Ellefu stig frá Martin í sigri eftir framlengingu 7. nóvember 2018 19:12 Martin í leik með þýska liðinu. vísir/getty
Martin Hermannsson var sem fyrr öflugur í liði Alba Berlín sem vann sinn fimmta leik í röð í Evrópubikarnum í körfubolta en liðið hafði betur gegn tyrkneska félaginu Tofas, 106-101, eftir framlengingu. Alba byrjaði af miklu krafti og eftir að hafa verið sjö stigum yfir eftir fyrsta leikhlutann bættu þeir enn frekar í. Þeir leiddu svo í hálfleik 52-32. Þeir slökuðu hins vegar á klónni í þriðja leikhluta. Eþir töpuðu honum með sextán stiga mun, 32-16, og hleyptu heimamönnum á bragðið. Það var því hart barist í fjórða leikhlutanum. Er fjórar mínútur voru eftir af leiknum var allt jafnt, 78-78, en eftir dramatískar lokamínútur í venjulegum leiktíma var staðan jöfn, 92-92, og því þurfti að framlengja. Í framlengingunni voru gestirnir frá Berlín sterkari og Martin og félagar unnu afar sterkan sigur á útivelli, 106-101. Alba er á toppi riðilsins með fimm sigra í fyrstu sex leikjunum. Martin var með ellefu stig í kvöld en auk þess gaf hann átta stoðsendingar. Hann tók svo þrjú fráköst. Öflugur KR-ingurinn sem fyrr.
Körfubolti Mest lesið Þjálfari Evrópumeistaranna segir Rodri bestan í heimi Fótbolti Andrea í sólina í Tampa Íslenski boltinn Ralf Schumacher kemur út úr skápnum Formúla 1 Sjáðu ískaldan Guðmund Magnússon klára KR og bæði rauðu spjöldin Íslenski boltinn Ómar Ingi: Það er í skoðun að styrkja liðið Sport Ómar: Þetta var sigur liðsheildarinnar Fótbolti Uppgjörið og viðtöl: FH - HK 3-1 | FH-ingar aftur á sigurbraut Íslenski boltinn Sonur Söndru og Daníels kominn í heiminn Handbolti Uppgjörið: Fylkir - ÍA 3-0 | Fylkismenn skelltu Skagamönnum niður á jörðina Íslenski boltinn Fer ófögrum orðum um frammistöðu Rice: „Hann er gagnslaus“ Fótbolti Fleiri fréttir Njarðvíkingar búnir að finna sér Bandaríkjamann Þrjátíu stiga tap gegn Slóvenum en sextán liða úrslit framundan Keflvíkingar fá þýskan framherja Stelpurnar komust ekki upp í A-deildina Tólf ár á milli fjórðu og fimmtu Ólympíuleika hennar Bronny James hefur klikkað á öllum skotunum sínum Stórkostlegt svar hjá íslensku strákunum eftir skellinn í gær Fáliðað lið Ísland tapaði í undanúrslitum Norðurlandameistarnir fengu stóran skell í fyrsta leik EM Matareitrun á EM: Fimm veikar í íslenska hópnum og ein fór á sjúkrahús Brunson hjálpar Knicks með því að skilja fimmtán milljarða eftir á borðinu Búin að bæta nýliðametið þótt að það séu enn sextán leikir eftir Innlit í nýtt íþróttahús Njarðvíkinga: „Þetta er þvílíkt mannvirki“ Íslensku stelpurnar í undanúrslit eftir stórsigur á Írum Caitlin Clark með tölur sem hafa aldrei sést í NBA né WNBA Kawhi vildi spila á Ólympíuleikunum en var sendur heim Agnes og Eva atkvæðamestar í tapi fyrir Tékkum Danski Jokic í Bónus-deildina „Sannfærð um að þessi samningur lyfti körfuboltanum enn meira upp“ Subway deildin verður Bónus deildin Reiknar með því að hinn fjörutíu og tveggja ára Hlynur troði á komandi tímabili Tryggðu sér sæti í átta liða úrslitum Grindvíkingar fá landsliðskonu frá Njarðvík Álftanes fær til sín leikjahæsta Stjörnumanninn Giannis á leið á sína fyrstu Ólympíuleika Caitlin Clark varð fyrsti nýliðinn til að ná þrefaldri tvennu LeBron fær meira borgað næstu tvö ár en Jordan fékk allan ferilinn Luka og Giannis geta tekið Ólympíudrauminn frá hvorum öðrum Fundu strax nýjan Skvettubróður fyrir Steph Curry Kemba Walker hættur og verður þjálfari hjá Hornets Sjá meira