Þórhallur þjálfar Þrótt Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 19. febrúar 2019 14:52 Þórhallur Siggeirsson og Halldór Geir Heiðarsson. Mynd/Heimasíða Þróttar
Þórhallur Siggeirsson verður þjálfari Þróttar í Inkasso deildinni í sumar og mun taka við starfinu af Gunnlaugi Jónssyni. Þróttur segir frá samningi sínum við Þórhall sem nær út næstu þrjú tímabil eða til loka keppnistímabils árið 2021. Þróttur segir frá þessu á heimasíðu sinni. Þróttaraliðið endaði í 5. sæti í Inkasso-deildinni á síðasta tímabili en Gunnlaugur tók við liðinu í apríl eftir að Gregg Ryder hætti óvænt. Ári síðar hætti Gunnlaugur síðan líka með félagið þegar undirbúningstímabilið var hafið.Knattspyrnudeild Þróttar hefur gengið frá ráðningu á Þórhalli Siggeirssyni sem þjálfara meistaraflokks karla og gildir samningurinn til loka keppnistímabils árið 2021. Halldór Geir Heiðarsson hefur samhliða verið ráðinn aðstoðarþjálfari Þórhalls í meistaraflokknum. pic.twitter.com/RiRV8oM3j1 — Þróttur (@throtturrvk) February 19, 2019Þórhallur var aðstoðarþjálfari Gunnlaugs Jónssonar á síðasta keppnistímabili en hann er jafnframt yfirþjálfari yngri flokka starfs hjá Þrótti og mun halda því starfi áfram. Þórhallur er með UEFA-A þjálfaragráðu auk þess að vera með M.Sc gráðu í íþróttavísindum og þjálfun frá Háskólanum í Reykjavík og hefur mikla reynslu af þjálfun yngri flokka. Þórhallur hefur þjálfað hjá HK, Val og nú síðast hjá Stjörnunni þar sem hann var yfirþjálfari yngri flokka frá 2014-2017 en þetta er frumraun hans sem aðalþjálfari meistaraflokks. Aðstoðarmaður Þórhalls verður Halldór Geir Heiðarsson. Halldór Geir, sem hefur verið hluti af þjálfarateymi meistaraflokks og 2.flokks auk þess að vera yfirmaður afreksþjálfunar í ellefu manna bolta. Hann mun væntanlega ná UEFA-A þjálfaragráðu síðar í vor en hann var áður þjálfari í yngri flokkum Stjörnunnar.
Íslenski boltinn Mest lesið „Ég er að fara aftur til Svíþjóðar“ Handbolti Náðu loksins Ólympíufaranum á lista FBI yfir hættulegustu glæpamennina Sport Össur gagnrýndi fýlulegar og miskunnarlausar spurningar Loga Handbolti Skýrsla Vals: Ekki aftur Handbolti Klikaði á Panenka-vítaspyrnu og meiddi sig við það Fótbolti Svíar voru fljótir að snúa við blaðinu í seinni hálfleik Handbolti Oliver hættur í fótbolta vegna meiðsla Íslenski boltinn Líkur Íslands á verðlaunum hafa snaraukist Handbolti Breska lögreglan gagnrýnir brandara forseta FIFA Fótbolti Botna ekkert í Snorra: „Við erum teknir í bólinu“ Handbolti Fleiri fréttir Oliver hættur í fótbolta vegna meiðsla Rugluðust á nafni nýja leikmannsins Sigurður Bjartur á leið til Spánar? Stjarnan selur Adolf Daða til FH Þór/KA fær þrjá leikmenn frá Stólunum á fimm leikmanna degi Fyrirliði FHL er mættur í Laugardalinn Telma eltir þjálfarann í Garðabæinn Hringdu dag og nótt til að klófesta Guðmund: „Konan var að verða geðveik á þeim“ Bryndís Arna er komin heim og samdi við Breiðablik Gummi Tóta orðinn leikmaður ÍA Þróttur skellti KR í Reykjavíkurmótinu KR fær tvo unga Ganverja Breytingar hjá Breiðabliki „Á eftir bolta kemur barn“ Viðar Örn leitaði sér aðstoðar við áfengis- og spilafíkn Trúin eykst á Suðurnesjum með komu McLaughlin Blikar farnir að fylla í skörðin Víkingur og Breiðablik mætast í fyrsta leik Bestu deildarinnar Rafael Máni eltir rætur sínar upp á Skaga Tveir ungir varnarmenn til FH Kristín Dís áfram í herbúðum Blika Miðbær Reykjavíkur er Íslandsmeistari Snýr aftur til Íslands og tekur við ÍBV Róbert með þrennu í sigri KR Fram lagði Leiknismenn Landsliðsbræður Palestínu sameinast í Keflavík Bikarhetjan til KA Þrótti berst mikill liðsstyrkur úr Keflavík Jón Guðni aðstoðar Ólaf Inga Blikarnir eru búnir að missa 34 mörk og 25 stoðsendingar Sjá meira