Lars fékk fimm æfingaleiki fyrir fyrsta keppnisleik en Hamrén fær engan Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 8. ágúst 2018 14:00 Lars Lagerbäck með Kára Árnasyni.Kári skoraði fyrsta markið í keppnisleik eftir að Lars tók við. Vísir/Getty
Í annað skiptið á tæpum sjö árum þá ræður KSÍ sextugan Svía til að taka við íslenska karlalandsliðinu. Á meðan Lars Lagerbäck fékk næstum því ár til að undirbúa liðið þá fær Erik Hamrén einn mánuð. Erik Hamrén fær nefnilega mjög lítinn tíma til að móta liðið sitt fyrir fyrsta keppnisleik íslenska landsliðsins undir hans stjórn. Lars Lagerbäck fékk 298 fleiri daga og fimm fleiri leiki til að móta íslenska landsliðið fyrir sinn fyrsta keppnisleik þar sem íslensku strákarnir fögnuðu svo sigri. Lars Lagerbäck tók við íslenska landsliðinu í árslok 2011 (14. otkóber) og liðið spilaði síðan fyrstu leiki undir hans stjórn árið 2012. Íslenska landsliðið spilaði alls fimmm vináttulandsleiki undir stjórn Lars áður en kom að fyrsta keppnisleiknum. Fyrsti keppnisleikurinn undir stjórn Lars Lagerbäck var á móti Noregi á Laugardalsvellinum 7. september 2012. Ísland vann hann 2-0 með mörkum frá Kára Árnasyni og Alfreð Finnbogasyni. Það liðu því 329 dagar (10 mánuðir og 24 dagar) frá því að Lars Lagerbäck tók við liðinu þar til að liðið spilaði sinn fyrsta alvöru leik. Erik Hamrén fær aftur á móti aðeins 31 dag til að undirbúa liðið fyrir leikinn á móti Sviss í St. Gallen í næsta mánuði. Hamrén tók við í dag, 8. ágúst og fyrsti leikurinn verður 8. september. Þremur dögum síðar er síðan fyrsti heimaleikurinn þegar Belgar koma í heimsókn á Laugardalsvöllinn.
EM 2020 í fótbolta Þjóðadeild UEFA Mest lesið Konurnar aftur fleiri og sex fædd eftir 2000: Topp tíu listinn í ár Sport Rashford á lausu yfir jólin Fótbolti Látnir æfa á jóladag Enski boltinn Óvænt úrslit á HM í pílu í kvöld Sport Missti niður um sig brækurnar og gaf ódýrt mark Fótbolti Beint af HM á sjúkrahús vegna sjaldgæfs taugasjúkdóms Sport Logi frá FH til Króatíu Fótbolti Mætir á leik í fyrsta sinn eftir að hjartað stoppaði Fótbolti Salah sló þrjú met í dag Fótbolti „Allt er svo erfitt“ Enski boltinn Fleiri fréttir Entist ekki lengi í fyrsta þjálfarastarfinu „Allt er svo erfitt“ Látnir æfa á jóladag Mætir á leik í fyrsta sinn eftir að hjartað stoppaði Logi frá FH til Króatíu Rashford á lausu yfir jólin Missti niður um sig brækurnar og gaf ódýrt mark „Við vorum taugaóstyrkir“ Salah sló þrjú met í dag Semur við félagið sem bæði mamma og pabbi spiluðu fyrir Everton hjálpaði sér og nágrönnunum í Liverpool Útsalah á mörkum í Lundúnum Martröð hjá Manchester United í leikhúsi draumanna Drottning Lengjudeildarinnar ætlar að vera með Fram í Bestu Öruggt hjá Real Madrid gegn Sevilla Liverpool liðið ferðast mest yfir jólin Fjórar knattspyrnukonur handteknar Jackson komst upp fyrir Eið Smára Heiður að vera keypt á metfé frá Val: „Stórt og gott skref“ Sara Björk á skotskónum í Sádi-Arabíu Skallaði þjálfara andstæðinganna eftir leik Endar Rashford í Sádí-Arabíu? Saka yfirgaf Selhurst Park á hækjum Bellingham tryggði Sunderland sigurinn Atletico rændi sigrinum í blálokin Juric tekinn við Southampton Arsenal valtaði yfir Crystal Palace Isak með þrennu í stórsigri Newcastle Haaland: Ég hef ekki verið nógu góður Gumma komin heim eftir átta ára fjarveru Sjá meira