Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 13. september 2026 12:45 Björn Þorláksson varð frá að hverfa. Hertar reglur um aðgengi í sundlaugar í Reykjavík tóku gildi með breyttri gjaldskrá í maí. Sundlaugagestur sem gleymdi sundkorti þurfti frá að hverfa þar sem ekki dugir lengur að gefa upp kennitölu í afgreiðslunni. „
Núna verður að sýna kortið, ef gestir eru ekki með þau þá þarf að sýna lögleg skilríki, það er ekki lengur hægt að fletta bara upp kennitölu í afgreiðslunni, þú þarft að sanna hver þú ert,“ segir Jenný Hauksdóttir vaktstjóri í Vesturbæjarlaug í Reykjavík í samtali við Vísi. Tilefnið er sneypuför Björns Þorlákssonar blaðamanns á Samstöðinni sem varð frá að hverfa á dögunum þegar hann gleymdi sundkorti, símalaus í þokkabót. Björn gerir sneypuförinni skil á Facebook. „Ég segi konunni að ég hafi gleymt kortinu mínu, fullviss að það verði lítið mál að fá stakan miða eins og hefur gerst áður, enda er ég með nett ADHD og gleymi oftar hlutum en margur annar. En vinkona mín, starfsmaðurinn í búrinu, vill nú vita hvort ég sé með skilríki. Ég neita - góða veðrið og núvitundin, muniði? Spyr starfsmanninn hvort hún kannist þó ekki við mig, hvort hún viti ekki að ég sé á árskorti. Hún segir svo vera. Er þá málið ekki leyst?“ Svo reyndist heldur betur ekki vera því þá sagði starfsmaðurinn honum að hann yrði að borga, það væru nýjar reglur í gildi. Björn hvorki með sundkort, síma og ekki heldur veski. „Ég spyr starfsmanninn hvort við getum verið sammála um það í okkar fámenna landi að skilríki séu fyrst og fremst notuð til að sannreyna hvort gestur hafi greitt fyrir réttinn að fara í sund þegar hann gleymir sundkorti. Hvort sú staðreynd að kunnugleiki, að konan viti að ég sé árskorthafi eftir margra ára samfelldar nánast daglegar heimsóknir í Sundlaug Vesturbæjar og fimm hundruð "góðan daginn", ætti ekki að duga til að trompa önnur rök. Svo sannarlega sé ég ekki að reyna að smygla mér ókeypis í sund. Jújú, hún vissi það, svarar hún en segist samt ekkert geta gert.“ Jenný segir að reglurnar hafi tekið gildi í maí síðastliðnum samhliða nýrri gjaldskrár sundlauganna. Hún segir tilvikum þar sem fólk mæti allslaust í sund án korts fækka dag frá degi, það sé lítið sem ekkert um þau tilvik þessa dagana. „Það eru ekki margir. Það er líka af því að kortin eru komin í símana og fólk er langoftast með þá á sér, þannig þetta hefur verið lítið vandamál.“ Þannig þið lendið ekki mikið í kvartandi sundlaugagestum? „Nei, nefnilega ekki. Svo segir maður nú oft bara við fólk að það yrði ekki tekið gilt í verslun ef þú myndir segja við viðkomandi að þú hafir mætt svo oft áður, að þú hljótir að mega taka með þér vöruna án þess að borga.“
Reykjavík Sundlaugar og baðlón Mest lesið Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Innlent Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Erlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Erlent Hútar sagðir hörfa frá mynni Rauðahafs Erlent Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Innlent Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Innlent Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Innlent Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Innlent Missti hönd í mótmælunum Erlent Fleiri fréttir Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Tvær líkamsárásir á borði lögreglu Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Auglýsingatekjur Rúv undir fyrirhuguðu þaki þrjú ár í röð Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Öflugur jarðskjálfti í Bárðarbungu Meiri líkur en minni á að kjarasamningum verði sagt upp Rubio lentur á Íslandi Hafna ásökunum um svik og benda á stjórnvöld Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Opnuðu Arnarnesveg að hluta Tvöföld árekstrarhætta þegar flugumferðarstjóri missti yfirsýn Meirihlutinn sprakk aftur vegna vallarmála Segir Aþenu í andarslitrunum Rubio spenntur að hitta Þorgerði Skakkur á stolnum strætó Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Trúnaðarbrestur milli flokka og innan flokks Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Einn í haldi eftir handtöku í flugstöðinni Ekki fleiri tilkynnt kynferðisbrot í fimm ár Þessi eru tilnefnd til menntaverðlauna Tíu manns veitt sálgæsla eftir banaslysið Ögurstund í kjarasamningamálum „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Vill breyta umdeildum gatnamótum „Við erum ekki að gera þetta til að gleðja fólk í Brussel“ Sjá meira