Að juða í sig súkkulaði allan daginn er ekki gott fyrir þig.“
Nú þegar ketó-matarræðið tröllríður öllu tekur Ragga Nagli einnig fram að það sé heldur ekki gott að borða eingöngu ribeye steik.
„Að slafra grænkálssmúðinga í allar máltíðir er ekki gott fyrir þig. Að drekka átta lítra af vatni á dag er heldur ekki gott fyrir þig. Það sem er hins vegar gott fyrir okkur er að borða næringarríka fæðu fram yfir næringarsnauða. Það er líka gott fyrir okkur að tileinka sér fjölbreytt mataræði með eins mörgum matvælum og komast fyrir.
Þarft öll orkuefnin
Það sem er langbest fyrir okkur er að borða allskonar mat án þess að fá samviskubit þó að heit súrdeigssneið með smjöri rati á matardiskinn.“Ragga spyr sína fylgjendur, sem eru 23 þúsund, hvernig þeirra matarræði líti út?
„Ef þú ert að fá öll orkuefnin sem þú þarft. Prótein. Kolvetni. Fitu. Ef þú ert að næra þig vel með heilum afurðum. Þá mun einstaka brauðskorpa í radíus við munnvikin ekki spika þig upp eins og aligæs. Þú munt ekki missa kontrólið og kúlið og tæta upp allan Samsölupokann.“
Ragga segir að fólk eigi frekar að skora á þessar gömlu hugsanir sem eru yfirleitt runnar undan rifjum megrunariðnaðarins og borðaðu matvæli sem hafa ratað á bannlistann þinn.
„Engin matvæli koma úr forgarði helvítis. Stundum er það frekar mataræðið í heildina sem þarf smá fínpússun. Stundum eru það eigin hugsanir og óraunhæfur ótti við matvæli sem halda okkur frá gleðinni. Jafnvægi er lykilinn að langtímaárangri.“