ÍA semur við fyrrum leikmann Liverpool Arnar Geir Halldórsson skrifar 31. júlí 2018 08:00 Nýjasti leikmaður ÍA Heimasíða ÍA
Hollenski miðjumaðurinn Vincent Weijl hefur samið við knattspyrnudeild ÍA og mun klára tímabilið með liðinu í Inkasso-deildinni. Þetta kemur fram í tilkynningu á heimasíðu Skagamanna.Weijl er 27 ára miðjumaður sem þótti afar efnilegur á sínum yngri árum en hann var samherji landsliðsfyrirliðans Arons Einars Gunnarssonar hjá AZ Alkmaar þar sem hann kom upp úr unglingaakademíu hollenska liðsins. Núverandi þjálfari ÍA, Jóhannes Karl Guðjónsson, var sömuleiðis samningsbundinn AZ Alkmaar á þessum tíma. Weijl á landsleiki að baki fyrir yngri landslið Hollands. 17 ára gamall var hann keyptur til enska stórveldisins Liverpool en þar náði hann ekki að brjóta sér leið í aðalliðið. Árið 2010 gekk hann í raðir spænska liðsins Eibar og hefur síðan farið víða en hann hefur leikið í Hong Kong, Danmörku og var síðast á mála hjá PKNP í malasísku úrvalsdeildinni. „Þetta er fjölhæfur leikmaður sem hefur gert góða hluti hjá mörgum liðum og slík reynsla er mikilvæg fyrir liðið okkar. Við höfum þannig náð að styrkja liðið umtalsvert í félagaskiptaglugganum og við munum nú leggja okkur alla fram um að taka toppsætið í Inkasso-deildinni,“ segir Jóhannes Karl í tilkynningu Skagamanna. Skagamenn eru í harðri baráttu á toppi Inkasso-deildarinnar og kosta miklu til með það fyrir augum að komast aftur í Pepsi-deildina en ÍA sótti Jeppe Hansen frá Keflvíkingum á dögunum.
Íslenski boltinn Mest lesið Hættu við giftingu eftir sameiginlegt steggja- og gæsapartí Sport Þór - KA | Mikið í húfi í Akureyrarslag Handbolti Eiður flutti dapurleg tíðindi af Andra Lucasi Fótbolti Sakar konung síðustu Vetrarólympíuleika um svindl Sport FH - ÍR | Möguleiki á titli og lífróður ÍR-inga Handbolti KR - Keflavík 107-105 | Keflvíkingar gáfu frá sér fimmta sætið Körfubolti „Þetta er ógeðslegt starf“ Körfubolti Uppgjör: Álftanes - ÍR 89-93 | Álftanes að missa af en ÍR á leið í úrslitakeppnina Körfubolti Vill að Messi segi sannleikann Fótbolti Rosaleg lokaumferð: Þrjú lið geta unnið titil og þrjú í fallhættu Handbolti Fleiri fréttir „Gátum ekki látið hann stjórna því“ Baldé snýr aftur til bikarmeistaranna Fylkir á barmi undanúrslita eftir sigur á ÍBV Sjáðu fimmu Atla Sigurjóns á móti Val í gær Fleury fór á kostum gegn FH Atli Sigurjóns skoraði fimm mörk og fór illa með Val Víkingurinn fljótur að láta til sín taka í Keflavík Meistararnir skoruðu sjö mörk gegn Víkingi Mættur til Skagamanna á Tenerife og gæti spilað gegn KR um helgina Fram fær hávaxna Hvergerðinginn Þróttarar fyrstir til að vinna Fylki og enn barist um efsta sætið Kani í mark Víkinga „Talaði við nokkur lið en á endanum var Víkingur mest heillandi“ Ejub látinn fara af fjárhagslegum ástæðum Dramatík í Nettóhöllinni FH-ingar kláruðu leikinn en töpuðu Jóhannes Kristinn gengur til liðs við Víking „Hvað er hann að gera hér?“ Keflavík fær víking að láni HM-farinn Cisse strax búinn að kveðja Vestra „Þetta voru orðnar hættulegar aðstæður“ Stjörnukonur burstuðu Þrótt og Þór/KA vann stórt fyrir austan Flautaði leikinn af þegar FH-ingar komu ekki út í seinni hálfleik Tillaga um nýtt knattspyrnufélag í Breiðholti lögð fyrir ársþing KSÍ Skagamenn enduðu sigurgöngu Valsmanna í Lengjubikarnum Þórsarar semja við Ganverja til þriggja ára Verðlaunaðir fyrir þættina Lengsta undirbúningstímabil í heimi Sagður á leið í Víkina Tvö mörk í blálokin færðu Víkingum fyrsta titil ársins Bikar undir í gulri viðvörun Sjá meira