Hafna hugmynd Pútín um þjóðaratkvæðagreiðslu í Úkraínu Samúel Karl Ólason skrifar 20. júlí 2018 22:41 Úkraínskir sérsveitarmenn í austurhluta Úkraínu. Vísir/AFP
Hvíta húsið hafnaði í dag hugmynd Vladimir Pútíns, forseta Rússlands, um að haldin verði þjóðaratkvæðagreiðsla í austurhluta Úkraínu um framtíð héraðsins. Hvort það tilheyri Úkraínu eða Rússlandi. Hugmyndin kom upp á fundi þeirra í Helsinki í byrjun vikunnar, samkvæmt sendiherra Rússlands í Bandaríkjunum.Talsmaður þjóðaröryggisráðs Donald Trump sagði nú í kvöld að samkomulag Bandaríkjanna og Úkraínu varðandi átökin í landinu fælu ekki í sér þjóðaratkvæðagreiðslu á svæðinu og sagði hann sömuleiðis að slík atkvæðagreiðsla yrði með öllu ólögmæt. Þá tilkynnti Varnarmálaráðuneyti Bandaríkjanna í kvöld að til stæði að veita yfirvöldum Úkraínu 200 milljónir dala til varnarmála. Fjármagninu er ætlað að bæta samskiptaleiðir herafla Úkraínu, hreyfanleika, læknaþjónustu og að kaupa nætursjónauka fyrir hermenn, samkvæmt umfjöllun CNN.Átökin í Úkraínu hófust í apríl 2014, skömmu eftir að Rússar sendu hermenn til Krímskaga og innlimuðu svæðið af Úkraínu. Rússar hafa ítrekað verið sakaðir um að styðja aðskilnaðarsinnana með vopnum, hermönnum og jafnvel beinni þátttöku í átökum í Úkraínu. Rússar hafa ávalt neitað þessum ásökunum, þrátt fyrir sterkar sannanir gegn þeim. Þeir hafa þó viðurkennt að rússneskir hermenn hafi barist í Úkraínu en segja þá hafa farið til Úkraínu sem sjálfboðaliða og jafnvel hafa verið í fríi frá hernum. Minnst tíu þúsund hafa dáið í átökunum og um 24 þúsund hafa særst.
Úkraína Mest lesið Hafi íhugað að gefast upp síðustu vikur Innlent Viðreisn heldur starfsfólkinu en Jón fær 1,3 milljónir til þingstarfa Innlent Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Innlent Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Saka Ingu um skæting og helberan dónaskap Innlent Lækkar eigin laun Innlent Jarðskjálftinn 5,2 að stærð Innlent Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Erlent Þúsundir hvetja til úttektar og ríkissaksóknari íhugar áfrýjun Innlent Íbúarnir höfðu betur Innlent Fleiri fréttir Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Fjórir hermenn létust í eldsvoða Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Mótmælendur réðust inn í ráðhúsið í Marseille Alvarlega slösuð eftir skotárás í íþróttahúsi Frestar gildistöku refsiaðgerða gegn Rússlandi Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Deilt um sönnunargögn og mögulegan vitorðsmann Norðmaður í tuttugu ára fangelsi í Bretlandi vegna leigumorðs Sjá meira