Bankastjórinn á Brúnni slær í gegn Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 8. október 2018 06:30 Leikmenn Chelsea fagna Ross Barkley eftir að hann kom liðinu í 0-2 gegn Southampton í 8. umferð ensku úrvalsdeildarinnar í gær. Vísir/Getty
Þegar annað landsleikjahlé tímabilsins gengur í garð er Chelsea í 2. sæti ensku úrvalsdeildarinnar með 20 stig, jafn mörg og topplið Manchester City en lakari markatölu. Chelsea bar sigurorð af Southampton í gær, 0-3, og hefur unnið sex af fyrstu átta deildarleikjum sínum og gert tvö jafntefli. Þá er Chelsea komið áfram í 4. umferð enska deildabikarsins og búið að vinna báða leiki sína í Evrópudeildinni. Maurizio Sarri, nýr knattspyrnustjóri Chelsea, hefði ekki getað óskað sér betri byrjunar, sérstaklega þegar hann er að umbreyta leikstíl liðsins. „Við spiluðum boltanum hratt á milli okkar. Hver leikmaður tók í mesta lagi tvær snertingar og við áttum auðvelt með að koma okkur í færi. Ég held að þetta sé minn fótbolti,“ sagði Sarri eftir sigurinn á velli heilagrar Maríu í gær. Verst geymda leyndarmál fótboltans var opinberað þegar Sarri var ráðinn stjóri Chelsea þann 14. júlí í stað landa síns, Antonio Conte. Sarri kom til Chelsea eftir þrjú ár við stjórnvölinn hjá Napoli. Undir stjórn Sarri endaði Napoli tvisvar í 2. sæti ítölsku úrvalsdeildarinnar og einu sinni í því þriðja. Síðasta tímabil var frábært hjá Napoli. Liðið vann 28 af 38 deildarleikjum sínum og fékk 91 stig. Þessi stigafjöldi hefði oftast dugað til að vinna meistaratitilinn en hann var áfram hjá Juventus sem vann hann sjöunda árið í röð. Bakgrunnur Sarri er nokkuð sérstakur. Hann átti ekki merkilegan feril sem leikmaður og lék aðeins sem áhugamaður. Hann byrjaði að þjálfa 1990 og gerði það meðfram starfi sínu í banka í Toskana. Hann vann í alþjóðadeild bankans en eftir að evran kom til sögunnar var minna að gera fyrir menn eins og hann. Sarri hætti því í bankanum skömmu eftir aldamótin og einbeitti sér alfarið að þjálfun. Stóra tækifærið kom þegar hann var ráðinn stjóri Empoli 2012. Tveimur árum síðar kom Sarri liðinu upp í ítölsku úrvalsdeildina. Þá var hann 55 ára. Empoli bjargaði sér frá falli tímabilið 2014-15 og eftir það var Sarri ráðinn til Napoli. Þótt Napoli hafi ekki unnið titil undir stjórn hins keðjureykjandi Sarri eignaðist liðið marga aðdáendur sökum áferðarfagurs fótbolta og skemmtilegrar spilamennsku. Einn af aðdáendum leikstíls Sarri var Roman Abramovich, eigandi Chelsea, sem ákvað að gera hann að næsta stjóra ensku bikarmeistaranna. Abramovich hefur lengi verið á höttunum eftir Pep Guardiola en aldrei tekist að klófesta spænska stjórann. Hann réð því þann stjóra sem kemst næst því að bjóða upp á svipaðan fótbolta og Guardiola. Spánverjinn er mikill aðdáandi Sarri og hefur margoft hrósað honum opinberlega. Og virðingin er gagnkvæm. Líkt og Guardiola leggur Sarri áherslu á að lið sín haldi boltanum, spili út frá markverði og taki frumkvæðið í leikjum. Það þarf ekki að koma á óvart að Manchester City og Chelsea séu þau lið sem eru mest með boltann í ensku úrvalsdeildinni í vetur. Að meðaltali er Chelsea 62,7 prósent með boltann í leik. Á síðasta tímabili var sú tala 54,4 prósent. Lykilmaðurinn í þessari umbyltingu á leikstíl Chelsea er ítalski landsliðsmaðurinn Jorginho sem Sarri tók með sér frá Napoli. Hann