Æfi mun oftar og betur hérna í Vigo Hjörvar Ólafsson skrifar 19. desember 2018 14:30 Hildur Björg Kjartansdóttir í leik gegn Slóvakíu. Fréttablaðið/Eyþór
Það hefur allt gengið að óskum hjá Hildi Björgu Kjartansdóttur, landsliðskonu, hjá félagsliði sínu í vetur. Hildur Björg færði sig um set á Spáni frá Leganes síðasta vor og skrifaði í kjölfarið undir samning við Celta de Vigo Baloncesto. Hún flutti um leið frá spænsku höfuðborginni Madrid til Vigo sem er minni og þægilegri borg að hennar mati. Liðið hefur unnið fyrstu ellefu deildarleiki sína á leiktíðinni og stefnir hraðbyri að því að tryggja sér farseðilinn i úrslitakeppni og í kjölfarið sæti í efstu deild á næstu leiktíð. „Það urðu mjög miklar breytingar hjá Legenes síðasta vor, þjálfarinn hætti og fór til Rússlands og nánast allir leikmenn liðsins fóru. Forráðamenn Celta de Vigo Baloncesto höfðu samband við mig og sögðu mér að það ætti að setja saman lið sem ætti að fara upp um deild og ég ætti að vera í stóru hlutverki í því liði. Mér leist strax mjög vel á það og sló til,“ segir hún um vistaskiptin í vor. „Allt sem lagt var upp með hefur gengið upp og ég tel mig hafa bætt mig umtalsvert hérna. Bæði er mikið lagt upp úr einstaklingsæfingum og ég fæ betri hvíld og endurheimt á milli æfinga og leikja. Ég get einbeitt mér af fullum krafti að körfuboltanum hérna og það skilar sér í betri leik inni á vellinum. Ég er mestmegnis að spila sem fjarki, en eftir að fimman okkar sleit liðband hef ég leyst hana af hólmi þar einnig,“ segir hún. „Hugmyndafræðin hér er þannig að leikmenn skipta leiktímanum nokkurn veginn jafnt, en ef einhver á betri leik en annar fær hann að njóta þess með auka mínútum. Þetta hentar mér mjög vel og mér líður mjög vel hérna. Það er góð stemming í félaginu og gott yngriflokkastarf. Það skilar sér í fínni mætingu á leikina sem er mjög gaman. Við setjum stefnuna á að fara upp í vor og það er klárlega raunhæft markmið,“ segir landsliðskonan um framhaldið hjá spænska liðinu.
Körfubolti Mest lesið Mikil sorg hjá Haaland Enski boltinn Lokar á föður sinn: Gerði hryllilega hluti við fólkið sem ég elska Enski boltinn „Mjög erfitt þegar hann hætti að geta verið sá maður“ Íslenski boltinn Lést í hlaupi til minningar um systur sína Sport Haraldur skammar Pawel: „Ömurlegt pólitískt útspil“ Íslenski boltinn Given vorkennir Heimi Fótbolti Var með ferðatöskuna tilbúna af því að Liverpool ætlaði að kaupa hann Enski boltinn Hungrið enn til staðar hjá Gunnari: Með augun á næsta bardaga Sport „Þeir hótuðu að handtaka konuna mína“ Fótbolti Pochettino verður sá launahæsti í sögunni Fótbolti Fleiri fréttir Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Curry fær meira en átta milljarða fyrir eitt tímabil „Ég gæti auðveldlega verið dauður“ Setti enn eitt metið í nótt Nýr Þórsari kynntur: „Hann kemur frá Cleveland líkt og Lebron James“ Skýtur af lengra færi en bestu NBA strákarnir Vonarstjarna ÍR til Bandaríkjanna Morris spilar með Grindavík í vetur Golden State hetjan Al Attles látin Frábærir þrír leikhlutar ekki nóg á móti Bretum Kallaði Kevin Durant veikgeðja Lykilmenn Íslandsmeistaranna framlengja samninga sína Amazon kóngurinn sagður vilja kaupa NBA meistarana Caitlin Clark þakkaði dómaranum fyrir tæknivilluna sína Fyrstur til að skora fjögurra stiga körfu Undirbýr sig fyrir NBA tímabilið á bólakafi Benni Gumm fann Grikkja fyrir Tindastólsliðið: „Tók sinn tíma“ Cailtin Clark áritaði kornabarn Barkley gaf eftir hundrað milljónir til að halda tryggð við TNT Sjá meira