Baldanza hættur í stjórn WOW air Samúel Karl Ólason skrifar 15. september 2018 13:54 Baldanza situr enn fundi og sinnir ráðgjafastörfum fyrir WOW, enda hafi hann verið eini meðlimur stjórnarinnar sem hefði reynslu af rekstri flugfélags. Vísir/Vilhelm
Bandaríkjamaðurinn Ben Baldanza er hættur í stjórn WOW air. Hann tók þess í stað sæti í stjórn flugfélagsins JetBlue í Boston og segist hann hafa hætt í stjórn WOW til að forðast hagsmunaárekstra. Þetta kemur fram á vef Túrista. Þar segir að Svanhvít Friðriksdóttir, talskona flugfélagsins, hafi þá sagt að Baldanza væri enn í stjórn félagsins.Baldanza segir hins vegar að hann hafi hætt í stjórninni um leið og hann hóf störf fyrir JetBlue. Hann hafi þó vitað af því að hann væri enn kynntur sem stjórnarformaður á vefsíðu WOW og sömuleiðis í útboðsgögnum vegna skuldabréfaútgáfu WOW. Sömuleiðis situr hann enn fundi og sinnir ráðgjafastörfum fyrir WOW, enda hafi hann verið eini meðlimur stjórnarinnar sem hefði reynslu af rekstri flugfélags. Baldanza var á árunum 2005 til 2016 forstjóri Spirit flugfélagsins. Í frétt Túrista er Baldanza spurður út í frétt Morgunblaðsins um að WOW skuldi Isavia lendingargjöld upp á allt að tvo milljarða króna. Hann segist þekkja til skuldar við Keflavíkurflugvöll en hann hafi ekki vitað af fréttaflutningi um málið.
WOW Air Tengdar fréttir WOW sagt skulda Isavia tvo milljarða í lendingargjöld WOW mun ekki hafa greitt lendingargjöld á Keflavíkurflugvelli frá því í vor. 15. september 2018 10:18 Mest lesið Play telur ríkið geta sparað sér tugi milljóna Viðskipti innlent Furðar sig á blekkingarbrigslum Heimildarinnar Viðskipti innlent Segja umfjöllun sem geri Carbfix tortryggilegt fulla af rangfærslum Viðskipti innlent Ráðinn nýr framkvæmdastjóri Domino's á Íslandi Viðskipti innlent Sorpa endurskoðar verðskrá vegna losunar hrossataðs Neytendur Góð kjör á afmælissýningu Toyota Samstarf Hafa bæst í eigendahóp PwC Viðskipti innlent Ráðin sviðsstjóri hafnarinnviða Viðskipti innlent Sjálfstætt starfandi fjölgar: Fljótlegt, einfalt og oft ódýrara Atvinnulíf Sigrún Ósk kveður Stöð 2 Viðskipti innlent Fleiri fréttir Furðar sig á blekkingarbrigslum Heimildarinnar Play telur ríkið geta sparað sér tugi milljóna Segja umfjöllun sem geri Carbfix tortryggilegt fulla af rangfærslum Hafa bæst í eigendahóp PwC Ráðin sviðsstjóri hafnarinnviða Ráðinn nýr framkvæmdastjóri Domino's á Íslandi Semja um sjóflutninga og hafnaruppbyggingu í Þorlákshöfn Flugumferð aldrei verið meiri en á síðasta ári Sigrún Ósk kveður Stöð 2 Ný gervigreindarlausn opnar fyrir sólarhringsþjónustu 1819 Nýr framkvæmdastjóri Kuehne+Nagel á Íslandi Kaupa meirihluta hlutafjár Internets á Íslandi hf. Litlar breytingar á þorski í stofnmælingu Hafró Þurfa að greiða starfsfólki Flame enn fleiri milljónir Ráðinn sviðsstjóri viðskiptasviðs hjá Faxaflóahöfnum Íbúðum í byggingu fór fækkandi á milli ára Hættir sem ritstjóri Bændablaðsins Stefán Örn nýr eigandi hjá Rétti JBT Marel tekið til viðskipta í Kauphöllinni Hótel Selfoss verður Marriott hótel Lætur af störfum hjá Stöð 2 eftir tuttugu ára feril Engin hópuppsögn í desember Aldrei jafn margir ferðast með Icelandair Slitu kolefnisbindingarfyrirtækinu Running Tide Eigendum fjölgar hjá LOGOS Þrír og hálfur milljarður króna fyrir Perluna Blöskrar 14 prósent verðhækkun tryggingarfélags Ummæli stjórnarmanns Eflingar um sníkjudýr „til skammar“ Vigdís frá Play til Nettó Gjafabréf og alls konar flatbökudótarí vinsælar jólagjafir í ár Sjá meira
WOW sagt skulda Isavia tvo milljarða í lendingargjöld WOW mun ekki hafa greitt lendingargjöld á Keflavíkurflugvelli frá því í vor. 15. september 2018 10:18