Opinbera nöfn um 298 presta sem sakaðir hafa verið um barnaníð í Texas Samúel Karl Ólason skrifar 1. febrúar 2019 11:31 Daniel DiNardo,kardínáli, erkibiskup Gaveston-Houston og forseti ráðs biskupa í Bandaríkjunum. AP/Patrick Semansky
Forsvarsmenn kaþólsku kirkjunnar í Texas í Bandaríkjunum hafa opinberað nöfn 298 presta sem var sakaðir um barnaníð með trúverðugum hætti frá 1941. Nöfnin voru opinberuð í kjölfar umfangsmikillar rannsóknar dómsmálaráðuneytis Pennsylvaníu sem opinberuð var í sumar. Hún sýndi fram á umfangsmikið yfirvarp kirkjunnar vegna ásakana um barnaníð og kynferðislegt ofbeldi.Þar kom fram að rúmlega 300 prestar í 15 biskupsdæmum hefðu misnotað minnst þúsund börn á 70 árum. Sú rannsókn leiddi til þess að sambærilegar rannsóknir voru settar á laggirnar víða um Bandaríkin. Texas er ekki meðal þeirra ríkja sem hefur hafið sambærilega rannsókn en þrátt fyrir það gerðu lögregluþjónar og útsendarar Alríkislögreglu Bandaríkjanna húsleitir í skrifstofum kirkjunnar í Texas í nóvember.Daniel DiNardo, kardínáli, erkibiskup Gaveston-Houston og forseti ráðs biskupa í Bandaríkjunum, segir það hafa verið eina rétta að opinbera nöfnin. Hann segist vonast til þess að með þessu gætu fórnarlömb prestanna byrjað að lækna sár sín og að opinberunin gæti aukið traust til kirkjunnar á nýjan leik. Þá hvatti DiNardo fólk til að tilkynna ofbeldi presta.Samkvæmt USA Today hafa um 50 biskupsdæmi opinbera nöfn tæplega 1.500 presta sem hafa verið sakaðir um barnaníð með trúverðugum hætti. Forsvarsmenn 30 biskupsdæma til viðbótar segjast vera að rannsaka ásakanir eða hafa heitið því að opinbera nöfn presta sem hafa verið ásakaðir um níð.
Bandaríkin Mest lesið Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Innlent Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Innlent „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Innlent Vilja öll greiða atkvæði um að kljúfa sig frá Bretlandi Erlent Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Innlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Innlent „Hverjir tala við mömmu mína?“ Innlent Fleiri fréttir Munurinn minnkar í nýrri spá Vinstri blokkin leiðir í útgönguspám „Það er mjög jafnt á milli blokkanna“ Óboðinn gestur gripinn við heimili Harris Vilja öll greiða atkvæði um að kljúfa sig frá Bretlandi Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Lokuðu einni mikilvægustu olíuleiðslunni „Ekkert sem gat bjargað þessu“ Látin jafngömul og móðir hennar sem var myrt af föðurnum Þingkosningar í Svíþjóð: Stjórnin riðar til falls en að mynda nýja gæti reynst erfitt Minnst 44 slasast og ein í lífshættu eftir lestarslys í Frakklandi Systir Haraldar er látin Dönsk kona ákærð fyrir að verða nýfæddum börnum sínum að bana Stefna kanslaranum fyrir meiðyrði um Valkost fyrir Þýskaland Gerðu drónaárásir á verslunarmiðstöð Tók konu hálstaki sem söng með á söngleik 25 ár frá 9/11: Ólíkar útgáfur Trumps af deginum Rússar gómaðir með leynilega sæstrengjaklippu Kanna hvort Kim eigi son Biður dómara um að hlífa Clancy við öðrum réttarhöldum Miklar hækkanir á olíumörkuðum í dag Reyndi að vara við að flugvélin færi of hratt Tugir látnir í eldsvoða í flutningaskipi í Kína Boðar til skyndikosninga til að lægja öldurnar í Serbíu Ætli að gefa öllum þúsundir dollara ef repúblikanar sigra Játar aðild að einu stærsta Bitcoin-þjófnaðarmáli sögunnar Heitasta sumarið í Vestur-Evrópu Pakistanar sögðu klerkastjórninni að koma böndum á Húta Viðurkenndi efasemdir: „Ég ætla samt ekki að sýkna hana“ Selenskí kíkti á klakann Sjá meira