Ryder tekur við Þór Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar 5. október 2018 09:33 Ryder er farinn til Akureyrar mynd/þór
Gregg Ryder er nýr þjálfari Þórs í Inkasso deild karla í fótbolta. Hann tekur við liðinu af Lárusi Orra Sigurðssyni. Lárus Orri hefur stýrt Þór síðustu tvö tímabil og undir hans stjórn varð Þór í 3. sæti Inkasso deildarinnar í sumar. Þórsarar áttu lengi vel möguleika á að fara upp í efstu deild en enduðu fimm stigum á eftir ÍA og HK. Bretinn Ryder þjálfaði síðast Þrótt í Reykjavík en hann hætti störfum þar í apríl, rétt áður en nýafstaðið tímabil hófst. Faglegur ágreiningur var sagður ástæða þess að þar skildu leiðir.Tilkynning Þórs: Knattspyrnudeild Þórs réð í dag Gregg Ryder sem þjálfara meistaraflokks karla og tekur hann við liðinu af Lárusi Orra Sigurðssyni. Gregg Ryder sem er einungis þrítugur að aldri hefur mikla reynslu af þjálfun en hann þjálfaði lið reykjavíkur Þróttara frá árinu 2013 en hann lét þar af störfum í vor. Þar áður hafði hann verið aðstoðarþjálfari Hermanns Hreiðarssonar með meistaraflokk ÍBV en Ryder hafði einnig þjálfað 2. flokk ÍBV sem og fleiri yngri flokka félagsins. Gregg Ryder lærði þjálfun og viðskiptafræði í Bandaríkjunum. Knattspyrnudeild gerði tveggja ára samning við Gregg. Bjóðum Gregg velkominn til Þórs í von um að á Akureyri og í Þorpinu bíði hans góðir tímar á komandi árum. Það var Óðinn Svan Óðinsson formaður knattspyrnudeildar Þórs sem undirritaði samninginn fyrir hönd Þórs.
Íslenski boltinn Mest lesið Uppgjör: Ítalía - Ísland 74-81 | Strákarnir sóttu sigur í gin ljónsins Körfubolti Hareide hættur með landsliðið Fótbolti Foreldrarnir vissu ekki að hún væri bardagakona Sport Hareide hugsaði um heilsuna: „Vildi einbeita sér að því“ Fótbolti „Við munum þurfa að þjást í langan tíma“ Enski boltinn Geir fer aftur í Vesturbæinn Íslenski boltinn „Liverpool má alls ekki leyfa Salah að yfirgefa Anfield“ Enski boltinn Hamrarnir unnu óvæntan sigur í norðrinu Enski boltinn Tólf leikmenn komnir til KR Íslenski boltinn Þríeykið rennur allt út á samning næsta sumar Enski boltinn Fleiri fréttir Hræringar í Bestu: Daníel Hafsteins orðaður við Víking og Andri Rúnar í Garðabæ Tólf leikmenn komnir til KR Geir fer aftur í Vesturbæinn FH-ingar kynntu Birki og Braga Framarar sótt fjóra bita í næstu deild Óli Valur til Blika og sagður sá dýrasti á Íslandi Stefan ætlar að koma Keflavík í deild þeirra bestu Líta á tilboðið í Gylfa sem grín Valgeir til Breiðabliks Eyþór yfirgefur KR Allt lítur vel út hjá Pablo Punyed Ágúst Orri aftur heim í Breiðablik Systur sömdu á sama tíma Katrín áfram í Kópavogi Bjarni áfram hjá KA Þórdís Elva semur við Þróttara Ritstjóri 433.is tekinn við Dalvík/Reyni Birkir Valur yfirgefur HK Enn kvarnast úr liði Vestra Sameina kraftana tólf árum síðar: „Sami texti í samningnum“ Mikill rígur við „Appelsín-strákinn“ Rúrik Rúnari Páli treyst fyrir endurreisn Gróttu Hermann fer inn í hlýjuna: „Eitt af draumastörfunum sem þú færð“ Blysin kostuðu 200 þúsund en engin refsing vegna brettamálsins Skagamenn sökuðu mbl um „smellubeitu“ en fá samt sekt „Áran yfir Meistaravöllum er ólýsanleg“ Kristófer áfram í Kópavogi Höttur hlaut aftur langhæsta styrkinn: „Virkilega góð lyftistöng“ Damir á leið til Asíu Vill vera áfram í Kópavogi en útilokar ekkert Sjá meira