leikur fyrir framan vörn Chelsea og allt spil liðsins fer í gegnum hann. Jorginho hefur gefið 853 sendingar í fyrstu átta leikjum tímabilsins, langflestar allra leikmanna ensku úrvalsdeildarinnar. Hann fer ekki hratt yfir en er frábær með boltann og kemur honum nær undantekningarlaust á samherja. Líkt og City pressar Chelsea andstæðinga sína hátt uppi á vellinum og reynir að vinna boltann eins fljótt og mögulegt er eftir að hann tapast. Varnarleikur Chelsea hefur verið nokkuð góður á tímabilinu og liðið aðeins fengið á sig fimm mörk í fyrstu átta deildarleikjunum. Framherjar Chelsea, Álvaro Morata og Olivier Giroud, hafa aðeins skorað tvö mörk samtals í ensku úrvalsdeildinni. Það hefur þó ekki komið að sök því Eden Hazard hefur verið sjóðheitur í haust. Belginn var sterklega orðaður við Real Madrid eftir HM í Rússlandi en ekkert varð af þeim vistaskiptum. Hazard skoraði fyrsta mark Chelsea í sigrinum á Southampton en það var hans sjöunda deildarmark á tímabilinu. Hann er markahæstur í ensku úrvalsdeildinni. Hazard hefur aldrei skorað meira en 16 mörk á einu tímabili en ef hann heldur áfram á sömu braut fer hann yfir 20 mörkin.
Birtist í Fréttablaðinu Enski boltinn Mest lesið Stúkan birti skilaboðin: „Mér finnst þetta ömurlegt“ Íslenski boltinn Sparkaði í brjóstin á mótherja sínum Fótbolti Reiðir yfir að fá ekki heita sturtu og kvarta yfir Arsenal Fótbolti Bruno segir að stuðningsfólk Liverpool hafi hjálpað United-liðinu Enski boltinn Þurftu að aflýsa 24 þúsund manna maraþonhlaupi Sport Sagðir vilja kaupa Man United með hjálp Beckham eða Cantona Enski boltinn Kúluvarp á Extraleikunum: „Bara spurning hvort Andri fljúgi með kúlunni“ Sport Dyche snýr aftur í enska boltann Enski boltinn Klopp útskýrði af hverju hann hafnaði Man. Utd Enski boltinn „Oft séð svona í sjónvarpi“ og verður sjálfur á stóra skjánum Sport Fleiri fréttir Klopp útskýrði af hverju hann hafnaði Man. Utd Dyche snýr aftur í enska boltann Bruno segir að stuðningsfólk Liverpool hafi hjálpað United-liðinu Sagðir vilja kaupa Man United með hjálp Beckham eða Cantona West Ham enn stigalaust á heimavelli á leiktíðinni Klopp útilokar ekki endurkomu til Liverpool: Það er mögulegt Sonur Stuart Pearce lést í slysi Albert setti pressu á Öddu: „Ég skal bara gefa þér þetta víti“ Fyrrverandi leikmaður Real Madrid og Everton fékk slag Messan um Lammens: „Hann er með góða áru“ Dyche færist nær Forest Slot vildi stöðva leik: Liverpool gerir ekki svona „Að tapa fjórum leikjum í röð hefur án vafa áhrif á liðið“ Sjáðu allt það helsta úr frægðarför United til Liverpool Dramatískur endurkomusigur United Þriðji deildarsigur Villa í röð Mancini og Dyche á óskalista Forest Þrenna Mateta kom í veg fyrir að Bournemouth kæmist á toppinn Arsenal vann Lundúnaslaginn Haaland skaut City á toppinn Postecoglou rekinn Hitnar enn undir Postecoglou Fékk fjögur rauð gegn Liverpool Guéhi hafnaði samningstilboði frá Palace og fer næsta sumar Stjórinn og fyrirliðinn koma Wirtz til varnar Maðurinn sem vildi breyta nafninu sínu í Manchester United er allur Amorim ræddi stuðningsyfirlýsinguna frá Ratcliffe: „Ég vil ekki hugsa þannig“ Sjáðu bestu mörkin úr leikjum Liverpool og Man. Utd Wildcard-liðið hans Alberts: Þrír frá Arsenal en langar ekki að velja Salah Skjátlaðist um Palmer sem verður lengi frá keppni Sjá meira